Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012 Sudoku Frumstig 3 8 1 9 4 6 7 4 1 5 8 7 6 6 7 9 8 5 6 1 6 8 4 4 1 9 5 2 3 9 4 2 8 1 7 8 3 7 4 5 1 2 5 4 3 1 5 1 2 3 9 1 4 5 6 3 9 1 7 6 6 3 9 3 7 2 2 1 9 3 2 5 5 3 4 2 9 3 2 4 6 5 1 7 8 4 1 6 8 2 7 5 9 3 5 7 8 3 1 9 6 4 2 2 5 4 1 3 6 9 8 7 6 9 7 5 8 2 4 3 1 3 8 1 9 7 4 2 6 5 1 4 5 7 9 8 3 2 6 7 2 3 6 4 1 8 5 9 8 6 9 2 5 3 7 1 4 4 1 6 5 8 3 7 9 2 2 8 9 7 6 4 5 1 3 5 3 7 2 1 9 4 6 8 9 4 1 8 7 5 2 3 6 6 5 8 3 4 2 9 7 1 7 2 3 1 9 6 8 4 5 8 7 2 4 3 1 6 5 9 1 9 4 6 5 8 3 2 7 3 6 5 9 2 7 1 8 4 4 2 7 6 8 5 9 1 3 8 9 1 3 7 2 6 4 5 5 3 6 4 1 9 8 2 7 2 1 9 7 5 4 3 6 8 7 4 3 8 9 6 1 5 2 6 5 8 2 3 1 7 9 4 3 6 5 9 2 8 4 7 1 1 7 4 5 6 3 2 8 9 9 8 2 1 4 7 5 3 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 6. janúar, 6. dagur ársins 2012 Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.) Nú sjá allir Jónar nema einn forsetaembættið í hillingum. „Þjóðin þarf að finna hæfa mann- eskju, konu eða karlmann, sem er vel menntuð og vel gerð og er til fyrir- myndar og ég er ekki þessi mann- eskja sem verið er að leita að,“ sagði Jón Ólafsson í Skífunni og vatns- útflytjandi með meiru, við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, eftir að hafa platað fólk upp úr skónum með yfir- lýsingu um forsetaframboð á skemmtun á nýársdagskvöld. x x x Jón borgarstjóri virðist hafa mis-skilið eitthvað talið um næsta forseta, stillti sér ábúðamikill upp fyrir framan Kaþólsku kirkjuna á Landakoti og sagði við fréttamann Stöðvar 2 að hann vildi helst vera bæði borgarstjóri og forseti. Aðal- atriðið væri að þetta yrði flott „show“. x x x Helstu álitsgjafar þjóðarinnarþreytast ekki á að stinga upp á næsta forseta og sínum augum lítur hver á silfrið. Sumir tala í pörum og nefna Jón og Bryndísi eða Jónínu og Gunnar eða Jóhönnu og Steingrím eða Helga og Hrannar eða Þóru og Sigmar. Víkverji hefur ekki heyrt talað um Jón og Óskar af þessu til- efni, en Páll Óskar og Steinunn Ólína hafa dúkkað upp í umræðunni. Þá eru ónefndir vammlausu þingmenn- irnir Atli, Álfheiður, Árni Þór, Ás- mundur Einar, Birgitta, Birkir Jón, Björn Valur, Eygló, Helgi, Huld, Jón, Jónína Rós, Katrín J., Lilja Raf- ney, Lilja, Magnús Orri, Margrét P., Margrét T., Mörður, Oddný, Ólína, Sigríður Ingibjörg, Sigurður Ingi, Siv, Skúli, Steingrímur, Svandís, Val- gerður, Vigdís, Þór, Þráinn, Þuríður og Ögmundur. x x x Heyrst hefur að margir hafi lagthart að hinum og þessum að bjóða sig fram, en hvernig sem Vík- verji reynir að túlka áhuga fólks á starfinu kemst hann ávallt að sömu niðurstöðu. Ótrúlega margir halda að þeir séu hinir einu réttu en Víkverji hefur á tilfinningunni að brennt barn forðist eldinn. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skrýtinn, 8 bjargbúi, 9 fýlupoki, 10 mánuð, 11 tré, 13 kvæðið, 15 gráta, 18 sjá eftir, 21 upptök, 22 hæð, 23 eldstæði, 24 þekkingin. Lóðrétt | 2 rándýr, 3 urgi, 4 stjúpsonur Þórs, 5 sigr- uðum, 6 sleipur, 7 vangi, 12 grænmeti, 14 skessa, 15 al- ur, 16 matnum, 17 karlfugl- inn, 18 dramb, 19 krús, 20 nytjalanda. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 ávala, 4 bósar, 7 ergið, 8 ólífi, 9 arð, 11 aurs, 13 hali, 14 kokka, 15 hrjá, 17 fólk, 20 óar, 22 erfið, 23 urgur, 24 kútur, 25 linar. Lóðrétt: 1 áseta, 2 alger, 3 arða, 4 blóð, 5 skíra, 6 reiði, 10 rekja, 12 ská, 13 haf, 15 hrekk, 16 jafnt, 18 ólgan, 19 kúrir, 20 óður, 21 rusl. