Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012 „Það hefur verið óvenjumikið að gera miðað við árstíma, venjulega er rólegt á þessum tíma,“ sagði Elvar Örn Magnússon, bifreiðasmiður, á pústverkstæðinu Púst hjá Einari. Þar vinnur fullskipað lið við að laga biluð pústkerfi á bílum. „Það hefur allt verið fullt frá áramótum. Við vorum með opið á milli jóla og nýárs og þá var mikið að gera en enn meira nú,“ sagði Elvar. Hann sagði annirnar hafa aukist þegar snjóaði. Elvar sagði greinilegt að menn væru að reka bílana niður og skemma pústkerfin. Ástæðan sé klakinn á götunum, snjóhryggir sem fólk reyni að troðast yfir og ófærðin almennt. Svo er að sjá sem of lágt sé undir bílana miðað við ástandið á götunum og eins kann að vera að bílstjórarnir oftreysti ökutækjum sínum í ófærðinni. Elvar sagði oft og tíðum hægt að laga skemmdirnar. „Það er um að gera fyrir fólk að koma strax og eitthvað bilar í staðinn fyrir að draga pústið á eftir sér um bæinn. Þá getur það eyðilagst alveg.“ gudni@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Pústkerfin púsluð saman eftir átökin við ófærðina Morgunblaðið/Árni Sæberg Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fram kom í Kastljósi Ríkisútvarps- ins á miðvikudag að búið væri að leysa mál öryrkjans Alberts Jensen sem hóf mótmælasvelti vegna óánægju með þá umönnun sem hon- um bauðst hjá velferðarsviði Reykja- víkurborgar. Albert sagði í gær að þetta væri ekki rétt, sennilega hefði Kastljósið fengi rangar upplýsingar. Málið væri enn óleyst. „Heiða í Vinun sagði mér í dag að ekki hefði verið gengið að hennar tilboði,“ sagði Albert. Fulltrúar borgarinnar hefðu sagt að ekki væri hægt að ganga að tilboði Vinunar sem er einkarekin ráðgjafar- og þjónustumiðstöð. Að- spurður sagðist Albert, sem er á ní- ræðisaldri, þó ekki hefja strax mót- mælasvelti á ný. Hann ætlaði að gefa mönnum færi á að leysa deiluna enda væri um algert neyðarúrræði að ræða. Albert er með mænuskaða, hann þjáist af ofnæmi og segir starfs- fólk Vinunar geta veitt þá sérhæfðu þjónustu sem hann þurfi en ekki starfsmenn velferðarsviðsins. Alls vinna sem stendur 18 manns hjá Vinun, margir þó í hlutastarfi, tveir eru hjúkrunarfræðingar en hin- ir með margvíslega menntun á sviði umönnunar. Skjólstæðingarnir eru nú liðlega 30, margir kaupa þjón- ustuna beint, oft tímabundið og um- fang þjónustunnar er misjafnt. Einn- ig hefur Vinun gert samninga við borgina. Gunnhildur Heiða Axelsdóttir, framkvæmda- stjóri miðstöðv- arinnar, segir að margir langveikir og fatlaðir fái ekki þjónustu sem þeir eigi í reynd rétt á, um sé að ræða stórt gat í lög- bundinni velferð- arþjónustu hér- lendis og hafi lengi verið. En hvað kostar þjónusta Vinunar? „Við tökum mið af launum á mark- aðnum og seljum almenna þjónustu á 3.000 til 3.200 kr. á tímann í dagvinnu, en svo þurfum við að borga launa- tengd gjöld sem eru alls um 43% af töxtunum. Hins vegar höfum við aldrei skilið viðmiðanir borgarinnar, þeirra taxtar eru svo lágir.