Morgunblaðið - 04.02.2012, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins
töpuðu alls 257,3 milljörðum króna á
árunum 2008-2010 eða meira en
helmingi af samanlögðu tapi allra ís-
lensku lífeyrissjóðanna. Lífeyr-
issjóður starfsmanna ríkisins (LSR)
og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
(LH) töpuðu samtals 101,5 millj-
örðum á þessum árum. Lífeyr-
issjóður verzlunarmanna (LV) tapaði
80,3 milljörðum og Gildi lífeyrissjóður
tapaði 75,5 milljörðum.
Tap lífeyrissjóðanna varð fyrst og
fremst á árinu 2008 en afleiðingarnar
komu ekki að fullu fram fyrr en á ár-
unum 2009 og 2010. Tapið liggur
einkum í tapi á skuldabréfum banka
og sparisjóða, skuldabréfum fyr-
irtækja, innlendum hlutabréfum og
gjaldmiðlavarnarsamningum.
Skýrslu úttektarnefndar lífeyrissjóð-
anna má lesa á heimasíðu Lands-
samtaka lífeyrissjóða (ll.is).
„Verulegar efasemdir“
Í kaflanum um LSR og LH kemur
m.a. fram að það veki athygli úttekt-
arnefndarinnar að af bókfærðri stöðu
skuldabréfaeignar sjóðanna tveggja í
bönkum og sparisjóðum í lok ársins
2008 voru rúmlega 11,5 milljarðar
víkjandi lán eða 37% af skuldabréfa-
eign sjóðanna í fjármálastofnunum.
Öll víkjandi lán voru afskrifuð um leið
og bankarnir féllu. Nefndin kveðst
hafa „verulegar efasemdir“ um þess-
ar fjárfestingar.
Alls afskrifuðu LSR og LH skulda-
bréf banka og sparisjóða upp á rúm-
lega 20 milljarða á árunum 2008-2010.
Þá töpuðu sjóðirnir 40.807 milljónum
króna (40,8 milljörðum) á innlendri
hlutabréfaeign á árunum 2006-2009.
Tapið á árinu 2008 var 50,4 milljarðar
en hagnaður hinna áranna vó það upp
að hluta.
Úttektarnefndin segir m.a. að ekki
megi skilja athugasemdir hennar svo
að tap LSR og LH sé aðallega stjórn-
endum að kenna heldur stafi það
„fyrst og fremst af afleiðingum falls
bankanna og á rót sína að rekja til or-
saka þess“. Margt bendi þó til þess að
tapið hefði mátt verða minna „hefðu
stjórnendurnir gætt að sér og hagað
fjárfestingarstefnu sjóðanna meira í
ætt við þá varfærni sem lífeyr-
issjóðalögin og lögin um þessa sjóði
mæla fyrir um“.
Innlend hlutabréf hrundu
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
(LV) tapaði á fjórum árum 36,5 millj-
örðum á innlendri hlutabréfaeign
sinni. Tapið á hlutabréfunum var
mest 2008 eða 47,3 milljarðar. Skýr-
ingin er fyrst og fremst bankahrunið í
október 1008 og aðdragandi þess.
Nefndin telur að lífeyrissjóðunum
hafi ekki verið nægilega ljós hættan
af of mikilli eign í tengdum fyr-
irtækjum. Á tímabilinu sem var skoð-
að nam t.d. hlutabréfaeign LV í
Kaupþingi 33-48% af innlendri hluta-
bréfaeign sjóðsins. Þá átti LV hluta-
bréf í Bakkavör Group, Skiptum hf.
og Exista hf. Bakkavör og Skipti
tengdust Kaupþingi hf. í gegnum
eignarhluta Exista hf.
Einnig afskrifaði LV skuldabréf
banka og sparisjóða upp á 10,8 millj-
arða á árunum 2008-1010. Þá voru
skuldabréf fyrirtækja afskrifuð sam-
tals um tæpa 13 milljarða á árunum
2008 og 2009 hjá LV.
Gildi lífeyrissjóður afskrifaði
skuldabréf banka og sparisjóða á ár-
unum 2008-2010 samtals um 9,6 millj-
arða og fyrirtækjaskuldabréf um
samtals 13 milljarða á sama tíma. Þá
tapaði Gildi 38,6 milljörðum af inn-
lendri hlutabréfaeign á fjórum árum.
Mest var tapið á árinu 2008 eða sam-
tals 45,1 milljarður króna.
Tapið gat verið minna
Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins töpuðu samtals 257,3 milljörðum á árunum
2008-2010 Úttektarnefnd bendir á margt sem betur mátti fara að hennar mati
Heildartap einstaka lífeyrissjóða í m.kr.