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tveir Frakkar. S-Enginn. Norður ♠963 ♥K8762 ♦ÁK10 ♣52 Vestur Austur ♠G4 ♠ÁK852 ♥103 ♥-- ♦76432 ♦DG85 ♣10973 ♣KD64 Suður ♠D107 ♥ÁDG954 ♦9 ♣ÁG8 Suður spilar 4♥ dobluð. Christophe Grosset og Cédric Lo- renzini eru ungir Fransmenn, snjallir í vörn. Þeir voru með spil AV í leik við Serba á EM ungmenna í sumar. Eftir opnun suðurs á 1♥, tókst Lo- renzini í austur koma spaðalitnum á framfæri í fyrsta hring og doblaði svo 4♥ til að bjóða upp á láglitina líka. En Grosset hugnaðist ekki fimmta þrepið, passaði og kom út með ♠G. Á hinu borðinu tók Serbinn í austur tvo efstu í spaða, spilaði svo ♠2 til að biðja um lauf til baka. Nema hvað! Nema það, að sagnhafi rúllaði niður öllum trompunum og þvingaði austur í láglitunum í þriggja spila endastöðu. Lorenzini sá þennan möguleika fyrir og pantaði tígul með ♠8, hæsta spilinu. Grosset hlýddi möglunarlaust og sleit þar með sambandið við blind- an. 6. janúar 1887 Íslendingafélagið í Kaup- mannahöfn minntist þess að öld var liðin síðan Bjarni Thorarensen skáld og amt- maður fæddist. „Þetta er víst fyrsta 100 ára minningarhátíð sem haldin hefur verið eftir ís- lenskan mann,“ sagði Norður- ljósið. 6. janúar 1923 Halldór Kiljan Marie Pierre Laxness var „skírður og fermdur og gerðist meðlimur hinnar heilögu kaþólsku kirkju,“ eins og Halldór sagði sjálfur, en hann var þá í Cler- vaux-klaustri í Lúxemborg. 6. janúar 1967 Þátturinn Munir og minjar var á dagskrá Sjónvarpsins í fyrsta sinn. Hann naut mikilla vinsælda. Umsjónarmaðurinn, Kristján Eldjárn þjóðminja- vörður, var kosinn forseti Ís- lands árið eftir. 6. janúar 2003 Mánudagsútgáfa Morgun- blaðsins hófst „til þess að bæta mjög þjónustu blaðsins við les- endur þess,“ eins og sagði í rit- stjórnargrein. 6. janúar 2004 Mikill viðbúnaður var þegar breiðþota frá United Airlines lenti á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í öðrum hreyfl- inum. Lendingin gekk vel. Í flugvélinni var 231 farþegi og 14 manna áhöfn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ég ætla að eyða deginum á þrettándagleði í Vest- mannaeyjum,“ segir María Þórsdóttir, aðalbókari, sem er fertug í dag. Hún segist annars alltaf gera eitthvað í tilefni af afmælinu sínu til þess að lyfta sér upp en það sé þó ekkert sérstakt skipulagt að þessu sinni enn sem komið er. „Það kemur bara í ljós,“ segir hún. María er frá Vestmannaeyjum en hefur búið í Reykjavík um það bil hálfa ævina. Í Eyjum á hún fjölmarga ættingja auk þess sem foreldrar hennar búa þar. „Ég get í raun bara sagt að fólkið mitt sé í Eyjum,“ segir María. Aðspurð segist hún heim- sækja æskuslóðirnar reglulega og hafi til að mynda Þjóðhátíð í Eyjum til þess og að auki til að mynda þrettándagleðina. „Ég segi alltaf að Vestmannaeyingar haldi upp á afmælisdaginn minn,“ segir María hlæjandi og vísar þar til þrettándagleðinnar. Lengi vel eyddi hún jólunum í Eyjum líka ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum þrátt fyrir að vera flutt til Reykjavíkur. Nú um áramótin var hún ennfremur í fyrsta skipti ekki í Eyjum. Aðspurð hvernig sú upplifun hafi verið segir hún að hún hafi óneitanlega verið skrítin. hjorturjg@mbl.is María Þórsdóttir er fertug í dag Fagnað í Vestmannaeyjum Flóðogfjara 6. