Morgunblaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 30
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Síðustu áratugi hafa demókratar
yfirleitt notið mun minni stuðnings
en repúblikanar meðal hvítra kjós-
enda, sem eru um 74% allra kjósend-
anna, en í síðustu forsetakosningum
fékk Barack Obama meira fylgi með-
al hvítra en öll önnur forsetaefni
demókrata síðustu áratugi, að Bill
Clinton undanskildum. Útlit er fyrir
að á þessu verði mikil breyting í
kosningunum 6. nóvember og
munurinn á fylgi frambjóðendanna
eftir kynþáttum verði sá mesti frá
1988. Hvorki meira né minna en 91%
af fylgi Mitts Romneys kemur frá
hvítum kjósendum en líklegt er að
um 80% af kjósendum úr röðum
minnihlutahópa kjósi Barack Obama
forseta, ef marka má nýja viðhorfs-
könnun The Washington Post.
Í kosningunum fyrir fjórum árum
fékk Obama 43% af atkvæðum hvítra
kjósenda, jafnmikið hlutfallslega og
Bill Clinton árið 1996 þegar hann
sigraði repúblikanann Bob Dole og
Ross Perot, forsetaefni Umbóta-
flokksins. Það var þá mesta fylgi sem
demókrati hafði fengið meðal hvítra í
forsetakosningum í tvo áratugi.
Könnun The Washington Post
bendir til þess að munurinn á fylgi
Obama og Romneys meðal hvítra
kjósenda sé nú 23 prósentustig. Um
60% þeirra segjast ætla að kjósa
Romney en 37% Obama.
Forsetinn hefur einkum misst
stuðning í þremur hópum hvítra
kjósenda, þ.e. karlmanna, kjósenda
án háskólamenntunar og óháðra.
Hvítir óháðir kjósendur eru tæpur
helmingur þeirra hvítu kjósenda sem
studdu Obama fyrir fjórum árum en
segjast nú ætla að kjósa Romney.
Rúm 90% allra þeirra sem ætla að
snúa baki við Obama koma úr röðum
hvítra kjósenda, að sögn The Was-
hington Post.
Munurinn á fylgi frambjóðenda
eftir kynþáttum hefur ekki verið við-
líka mikill frá árinu 1988 þegar 59%
hvítra kjósenda studdu repúblikan-
ann George Bush eldri, en 40%
demókratann Michael Dukakis. Um
78% kjósenda úr röðum minnihluta-
hópa kusu þá Dukakis og 20% Bush.
Fái Obama minna en 40% fylgi
meðal hvítra kjósenda, eins og nýja
könnunin bendir til, verður það
minnsta fylgi demókrata í forseta-
kosningum meðal hvítra frá árinu
1984 þegar Ronald Reagan fékk 64%
fylgi og Walter Mondale 35% í þess-
um kjósendahópi.
Vaxandi gjá milli kynþáttanna er
einnig áhyggjuefni fyrir repúblikana
þegar til lengri tíma er litið þar sem
hlutfall hvítra kjósenda hefur lækk-
að um 2% að meðaltali milli hverra
forsetakosninga síðustu áratugi.
Biðlað til kvenna
Þess ber einnig að geta að Obama
stendur tiltölulega betur að vígi með-
al hvítra kjósenda í nokkrum lykil-
ríkjum, sem gætu ráðið úrslitum, en í
öðrum ríkjum. Í Ohio er Romney
t.a.m. með sex prósentustiga forskot
meðal allra hvítra kjósenda, en
Obama er þó með jafnmikið forskot
meðal hvítra kvenna í ríkinu, ef
marka má könnun vikuritsins Time.
Talið er að konur geti skipt sköp-
um í forsetakosningunum og Rom-
ney hefur því lagt kapp á að auka
fylgi sitt meðal þeirra. Hugsanlegt
er að einn frambjóðenda repúblikana
í öldungadeildarkosningunum, Rich-
ard Mourdock, hafi torveldað þetta
þegar hann lét þau orð falla í sjón-
varpskappræðum á dögunum að
þunganir, sem yrðu við nauðgun,
væru „vilji Guðs“. Romney lýsti því
strax yfir að hann væri alveg ósam-
mála Mourdock um þetta en vildi
ekki falla frá stuðningi sínum við
hann. Ummæli Mourdocks gáfu þó
Obama og stuðningsmönnum hans
færi á að lýsa repúblikönum sem
öfgamönnum í málefnum kvenna.
Einn af aðstoðarmönnum Rom-
neys, John Sununu, dró í gær til
baka ummæli sín um að Colin
Powell, fyrrv. utanríkisráðherra,
hefði lýst yfir stuðningi við Obama
vegna þess að þeir væru báðir
blökkumenn. Ummælin kyntu undir
umræðunni um kynþáttagjána en
eru ekki talin jafnskaðleg fyrir Rom-
ney og nauðgunarummælin.
