Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Persónulega finnst mér þetta vera besta ár lands- liðsins. Einu vonbrigðin voru jafnteflið á móti Belgíu en við náðum að leggja mjög sterkar þjóðir að velli í fyrsta inn þegar við unnum Dani og Svía á Algarve-mótinu sem og Kína og þá náðum við að vinna Norðmenn í mótsleik sem var mjög mik- ilvægt og setti okkur í kjörstöðu í riðlinum. Eini leikurinn sem tapaðist á árinu var á móti Banda- ríkjunum, besta liði heims, í úrslitaleik á mótinu í Algarve. Það var samt hörkuleikur og ég get ekki annað en verið virkilega ánægður með árið,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvenna- landsliðsins í knattspyrnu, við Morgunblaðið. Stelpurnar hans Sigurðar Ragnars eru í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í gær. Það er sama sæti og liðið var í á haustdögum, besta staða þess frá upphafi, en Ísland hefur fært sig upp um tvö sæti frá því á sama tíma í fyrra. Íslenska liðið lék níu landsleiki á árinu 2011. Það vann sjö þeirra, gerði eitt jafntefli og tapaði ein- um, umræddum úrslitaleik gegn Bandaríkjunum, 2:4. Liðið skoraði 19 mörk gegn 7 í þessum níu leikjum. Miklu fleiri lið orðin góð „Þegar maður skoðar heimslistann núna og ber hann saman við listann fyrir nokkrum árum sér maður að það eru miklu fleiri lið orðin góð. Stóru liðin hafa verið að misstíga sig og í dag er orðið lít- ið um einhverja létta leiki,“ sagði Sigurður. Framundan er spennandi ár hjá kvennalands- liðinu en líkt og undanfarin ár tekur það þátt í Alg- arve-mótinu í febrúar og tekur síðan upp þráðinn í undankeppni EM í apríl en Ísland trónir á toppi riðilsins, er með þriggja stiga forskot á Belga en þjóðirnar mætast í Belgíu í byrjun apríl. „Ég hef boðað 40 manna hóp á milli jóla og ný- árs sem gæti orðið framtíð landsliðsins næstu þrjú árin. Auðvitað geta fleiri leikmenn dottið inn, við ætlum að fara yfir framtíðarmarkmiðin og dag- skrá landsliðsins. Við ætlum að halda áfram að bæta okkur og stefnum hærra. Framtíð landsliðs- ins er björt. Það eru ungir og efnilegir leikmenn að koma og okkar bestu leikmenn að gera enn betri hluti.“ Þrjár í átta liða úrslitum Meistaradeildar „Við erum til að mynda með þrjá leikmenn í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og það er greinilegt að okkar leikmenn eru orðnir mjög eft- irsóttir. Íslenskir leikmenn hafa skapað sér orð- spor. Þeir eru duglegir, vinnusamir, góðir í fót- bolta og hafa náð góðum árangri,“ sagði Sigurður og er ekki í nokkrum vafa um að fjölgun atvinnu- manna hefur gert landsliðið enn betra. „Stór hluti af því að liðinu gengur vel er að við erum komnir með marga atvinnumenn sem geta einbeitt sér að íþróttinni allt árið,“ sagði Sigurður. „Besta ár landsliðsins“  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, bjartsýnn fyrir hönd liðsins  Ísland endar árið í 15. sæti heimslistans og í 9. sæti í Evrópu Ljósmynd/Algarvephotopress Fagnað Íslenska kvennalandsliðið lagði nokkrar af sterkustu þjóðum heims á árinu og hér fagna Katrín Ómarsdóttir og fleiri marki í sigurleik gegn Svíum. LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2011 íþróttir Landsliðið Guðmundur Þ. Guðmundsson er bjartsýnn fyrir Evrópumótið í Serbíu þrátt fyrir fjar- veru Ólafs Stefánssonar. Vel mannaðir í þeirri stöðu. Ánægður með dagskrána fram að EM 4 Íþróttir mbl.is Mennta- og menningarmálaráðu- neytið hefur ákveðið að veita Hand- knattleikssambandi Íslands þriggja milljóna króna styrk til að standa straum af kostnaði við þátttöku kvennalandsliðsins í heimsmeist- aramótinu í Brasilíu fyrr í þessum mánuði. Frá þessu er skýrt á vef HSÍ en þar kemur fram að sambandið hafi fengið bréf frá ráðuneytinu þar sem liðinu er óskað til hamingju með frábæran árangur á HM í Brasilíu. Hann gefi fyrirheit um framtíðina og sé mikil hvatning fyr- ir afreksíþróttir kvenna. vs@mbl.is Þriggja millj- óna styrkur til HSÍ vegna HM Ryan Giggs, velska goðsögnin í liði Englands- meistara Man- chester United, komst á marka- listann í úrvals- deildinni þetta tímabilið með því að skora gegn Fulham á Craven Cottage í vik- unni. Honum hefur þar með tekist að skora öll 22 tímabilin sem hann hefur leikið með Manchester Unit- ed í efstu deild. „Ég var að byrja að verða áhyggjufullur að ná ekki að skora á þessu tímabili. Á síðustu leiktíð skoraði ég í einum af fyrstu leikjum okkar svo ég hafði engar áhyggjur eftir það,“ sagði Giggs við MUTV-sjónvarpið. gummih@mbl.is Var orðinn áhyggjufullur Ryan Giggs Knattspyrnu- maðurinn Hann- es Þ. Sigurðsson verður ekki áfram í her- búðum rússneska liðsins Spartak Nalchik. Samn- ingur Hannesar við félagið rann út á dögunum en hann yfirgaf FH í ágúst og gerði samning við liðið sem gilti til 15. desember. Hannes lék sex leiki með liðinu í rússnesku úrvalsdeildinni en það er frá borg- inni Nalchik, skammt frá landa- mærum Rússlands og Georgíu í Kákasusfjöllum. „Það fer vonandi allt í gang hjá mér í janúar. Ég stefni á að spila áfram erlendis en hvar er ekki ljóst ennþá,“ sagði Hannes við Morgun- blaðið í gær. gummih@mbl.is Hannes yfir- gefur Kákas- usfjöllin Hannes Þ. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.