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.22 0,5 7.37 4,1 13.54 0,5 19.54 3,7 11.14 15.54 Ísafjörður 3.21 0,4 9.27 2,2 16.00 0,3 21.45 1,8 11.53 15.25 Siglufjörður 5.37 0,3 11.52 1,3 18.16 0,1 11.37 15.06 Djúpivogur 4.49 2,0 11.03 0,3 16.52 1,8 23.03 0,2 10.51 15.15 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú vinnur þér inn punkta með því að neita að taka þátt í vondum siðum sem skaða samfélagið. Allt er á rúi og stúi heima en þú heldur ró þinni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú munt verða margs vísari ef þú heimsækir nágranna eða vini í dag. Skyn- semin yfirgefur þig nógu lengi til þess að ná að grípa tækifærið og segja eitthvað fárán- legt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Eitthvað sem þú hefur unnið hörð- um höndum að er nú að koma upp á yfir- borðið. Samræður við foreldra eða aðra fjöl- skyldumeðlimi fá aukið vægi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það virðist eiga vel við þig að hafa mörg járn í eldinum. Ef þú ert sjálfur ánægð/ ur verða aðrir það ósjálfrátt líka. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert mjög í sviðsljósinu um þessar mundir svo mikið ríður á að þú sýnir þínar bestu hliðar. Stappaðu stálinu í þá sem þess þurfa. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú verður að taka á honum stóra þín- um til þess að klára þau verkefni sem þú hef- ur tekið að þér. Hlustaðu vandlega þegar ást- vinir tala og hlustaðu á allt sem þeir hafa fram að færa. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú færð óvænta athygli sem þú kærir þig alls ekki um. Sjaldan veldur einn þá tveir deila, eins og þú veist manna best. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú verður kynntur fyrir persónu sem getur lagt þér lið með ýmsum hætti. Amor er á sveimi, ef til vill verður verðir á vegi hans? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Borgaðu símreikninginn og sinntu erindum sem hindrað gætu samskipti þín við aðra. Skelltu þér á eitthvert námskeið. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ekki gera þér upp skoðanir á mönnum og málefnum fyrirfram. Sá eini sem tapar á lausmælgi ert þú sjálf/ur. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þótt fortíðin sé liðin geymir hún oft vegvísa fyrir framtíðina. Leggðu spilin á borðið, þér líður svo miklu betur eftir á. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Gættu þess að láta ekki telja þig á neitt sem þú vilt ekki. Stundum leggur þú meira til en það sem þú færð til baka. Stjörnuspá 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Rd7 4. 0-0 Rgf6 5. e5 dxe5 6. Rxe5 a6 7. Rxd7 Rxd7 8. Be2 e5 9. Rc3 Bd6 10. d3 f5 11. Bh5+ g6 12. Bf3 f4 13. He1 0-0 14. b4 Rf6 15. Bb2 cxb4 16. Rd5 He8 17. d4 e4 18. Rxf6+ Dxf6 19. Bxe4 Hf8 20. Df3 Hb8 21. Db3+ Kg7 22. Bxb7 Dh4 23. Bxc8 Hbxc8 24. d5+ Kh6 25. He4 Hf5 26. Dd3 Hh5 27. h3 Hf8 28. Dd4 Hf7 29. He6 Hg5 30. Kf1 Bb8 31. De4 Ba7 32. Bd4 Staðan kom upp í 1. deild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fór fram í Rimaskóla sl. haust. Stef- án Bergsson (2.135) hafði svart gegn Magnúsi Pálma Örnólfssyni (2.170). 32. … Bxd4! 33. Dxd4 Hxg2! 34. Hd1 Dxh3 35. Ke2 Dh4 36. Kf1 Dg4 37. f3 Dxf3+ 38. Ke1 Hh2 39. Hxg6+ Kxg6 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.