(Framhald:)
Almenni EFÍA Esj.stm Esj. Festa Frjálsi Gildi lsj. Íslenski Kjölur Lsj. Lsj. Lsj. Lsj. Lsj. LSA LSBÍ
lsj. Hafnarfj. Reykjan. lsj. lsj. lsj. lsj. Akran. bankam. bænda Nesk. Rang.
Skuldabréf banka og sparisjóða 9.105 143 239 58 6.128 2.414 9.636 354 159 12 582 691 229 287 121
Skuldabréf fyrirtækja 5.997 282 195 4.366 1.499 13.081 102 128 3 541 336 5 248 57 97
Innlend hlutabréf 3.972 103 419 87 5.646 1.074 44.433 303 89 15 254 156 18 59 191
Innlendir hlutabréfasjóðir 6.040 673 62 209 6.568 1.118 216 63 856 1.373 3 132 43 788
Innlendir skuldabréfasjóðir 4.813 2.784 30 29 480 1.194 6.355 1.828 128 1.837 1.358 180 52 14
Innlend veðskuldabréf
Framtakssjóðir
Erlend veðbréf 56 40 1.277 76
Gjaldmiðlavarnarsamn. (175) -269 2.824 -843 7.113 201
Samtals 29.658 3.985 883 236 19.709 11.946 75.540 8.232 2.420 221 4.146 3.914 8 807 699 1.211
Lsj. stm Lsj. stm LsRb LSR og LSS Lsj. stm. Lsj.Tannl. Lífsverk LV Lvest Lsj. Samein. Stafir Stapi Söfnunar- Alls
Húsav. Kópav. LH Vestm. fél. Vestm. lsj. lsj. lsj. sjóður
Skuldabréf banka og sparisjóða 23 1.164 20.262 1.987 5.154 10.799 1.212 1.219 5.486 6.019 13.729 2.911 100.111
Skuldabréf fyrirtækja 59 103 796 21.216 1.096 4.278 12.975 2.446 592 5.607 7.212 4.947 2.041 90.317
Innlend hlutabréf 130 79 50.052 919 37 1.620 46.857 5.174 2.129 10.445 14.872 4.158 5.473 198.764
Innlendir hlutabréfasjóðir 97 74 431 102 2.519 294 109 21.770
Innlendir skuldabréfasjóðir 11 65 70 71 1.360 458 868 299 602 24.886
Innlend veðskuldabréf 116 503 619
Framtakssjóðir 421 421
Erlend veðbréf 978 647 1.056 189 672 774 594 36 6.395
Gjaldmiðlavarnarsamn. (175) 8.528 359 664 9.651 827 3.209 558 3.580 36.402
Samtals 70 418 2.299 101.528 7.302 597 16.159 80.282 10.441 3.940 25.419 29.435 27.719 10.461 479.685
Heimild: Úttektarskýrsla LL
Ýmsu ábótavant
» Úttektarnefndin segir flest
benda til þess að áhættustýr-
ingu hafi verið ábótavant hjá líf-
eyrissjóðunum fyrir fall íslensku
fjármálafyrirtækjanna.
» Úttektarnefndin bendir einnig
á að svo virðist sem aðilar innan
lífeyrissjóðakerfisins hafi ekki
gert sér nægilega grein fyrir
áhættunni sem felst í því að fjár-
festa um of í tengdum aðilum.
Í skýrslu úttektarnefndarinnar
kemur m.a. fram að Þorgeir Eyj-
ólfsson, fyrrverandi forstjóri LV,
og Gunnar Páll Pálsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður LV, hafi
rætt hvort eðlilegt væri að Gunnar
Páll gegndi áfram stjórnarstörfum
í Kaupþingi banka hf. eftir að hann
var orðinn formaður stjórnar líf-
eyrissjóðsins.
Gunnar Páll sat þó áfram í stjórn
bankans allt þar til bankinn féll og
segir í skýrslunni að afstaða félaga
hans í stjórn VR hafi ráðið ein-
hverju um það. Hann sagði í viðtali
við úttektarnefndina að VR hefði
fengið Siðfræðistofnun HÍ til að
greina siðferðileg álitaefni varð-
andi stjórnarsetu fulltrúa VR í LV
og félögum sem sjóðurinn átti hlut
í. Siðfræðistofnun benti á að for-
maður VR gæti lent í trúverðug-
leikavanda að þessu leyti. Fjallað
var um málið í trúnaðarráði VR en
ákveðið að aðhafast ekki.