“ Stella Víðisdóttir er sviðsstjóri vel- ferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Hún segir að allmargir þurfi afar mikla umönnun en þörfin sé ávallt metin hjá hverjum fyrir sig eftir ákveðnum reglum. Alls séu nú um 100 þjónustusamningar í gildi hjá sviðinu við fólk sem kjósi fremur að fá peninga til að kaupa þjónustu en fá hana hjá starfsmönnum sviðsins. Stella segist ekki ræða mál ákveð- inna skjólstæðinga en hún fagni um- ræðunni. Vantar ramma til að vinna eftir „En hún þarf auðvitað að vera bæði fagleg og málefnaleg,“ segir Stella. „Það er mjög haldið á lofti hugtakinu notendastýrð, persónuleg aðstoð sem gengur út á að fólk fái fjármagnið, geti keypt sér þjónustu, valið hver veiti hana og hvenær. Þetta er auðvitað framtíðin.“ Hún segir að beðið sé eftir leiðbeiningum eða handbók frá nefnd velferðarráðu- neytisins til þess að vinna eftir, öll sveitarfélög bíði eftir henni. Þá verði hægt að móta reglur, m.a. um kaup og annan kostnað. – En þarf ekki að hlusta á rödd skjólstæðingsins, ekki síst ef hann er mjög örvæntingarfullur? „Við erum að vinna í því að leysa slík mál, höfum reynt að leggja aukna áherslu á samráð við notendur, þann- ig að hann geti keypt þjónustu af þriðja aðila. Við reynum alltaf að mæta fólki ef það er óánægt, reynum að leysa úr því með samtölum.“ Segir deilu sína við borgina enn óleysta  Öryrkinn Albert Jensen er hættur mótmælasvelti í bili og hyggst veita mönnum færi á að leysa málið  Hann fékk að vita í gær að velferðarsvið Reykjavíkurborgar gæti ekki gengið að tilboði Vinunar Albert Jensen ÚTSALA Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Verðdæmi: áður: nú: Kjólar 9.900 4.950 Kápa/ermar 13.900 6.950 Poncho 6.900 3.450 Bolir 3.900 1.950 Buxnaleggings 10.900 5.450 Allt nýjar og nýlegar vörur 50% afsláttur Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík sími 568 2870 | www.friendtex.is ÚTSALA ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR SOO.DK barnafötin seld með 40% afslætti Opið: mán.- fös. kl. 11-18 – lau. kl. 11-14 N Ú ER BA RA H Æ GT AÐ G ER A GÓ Ð KA UP LANGUR LAUGARDAGUR LAUFLÉTT ÚTSÖLUSTEMNING Í MIÐBORGINNI! VELKOMIN Í MIÐBORGINA OKKAR. ÁVALLT! VERÐLAUNAHLJÓMSVEITIN WHITE SIGNAL VERÐUR Á FARALDSFÆTI FRÁ GÖMLU HÖFNINNI KL. 13:30 AÐ HALLGRÍMSKIRKJU OG HLEMMI - nýr auglýsingamiðill 569-1100 Um 15 þúsund manns hafa komið í Bláfjöll það sem af er vetri. Opið hef- ur verið í 20 daga, þar af í 13 daga fyrir almenning. Einar Bjarnason rekstrarstjóri á Skíðasvæðunum í Bláfjöllum, segir aðsóknina búna að vera góða og nýtingu mjög góða, en í allan fyrravetur var aðeins opið fyrir almenning í fimm daga. Nýting á skíðasvæðunum í Blá- fjöllum hefur verið misjöfn síðustu ár. Sum árin hefur skortur á snjó komið í veg fyrir að höfuðborg- arbúar hafi getað rennt sér þar á skíðum. Nú er nægur snjór og ekk- ert sem bendir til að hann sé á förum í bráð. Það er því bara veðrið sem getur komið í veg fyrir að þar sé op- ið. Miðað við veðurspá næstu daga er hætt við að það verði ekki hægt að halda opnu alla daga í næstu viku. Um 15 þúsund gestir í Blá- fjöllum í vetur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.