Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 50

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2001, Síða 50
STJÓRNSÝSLA Frá undirritun samstarfssamnings við lögregluna 12. maí 2000. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, Ingimundur Einarsson varalögreglu- stjóri, Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir borgar- fulltrúi og Regína Ásvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðgarðs. Félagsleg ráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf við ungt fólk sem hef- ur ekki lokið námi og íbúa sem hafa verið lengi án atvinnu. Mat á urn- sóknum og afgreiðsla Qárhagsað- stoðar og húsaleigubóta, mat og greining á umsóknum um leigu- íbúðir, liðveisla við fatlaða, umsjón með heimsendingu matar fyrir eldri borgara, heimaþjónusta. Sálfræðileg athugun og greining á bömum og ráðgjöf við skólastjóm- endur, kennara, foreldra og börn. Mat á umsóknum urn forgang á leikskóla. Eftirlit með starfsemi leikskóla og sérkennsla fyrir böm á leikskólum. Umsjón með gæsluvöllum, mat á umsóknuin um daggæslu í heima- húsum og eftirlit með starfseminni, upplýsingar og miðlun vistunar- plássa hjá dagmæðrum, endur- greiðsla til foreldra og innritun á leikskóla. Auk ofantalins hefur Miðgarður unnið að fjölmörgum verkefnum, m.a. að stofnun og stuðningi við fé- lagsskap eldri borgara, Korpúlfana, haldið starfsþjálfunamámskeið fyrir konur, Valkyrjurnar, sem höfðu verið lengi atvinnulausar og treystu sér ekki út á vinnumarkaðinn, unnið með vinahópum einangraðra ungl- inga og klúbbi ungra mæðra í sam- vinnu við Gufúnesbæ auk forvama- og menningarverkefna sem nánar verður getið um síðar í greininni. Loks má geta þess að Miðgarður vinnur að innleiðingu svokallaðrar uppbyggingarstefnu í Grafarvogi. Vinna í anda stefnunnar hefúr þann tilgang að styrkja sjálfsmynd bama og unglinga í Grafarvogi og hæfni til að velja og hafna samkvæmt eig- in gildismati. Sérfræðingar Mið- garðs hafa sótt ffæðslu og verklega þjálfun í aðferðafræðinni og stefnt er að því að bjóða öllum lykilaðilum í uppeldi bama og unglinga fræðslu á næstu ámm. 4. Markmíðin þrjú Þrjú meginmarkmið voru sett með stofnun Miðgarðs í upphafi og verður hér á eftir fjallað um hvemig miðstöðin hefúr unnið að þeim. • Bæta og hagræða þjónustu við íbúa Grafarvogs með samræm- ingu á opinberri þjónustu i hverf- inu. Þetta markmið á rætur sínar að rekja til þess að velferðarkerfi á Vesturlöndum hafa vaxið mjög hratt með auknum kostnaði og í takt við þessa þróun hefur sérhæfmg aukist með tilheyrandi þörf á samræmingu i málefnum sem snerta.einstaklinga og fjölskyldur. Þegar stofnanir verða mjög sérhæfðar myndast gjaman svokölluð grá svæði í kerf- inu og hætta er á að enginn sé að sinna tilteknum verkefnum sem leiðir til þess að þjónusta, sama hversu fagleg og góð hún annars er, hitti síður í mark. Þverfagleg teymi Þverfagleg teymi sem em svæðis- bundin em rauði þráðurinn í starf- semi Miðgarðs. I teymunum starfa saman fagaðilar sem vinna við sál- fræðiþjónustu við leik- og grunn- skóla, við barnavernd, félagslega ráðgjöf, sérkennslu á leikskólum og ráðgjöf við stjórnendur leikskól- anna. Einnig em aðrir fagaðilar boð- aðir á fundi ef þörf er á, til dæmis forvamarfúlltrúi, umsjónaraðili með heimaþjónustu eða daggæsluráð- gjafi. Forsenda þessarar skipulagningar er að ýtmsm varkámi sé gætt gagn- vart þeirn sem leita eftir þjónustu í Miðgarð og þeir samþykki að mál- efni þeirra séu rædd í teymum. Tölvu- og upplýsingakerfí Miðgarðs hefúr verið hannað þannig að starfs- fólk kemst ekki á milli svæða í leit að persónuupplýsingum, upplýst samþykki er meginstefna Miðgarðs og í langflestum tilvikum er það auðsótt mál. Önnur mikilvæg forsenda er að verksvið starfsmanna séu skýr þannig að allir séu ekki í öllu heldur að ólík fagþekking og reynsla nýtist til að dýpka umræður og finna nýja fleti á viðfangsefnum. Með þessu móti upplifir fólk að það fái heild- stæða þjónusm og fagfólk þarf ekki að eyða óþarfa tíma í hringingar á rnilli stofnana eftir leit að upplýs- ingum eða sækja fúndi úti í bæ til að samræma starfshætti. Margar leiðir hafa verið famar til að ná fram markmiðum um vel starfhæf teymi í Miðgarði. Svoköll- 1 1 2

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.