Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 23

Helgafell - 01.12.1943, Qupperneq 23
MYNDLIST OKKAR FORN OG NY 349 annarsstaðar á Norðurlöndum, enda hefur aldrel staðið meiri auður bak við listsköpun hér á landi en á þeim tíma. Þegar líður á 15. öld tekur að kenna þreytumerkja í íslenskri málaralist og formið verður grófara. Ymsir ágætustu málarar og dráttlistarmenn frá miðöldum Islands hafa aðeins skilið eftir verk sín, og þó helsti fá, en ekki nöfn, um aðra vitum vér nöfnin ein, þau hafa geymst í gömlum sagnfræðiritum; sumir þeirra virðast hafa verið starfsmenn Noregskonúnga. Ókunnugt er um nafn þess mjög svo athyglisverða listamanns sem lýst hefur Uppsala codex, íslenzkt handrit frá 13. öld, sem m. a. geymir myndir við Eddu. Við vitum ekki heldur hverjir hafa gert myndir í tvö íslensk biflíuhandrit, Stjórn, frá 14. öld. Ekki vitum við heldur hverjir þeir miklu íslensku listamenn hafa verið, sem í kríngum 1450 teiknuðu myndabók þá, sem dr. Harry Fett hefur gefið út á prent. Ókunnugt er allt um snillíng þann sem seint á 14. öld hefur málað og teikn- að í Nikuláss sögu. (Þessari sögu hefur Anatole France gefið nýtt líf á vor- um dögum með sínum hætti, en hún var á miðöldum mikið hnossgæti trú- uðum mönnum. 1 þeirri sögu koma m. a. fyrir ein ógestrisin hjón, sem myrtu kaupmenn þrjá, köstuðu innyflum þeirra í foss, en brytjuðu kjötið af þeim í spað og söltuðu í kjallara sínum. Heilagur Nikulás uppreisti síðan hina spaðsöltuðu kaupmenn frá dauðum og hefur hinn íslenski listamaður gert mynd af þeirri athöfn, og aðra af því er dýrlíngurinn særir innyfli þeirra í líki fiska úr fossinum.) Og þannig má leingi telja. Við vitum hinsvegar nöfn tveggja ágætra listamanna frá 14. öld, Jóns Sveinssonar og Bjarna Jónssonar, sem lýstu tvö handrit af Jónsbók. Einnig þekkjum vér að nafni Magnús prest Þórhallsson sem lýsti Flateyjarbók kríngum 1390 og hefur gert sumar myndir merkilega, og eitt dýr hundrað sinnum með hrosslendar og klær og drekahöfuð en stundum kvenmannshöfuð sveipað nunnu- skuplu. Og nokkra fleiri listamenn okkar frá ýmsum öldum kunnum við að nefna með nafni. Hér er ekki kostur að rekja hina laungu sögu íslenskrar myndlistar, enda er hún hvergi nærri rannsökuð og Islendíngum ekki tilkvæm gögn um hana meðþví útlendingar hafa sölsað undir sig flest merkustu verkin. Þessara rita um efnið skal getið í bili, Halldór Hermannsson, Icelandic Illuminated Manuscripts of the Middle Ages (Khöfn, Ejnar Munksgaard, 1935), fjallar um lýsíngar og handritamálverk íslensk fram á miðja sextándu öld; annað rit, að nokkru framhald hins fyrra, samið um hina oftast skrifuðu og marglýstustu bók, Jónsbók, ræðir íslenska sextándu og sautjándu aldar list: Illuminated Manuscripts of the Jónsbók (Cornell University Press, Ithaca, N. Y. 1940). Stórfróðlegt er dráttlistarhefti það sem fyr er minst, útgefið af Harry Fett, En islandsk tegnebog fra middelalderen (Kria 1910). Loks bók Matthíasar Þórðarsonar, Islenskir listamenn (Reykjavík, 1920), um íslenska málaralist frá eymdcirtímunum, 17., 18. og 19. öld, þar er í meðal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.