Morgunblaðið - 04.02.2012, Side 39
DAGBÓK 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2012
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞÚ ERT MEÐ NÝTT
ILMVATN, HVAÐ HEITIR
ÞESSI TEGUND?
LYKTIN SEM ÞÚ
FINNUR ER EFLAUST AF
SÚKKULAÐISMÁKÖKUNNI
Í VESKINU MÍNU
ÞAÐ ER ANSI
LANGT NAFN
HVAR
HEFURÐU
VERIÐ ALLA
MÍNA ÆVI
MÉR
SKILST AÐ HANN
ÞEKKI VALDAMIKLA
MENN
ÉG ER
HÉRNA FYRIR
HÖND
SKÓLABLAÐSINS
HVAÐ
HEFUR ÞÚ
HUGSAÐ ÞÉR AÐ
GERA EF ÞÚ
VERÐUR
KOSINN?
ÉG ÆTLA
AÐ KOMA
HLUTUNUM Á
RÉTTAN KJÖL
SIÐFERÐI
INNAN
VEGGJA
SKÓLANS ER Á
HRAÐRI
NIÐURLEIÐ!
ÉG SKRIFA
BARA AÐ ÞÚ
MUNIR REYNA
AÐ GERA ÞITT
BESTA
FJÖLMIÐLARNIR ERU
Á MÓTI MÉR
HVERNIG GENGUR
RUNÓLFI MEÐ ÞJÓÐ-
VEGINN SEM HANN
ÆTTLEIDDI?
HANN HELDUR
AÐ SKILTIN Á
ÞJÓÐVEGINUM
SÉU AÐ
OFSÆKJA SIG
ÉG SAGÐI
HONUM AÐ
FARA BARA ÚT
OG FÁ SÉR SMÁ
FERSKT LOFT
HVERNIG LÍST
ÞÉR Á ÞENNAN?
NEI,
HANN ER OF
NÝLENDU-
LEGUR
HVAÐ
MEÐ ÞENNAN
HÉRNA?
NEI,
OF
70’S
VIÐ FUNDUM EKKI SKÁP, EN
VIÐ GERÐUM SAMT GÓÐ KAUP
BARA
AÐEINS LENGUR
OG ÞÁ
VERÐURÐU
KAFNAÐUR!
EKKI
EF ÉG GET
GERT EITT-
HVAÐ Í ÞVÍ
OG BARA
SVONA OKKAR Á
MILLI...
ÞÁ GET
ÉG ÞAÐ! NEIII!
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Karlinn á Laugaveginum er ennfyrir austan fjall og lá vel á
honum, þegar við hittumst, hann
sagðist fara í kaldar bunur að
þýskri fyrirmynd á morgnana og
hafa lést um tvö kíló:
Góðgæti úr grænmetisskál
mér gott finnst að fá í öll mál;
ég við matborðið sest,
mér finnst brokkolí best
og baunir og spínat og kál.
Síðan fór karlinn að tala um póli-
tíkina og dró sterkar ályktanir af
flokksstjórnarfundi Samfylkingar-
innar um síðustu helgi. „Þeir eru
ekki hættir enn," sagði hann og
bætti við:
Vor tilvist er sárbeitt í svörum
eins og sést nú með versnandi kjörum,
– en það jafnast á ný,
ekkert jag út af því;
svo er Jóhanna gamla á förum.
Að þessum orðum töluðum sner-
ist hann á hæl.
Eyfirðingabók séra Benjamíns
Kristjánssonar er skemmtileg og
fróðleg. Káinn fæddist á Akureyri
árið 1859 og var lengi svo, að hann
var eina skáldið sem þar var fætt.
Vel má halda því fram að hann sé
mesti húmoristi íslenskra skálda.
Séra Benjamín rifjar upp að árið
1957 hafi hann komið að leiði Káins
í Eyford kirkjugarði og þá rifjast
upp fyrir honum þessi snilldarvísa:
Bregða ljóma á lífsins strönd
ljóssins gjafir bestar.
