Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2011 Í tilefni uppsagna 2.000 lækna íSlóvakíu minnir Gunnar Rögn- valdsson á að Slóvakía tók upp evru 1. janúar 2009:    Landið er því strax komið á nið-urskurðarborð seðlabanka munkaklausturs Evrópusambands- ins í Frankfurt og Brussel. Bankakerfi Slóvakíu og allra 17 landa evrusvæðisins eru í þessu sama klaustri og enginn vill heldur lána rík- issjóðum þeirra peninga nema á okurvöxtum. Lífinu er nú haldið í þessum klausturbúum Evrópusambandsins með niðurkasti Bandaríkjadala úr flugþyrlu Ben S. Bernanke seðla- bankastjóra Bandaríkjanna, sem flýgur yfir klausturgarða evru- svæðisins einu sinni á degi hverjum – frá og með í gær – og kastar niður til þeirra gjaldmiðli sem bankar evrulanda treysta.    Þessir 2.000 læknar í evruland-inu Slóvakíu sem sagt hafa upp störfum sínum í evruparadís ESB segja að laun þeirra séu svo lág að hámenntaðir sérfræðingar hafi sem svarar til 250-350 þúsunda í laun á mánuði við vinnu sína í heilbrigð- iskerfi Slóvakíu sem hvort sem er sé gjörónýtt, óháð lágum launum þeirra og störfum. Ástandið geti því varla orðið verra. Íslenskir læknar staðsettir í norskum og sænskum krónum munu auðvitað koma hér ríðandi á íslenskum hestum sínum Slóvökum til aðstoðar. Eða verður það öfugt?    Evra Evrópusambandsins varinnleidd í 17 ríkjum sam- bandsins svo húsmóðir í svörtum kjól með fimmtugan atvinnulausan heimabúandi einkason sinn í Róm geti séð hvað franskbrauðið í bak- aríinu á Hillasillalagötu 15 í Hels- inki kostar.“ Gunnar Rögnvaldsson Dollurum dreift STAKSTEINAR Slökkvilið höfuborgasvæðisins Munið að slökkva á kertunum Yfirgefið aldrei vistarveru þar sem kertaljós logar Veður víða um heim 1.12., kl. 18.00 Reykjavík -3 snjókoma Bolungarvík -3 skýjað Akureyri -6 skýjað Kirkjubæjarkl. -3 skýjað Vestmannaeyjar -2 skýjað Nuuk -2 alskýjað Þórshöfn 0 alskýjað Ósló 5 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 alskýjað Stokkhólmur 6 skúrir Helsinki 6 alskýjað Lúxemborg 8 skúrir Brussel 12 skýjað Dublin 3 léttskýjað Glasgow 3 skýjað London 10 skúrir París 12 skýjað Amsterdam 10 léttskýjað Hamborg 10 skýjað Berlín 7 skýjað Vín 0 þoka Moskva -2 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 16 léttskýjað Aþena 12 heiðskírt Winnipeg -12 léttskýjað Montreal -1 skýjað New York 6 heiðskírt Chicago 2 skýjað Orlando 15 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:48 15:47 ÍSAFJÖRÐUR 11:24 15:21 SIGLUFJÖRÐUR 11:08 15:03 DJÚPIVOGUR 10:25 15:09 Jón Gnarr borgarstjóri og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Ís- lands, undirrituðu í gær sam- komulag um sameiginlega framtíð- arsýn á háskólasvæðinu. Felur það í sér vilja beggja aðila til að vinna að sameiginlegri framtíðarsýn, heild- arskipulagi og samgöngustefnu fyrir lóðir og svæði háskólans í Vatns- mýri. Áætlun um uppbyggingu Skv. fréttatilkynningu verður skipuð nefnd sem á m.a. að kanna möguleika á fjölbreytilegri land- notkun á svæði Háskóla Íslands vestan Suðurgötu, m.a. með tilliti til möguleika á skipulagi náms- mannaíbúða og annarri aðstöðu fyrir stúdenta. Jafnframt er ætlunin að rýna svæðið austan Suðurgötu með það fyrir augum að fjölga stúdenta- íbúðum þar enn frekar, en nýverið hófst bygging nýrra stúdentagarða við Oddagötu. Samhliða þessu verð- ur gerð uppbyggingaráætlun fyrir háskólasvæðið. Marka á samgöngustefnu fyrir svæðið þar sem gert verður ráð fyrir góðum tengingum almennings- samgangna við það auk þess sem net hjólreiðastíga og hjólaskýla verður byggt upp. Sérstaklega á að huga að bílastæðakröfum, samgöngu- tengingum innan háskólasvæðisins og tengingum við svæði nýs Land- spítala og svæði Háskólans í Reykja- vík. Tengingar yfir Suðurgötu verða skoðaðar sérstaklega og gatan end- urhönnuð með mannlíf á háskóla- svæðinu og umhverfisgæði í huga. Lýsir Reykjavíkurborg sig tilbúna til að kosta endurgerð götunnar í samræmi við nýja hönnun. Í höfn Samkomulagið handsalað. Framtíðar- sýn á há- skólasvæðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.