Morgunblaðið - 04.02.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
mánudaginn 6. febrúar, kl. 18, í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
KarlKvaran
KarlKvaran
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo
og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd
laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta eru heilmiklar náttúru-
hamfarir. Ég reikna ekki endilega
með að vinna baráttuna en reyni að
tefja fyrir,“ segir Hannes Jónsson,
bóndi á Hvoli í Fljótshverfi. Bærinn
er í hættu vegna mikils aurfram-
burðar í Hverfisfljóti og Brunná.
Aska úr Grímsvatnagosi í fyrra
bættist við eldri framburð og hrað-
aði mjög þróuninni.
Hannes er með fjárbú á Hvoli og
rekur farfuglaheimili ásamt konu
sinni, Guðnýju Óskarsdóttur. Jökul-
árnar Brunná og Hverfisfljót flæm-
ast um sanda og aura vestan við bæ-
inn og eru orðnar heldur
nærgöngular við nágranna sína.
Hannes rekur upphaf hamfaranna
til þess að Síðujökull hljóp fram, rétt
fyrir aldamót. Þegar hann svo byrj-
aði að hopa aftur nokkrum árum
seinna fór að bera á auknum fram-
burði í jökulánum. „Það er ekkert lát
á þessum fjanda,“ segir Hannes og
vísar til þess að ómælt efni sé enn í
jökulsporðinum.
Þegar árnar koma niður á láglend-
ið ná þær ekki að flytja allt þetta efni
fram í sjó og farvegurinn hækkar.
Þessi þróun magnaðist upp á síð-
asta ári við Grímsvatnagosið. Þá féll
mikil aska í Fljótshverfinu sem er
austasta sveit Vestur-Skaftafells-
sýslu og þykkt lag var næst eldstöð-
inni. Askan rífur með sér gamlar
malarfyllingar í giljum og allt fer af
stað.
Landið hefur hækkað
Hannes telur að framburður ánna
hafi hækkað landið um 10 til 15
metra á undanförnum fimmtán ár-
um. Mesta hækkunin í Brunná var í
fyrra, eftir Grímsvatnagosið, þegar
farvegur hennar hækkaði um hálfan
annan metra við varnargarða.
Nú er aurkeilan orðin það há að
farvegur Hverfisfljóts er á kafla að-
eins um feti undir lofti neðri hæðar
farfuglaheimilisins á Hvoli. Ekki er
að sökum að spyrja ef vatnið nær að
flæða þangað.
„Ef Hverfisfljót fengi óáreitt að
flæmast um væri neðri hæð farfugla-
heimilisins farin og rafstöðin líka,“
segir Hannes og telur að þá yrði
óbúandi á Hvoli og í framhaldinu
yrðu fleiri bæir og hringvegurinn í
hættu.
Hann segir alltaf spurningu með
verðmæti eignarinnar á móti kostn-
aði við að verja hana. „Farfugla-
heimilið gengur vel og það væri
slæmt að missa tekjurnar.
Það óraði engan fyrir því að hrað-
inn á þessu yrði svona mikill. Ég
vissi að hér gætu orðið vandræði
með vatn en datt ekki í hug að aurinn
og sandurinn myndi hlaðast jafn
mikið upp. Eftir þróunina síðastliðin
eitt til tvö ár er ljóst að ég er ekki í
góðum málum,“ segir Hannes.
Hann segir að menn hafi talið sig
svartsýnan þegar hann fullyrti að
Hvollinn yrði ekki til eftir 20 til 30
ár. Hann á jörðina Núpsstað og hef-
ur verið að velta fyrir sér að byggja
yfir sig þar.
Hannes hefur gert varnargarða
við Brunná og Hverfisfljót í sam-
vinnu við Landgræðslu ríkisins. Þeir
hafa verið lengdir og hækkaðir. Til
dæmis þurfti að gera stórátak í því
síðasta haust vegna öskuframburðar
eftir Grímsvatnagosið. Mestu garð-
arnir eru við Hverfisfljót, til að koma
í veg fyrir að það renni að Hvoli um
farveg Brunnár. „Ég veit ekki hvort
við fáum hlé á næsta ári eða hvort
við þurfum að halda áfram,“ segir
Hannes.