Sömu blómum sama hönd
sáir á grafir flestar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vor tilvist er
sárbeitt í svörum
Aðvörun
Ég var á gangi í mið-
bænum í Bratislava
einn daginn fyrir
skömmu, þegar maður
stoppaði mig og
bauðst til þess að
mæla líkamlegt
ástand mitt með sér-
stöku tæki, sem hann
hafði meðferðis. Ég
hélt að það væri nú í
lagi, þar sem ég hafði
talið mig grannan í
samanburði við marg-
an manninn og í sæmi-
legu líkamlegu
ástandi, þar sem ég
gekk mikið og borðaði hollan mat.
Útkoman kom mér hins vegar á
óvart. Ég virti fyrir mér aflesturinn
furðu lostinn. Þar stóð stórum rauð-
um stöfum: Aðvörun. Samkvæmt
mælitækinu sýndi niðurstaðan of
mikla innri fitu, sem gæti orðið
heilsu minni hættuleg.
Viðmælandi minn ráðlagði mér
umsvifalaust sérstakt mataræði, ríkt
að ávöxtum og grænmeti, sem inni-
héldi nóg af vítam-
ínum og steinefnum til
viðhalds heilbrigðum
líkama. Þegar ég
kvaddi manninn og
þakkaði fyrir mig
laust þeirri hugsun
niður í huga minn
hvernig ástand sálar
minnar liti út, ef ein-
hver stoppaði mig fyr-
irvaralaust á götu og
byðist til þess að mæla
andleg gæði hennar.
Ef til vill yrði útkoman
alvarlegur andlegur
næringarskortur, sem
þarfnaðist taf-
arlausrar meðhöndl-
unar. Endurhæfingin fælist í ósér-
hlífinni þjónustu við náungann,
allsherjar hughreinsun og lestri
Guðs orðs minnst tvisvar á dag, ef ég
vildi ná fullri heilsu á ný.
Einar Ingvi
Magnússon.
Velvakandi
Ást er…
… góður sleikur.
Stundum er vitnað í Brennu-Njálssögu: „Þeir einir munu vera, að
eg hirði aldrei þó að drepist.“ Ég er
ekki viss um, að allir þeir, sem nota
þessa tilvitnun, geri sér grein fyrir,
að orðin mælti Mörður Valgarðsson,
er hann var hvattur til að stöðva
bardaga þeirra Gunnars á Hlíð-
arenda og Otkels Skarfssonar, en
Otkell var illmenni.
Ekki eru allir heldur sammála
um, að hlutleysi Marðar sé til eft-
irbreytni. Edmund Burke sagði: „Þá
er illmenni bindast samtökum, verða
góðir menn að standa sameinaðir,
ella munu þeir falla hver af öðrum,
— ósyrgð fórnarlömb smánarlegra
átaka.“
Þýska skáldið August von Binzer
orti:
Wer die Wahrheit kennt und spricht
sich nicht,
Der bleibt fürwahr ein erbärmlicher
Wicht.
Þetta má orða svo á lausu máli:
„Sá, sem veit sannleikann og segir
hann ekki, verður sannarlega
brjóstumkennanlegur ræfill.“
Franski rithöfundurinn Charles
Péguy skrifaði 1899: „Sá, sem veit
sannleikann og þylur hann ekki há-
stöfum, gerist meðsekur lygurum og
svikurum.“
Þýska skáldið Friedrich Wolf
sagði í leikriti 1935: „Því að verri
glæpur er ekki til en sá að vilja ekki
berjast, þar sem berjast þarf.“
Stephan G. Stephansson orti
1923:
Æ, gef oss þrek, ef verja varð,
að vernda æ inn lægri garð
og styrk til þess að standa ei hjá,
ef stórsannindum níðst er á.
Best er sennilega komið orðum að
þessari hugsun í kvæði Tómasar
Guðmundssonar, „Heimsókn“:
Því meðan til er böl, sem bætt þú gast,
og barist var, á meðan hjá þú sast,
er ólán heimsins einnig þér að kenna.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Er hlutleysi
til eftirbreytni?
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is