Obama missir fylgi meðal hvítra
Rúm 90% af fylgi Mitts Romneys koma frá hvítum kjósendum Um það bil 80% kjósenda úr röðum
minnihlutahópa styðja Barack Obama Stefnir í mesta mun á kjörfylgi eftir kynþáttum frá árinu 1988
AFP
Spennandi barátta Piltur hlýðir á ræðu Obama á flugvelli í Ohio.
Heimild:
RealClearPolitics
Lykilríki í kosningabaráttunni
Tíu dögum fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum
er mikil óvissa um úrslitin í svonefndum lykilríkjum.
10 ríki gætu ráðið
úrslitum í forseta-
kosningunum.
Samanlagt eru
þau með
131 kjörmann sem
kýs forseta
Bandaríkjanna
endanlega
BA N DA R Í K I N
Barack
Obama
Mitt
Romney
Fylgi Obama
Fylgi Romneys
Virginía
13
Fjöldi kjörmanna
48,3
47,9
47,0
48.2
49,5 48,8
44,8 45,2
50
48,8
46,8
48,2
47.8
49,6
46,8
xx%
xx%
46,8
47.4
48,7
46,8
45,8
29
4
10
206
xx
9
6
Ohio
Flórída
New
Hampshire
Wisconsin Michigan Pennsylvania
IowaColoradoNevada
Atkvæði 270 kjörmanna duga til sigurs
131
í lykilríkjum
201 206
538
kjörmenn
alls
16
18
Powell styður Obama
» Colin Powell, sem var
utanríkisráðherra í stjórn
George W. Bush, hefur lýst yfir
stuðningi við Obama. Yfirlýs-
ingin fór fyrir brjóstið á mörg-
um repúblikönum.
» Einn af aðstoðarmönnum
Romneys, John Sununu, fyrrv.
ríkisstjóri New Hampshire,
ýjaði að því að Powell styddi
Obama vegna þess að þeir
væru báðir blökkumenn.
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
Silvio Berlusconi, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra Ítalíu, var dæmd-
ur í fjögurra ára fangelsi
í undirrétti í gær fyrir
skattsvik í tengslum við
fjölmiðlafyrirtæki hans,
Mediaset, en dómurinn
var svo mildaður niður í
eitt ár. Berlusconi var
jafnframt bannað að
gegna opinberu embætti
í fimm ár.
Berlusconi var ákærð-
ur fyrir að hafa keypt og
blásið upp verð á
dreifingarrétti á kvik-
myndum sem keyptur
var af skúffufyrirtækjum í hans eigu og síðan seldur aftur til Mediaset.
Fastlega er gert ráð fyrir því að Berlusconi áfrýi dómnum. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Berlusconi er ákærður fyrir þátttöku í viðskiptalífinu. Hann
hefur hins vegar hingað til ekki verið sakfelldur, nema í undirrétti og dómi
þá verið snúið við hjá áfrýjunardómstóli.
Berlusconi dæmdur í fangelsi í undirrétti
Hættur Berlusconi með lögregluþjónum í Róm. Hann
er 76 ára og segist vera hættur í stjórnmálunum.
ÍTALÍA
AFP
Umdeilt leikrit um fjöldamorðingjann, sem varð 77
manns að bana í Noregi 22. júlí 2011, hefur verið sýnt
fyrir fullu í húsi frá því að það var frumsýnt í Kaup-
mannahöfn á mánudag. Uppselt er einnig á leikritið í
Ósló þar sem það verður sett upp í dag og á morgun, að
sögn fréttavefjar danska ríkisútvarpsins. Leikritið er
einleikur eftir leikskáldið Christian Lollike og leik-
arann Olaf Højgaard sem leikur fjöldamorðingjann.
Þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að setja leikritið upp
en segja það skyldu sína að fjalla um fjöldamorðin,
„skelfilegasta atburð á norskri jörð frá síðari heims-
styrjöldinni“.
Uppselt á leikrit um fjöldamorðingjann
NOREGUR
Christian Lollike
Orkuskot sem virkar strax!
Lífrænt grænmetisduft fyrir alla
Heilbrigð orka úr lífrænni næringu
og fullt af andoxunarefnum
Eykur vellíðan, skerpir hugsun, heilbrigði og frísklegt útlit.
Börn, unglingar og fullorðnir finna mun á orku og úthaldi -
Fyrir íþróttaæfingar, skólann og vinnuna
Gefur góða líðan og dregur úr sælgætislöngun
Blóðsykursjöfnun úr grænmeti er æskilegust fyrir alla.
Kjörið fyrir sykursjúka.
Meðmæli næringafræðinga - 100% náttúrleg uppspretta
Brokkál Spínat Rauðrófur
Salatkál – Gulrætur – Steinselja
lífræn bætiefni fyrir allaFæst í: Lifandi markaður, Lyfjaveri, Krónunni og Hagkaup
Ekkert erfðabreytt – Ekkert skordýraeitur – Engar geymslugeislanir
Engin aukaefni, litar- eða bragðefni.