Lengja þarf garða
Hannes reiknar með að lengja
þurfi varnargarðinn við Hverfisfljót,
alveg upp í hraun. Þangað eru
nokkrir kílómetrar. Hann segir að
garðarnir sem gerðir hafa verið til
þessa séu ódýrir, miðað við annað,
aðeins hafi þurft að grafa upp möl úr
farveginum. Vélavinnan sé tiltölu-
lega ódýr. Þá segir hann að gott væri
að veita Brunná yfir í Hverfisfljót en
til þess þurfi leyfi landeigenda og
skipulagsyfirvalda.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri segir að Landgræðslan muni
vinna áfram að vörnum gegn land-
broti á Hvoli, í samvinnu við land-
eiganda. Hann segir að
áætlanir séu til um frekari
aðgerðir en bendir á að
þær kosti mikið. Spurður
um þá hugmynd að veita
Brunná í Hverfisfljót segir
Sveinn að torsótt
kunni að vera að
fá leyfi til slíks
af umhverfis-
ástæðum og
óljóst um
árangur.
Tafið fyrir náttúruöflunum
Bærinn Hvoll í Fljótshverfi í hættu vegna aurframburðar jökulvatnanna Grímsvatnagosið
magnaði upp vandann „Það er ekkert lát á þessum fjanda,“ segir Hannes Jónsson bóndi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Farfuglaheimilið Bæjarlækurinn sem rennur við farfuglaheimilið er nógu ógnvænlengur þótt jökulvötnin Brunná og Hverfisfljót bætist ekki við.
Upp í loft Hannes Jónsson sýnir hvar Hverfisfljót er hæst í farvegi sínum,
miðað við farfuglaheimilið á Hvoli. Áin myndi fylla neðri hæð hússins.
„Ég tel að Hvoll sé í einna
mestri hættu,“ segir Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri,
þegar hann er spurður hvar aur-
og öskuframburður ógni byggð
á Suðurlandi. Veruleg vandræði
eru undir Eyjafjöllum og Sveinn
bætir því við að mikill fram-
burður hafi sest til í Skaftá,
neðan við brýrnar hjá Kirkju-
bæjarklaustri.
Þar hefur verulega reynt á
garða sem verja Landbrotið en
Einar Bjarnason í Dalbæ telur
að þeir sleppi núna, þótt tæpt
hafi staðið um tíma. Sveinn
segir að garðarnir séu veik-
burða og brýnt að sjá til þess að
þeir bresti ekki. Hann segir
að mikið tjón geti orðið
á ræktunarlandi í
Landbroti og Með-
allandi en tekur
fram að bæir séu
ekki í hættu.
Framburður
sest í Skaftá
VÍÐAR ÓGN Á SUÐURLANDI
Sveinn
Runólfsson
Vaka bar sigur úr býtum í
kosningum til Stúdenta-
ráðs og Háskólaráðs Há-
skóla Íslands. Kosið var á
miðvikudag og fimmtudag
og úrslit lágu fyrir um
miðnætti þann dag.
Úrslit kosninganna urðu
eftirfarandi:
Stúdentaráð: A-listi
Vöku fékk 2.499 atkvæði, eða
55,86% og fimm menn kjörna. V-
listi Röskvu fékk 1.975 atkvæði,
eða 44,14% og fjóra menn kjörna.
Auð atkvæði voru 333 (6,93%) og
kosningaþátttaka var 4.807, eða
31,62%.
Háskólaráð: A-listi Vöku fékk
2.056 atkvæði og einn mann kjör-
inn. V-listi Röskvu fékk 1.763 at-
kvæði og einn mann kjörinn. Auð
atkvæði voru 346 og kosningaþátt-
taka var 4.165 eða 27,40%.
Í kosningum í fyrra fékk Vaka
fimm fulltrúa kjörna og náði meiri-
hluta í Stúdentaráði. Röskva fékk
þrjá fulltrúa kjörna og Skrökva,
félag flokksbundinna framapotara,
náði einum manni inn. Stúdenta-
félag hægrimanna, sem bauð fram
í fyrsta sinn, kom engum fulltrúa
að. Skrökva og Stúdentafélag
hægrimanna buðu ekki fram að
þessu sinni. sisi@mbl.is
Vaka hélt meirihluta
sínum í Stúdentaráði
Morgunblaðið/Ómar