„Þeir Þorgeir voru þó sammála
um það, að eftir á að hyggja hefði
stjórnarseta Gunnars Páls í Kaup-
þingi banka verið óheppileg,“ segir
í skýrslunni.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
(LV) kveðst í tilkynningu fagna út-
komu skýrslu úttektarnefndar
Landssamtaka lífeyrissjóða. LV
segir að beint tjón lífeyrissjóðsins
vegna efnahagshrunsins hafi verið
metið um 50 milljarðar. Lesa má til-
kynninguna í heild á heimasíðu LV,
www.live.is. gudni@mbl.is
Stjórnarsetan í
bankanum var
óheppileg
„Það var ákveðið
fyrir nokkru að
hafa sérstakan
stjórnarfund á
mánudaginn til
þess að ræða
innihald skýrsl-
unnar,“ sagði Ei-
ríkur Jónsson,
kennari og
stjórnarmaður í
LSR, um skýrslu
úttektarnefndarinnar um lífeyr-
issjóðina. Eiríkur var einnig í stjórn
lífeyrissjóðsins á árunum 2006-2009
og var formaður stjórnarinnar árið
2009.
gudni@mbl.is
Stjórn LSR fundar
um skýrsluna
Eiríkur Jónsson
Þegar stutt var eftir af spurningatíma blaða- og frétta-
manna tók Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi stjórn-
arformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, til máls.
Víglundur spurði formann úttektarnefndarinnar,
Hrafn Bragason, hvort hann mætti spyrja hann einnar
spurningar þó svo að hann væri ekki fjölmiðlamaður.
Þrátt fyrir neitun Hrafns lagði Víglundur fram þá
spurningu sína hver væri, að mati Hrafns, í eðli sínu
munurinn á því að kaupa víkjandi lán á föstum vöxtum í
tilteknu fjármálafyrirtæki, sem væri fyrir framan
hlutabréf í skuldaröðinni, eða að kaupa hlutabréf. „Þú
hefur ekki neitt markaðsvirði þegar þú átt víkjandi lán
eftir því sem ég best veit og þú hafðir það ekki,“ svar-
aði Hrafn og bætti við að hvergi í lögunum væri talað
um víkjandi lán, heldur einungis skuldabréf.
Spurningu sína setti Víglundur fram, að eigin sögn,
vegna þess að Hrafn hafði viðrað á fundinum lögskýr-
ingu sína á hugsanlegum lögbrotum stjórnarmanna í
lífeyrissjóðunum vegna kaupa á víkjandi lánum í til
dæmis bönkum.
Morgunblaðið/Kristinn
Spurning Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi stjórnarformaður LV, spurði Hrafn Bragason, formann úttekt-
arnefndarinnar, út í lögskýringar hans á kaupum sumra lífeyrissjóðanna á víkjandi lánum í t.d. bankastofnunum.
Tekist á um kaup sjóðanna á víkjandi lánum
Úttekt á lífeyrissjóðunum
Skannaðu kóðann
til að lesa skýrsl-
una og tengt efni.
„Við tökum að sjálfsögðu allt alvar-
lega sem þarna stendur og munum
fara yfir þetta,“ sagði Vilhjálmur Eg-
ilsson, formaður stjórnar Gildis líf-
eyrissjóðs, um skýrslu úttektar-
nefndarinnar.
Vilhjálmur sagði að skýrslan yrði
örugglega rædd á næsta stjórnar-
fundi Gildis og hann teldi víst að hún
yrði einnig til umfjöllunar á full-
trúaráðsfundi. Vilhjálmur sagði að
hann og Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, hefðu átt frumkvæði að því á
fundi Landssamtaka lífeyrissjóða að
fengnir yrðu óháðir aðilar til að gera
úttekt sem þessa á lífeyrissjóðunum.
„Við viljum nota allt sem þarna
kemur fram til að bæta störf okkar,“
sagði Vilhjálmur. Hann sagði að líf-
eyrissjóðirnir hefðu þegar horfst í
augu við tapið á árunum 2008-2010.
„Við setjum þetta í ákveðið sam-
hengi við það sem
gerðist á árunum
á undan. Ef við
hjá Gildi lítum yf-
ir tíu ár þá er
raunávöxtunin að
jafnaði jákvæð
um 2% þrátt fyrir
að mesta hrun í
sögu lýðveldisins
sé tekið með í
reikninginn,“
sagði Vilhjálmur. „Að sjálfsögðu
hefðum við viljað gera betur, en þeg-
ar allt er talið hafa lífeyrissjóðirnir
staðið af sér hrunið.“
Hann sagði það hlutverk sjóðanna
að taka allar ábendingar um hvað
mætti betur fara alvarlega og það
ætluðu lífeyrissjóðirnir að gera. Sjóð-
irnir hugsuðu til framtíðar og reyndu
ávallt að gera betur. gudni@mbl.is
Lífeyrissjóðirnir
stóðu af sér hrunið
Vilhjálmur
Egilsson
Gildi mun fara yfir skýrsluna