Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti| | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
Kæru landsmenn!
Óskum ykkur gleðilegra hátíðar
og farsældar á komandi ári
Sambandsmiðlun.is er systurfyrirtæki
Blush.is sem kom fram á sjónarsviðið fyrir rösku ári. Þær Gerð-
ur og Rakel höfðu kynnst þegar þær voru báðar með barni og
barst tal þeirra einn daginn að hjálpartækjum ástarlifsins.
„Okkur fannst vera gat á markaðinum fyrir fallega hannaða
gæðavöru fyrir bæði karla og konur. Það sem var fyrir á mark-
aðinum þótti okkur vera helst til „subbulegt“ og jafnvel „dóna-
legt“ og ekkert framboð af fáguðum hjálpartækjum. Við
ákváðum að stíga ófeimnar fram sem ungar og brattar konur,
vorum ekki feimnar við að tengja andlitin okkar við þessa vöru
og gefum okkur út fyrir aðrar áherslur en hafa einkennt þennan
markað hingað til.“
Blush byrjaði á að flytja inn vörur frá fyrirtækinu Lelo sem
m.a. vann hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun árið 2012. „Við-
tökurnar voru margfalt betri en við höfðum leyft okkur að vona.
Bæði hefur selst mjög vel í netversluninni og einnig hefur okkur
orðið mjög vel ágengt með heimakynningum hjá saumaklúbbum
og vinkvennahópum. Hefur árangurinn verið svo góður að á nýju
ári stefnum við að því að opna verslun á góðum stað í bænum.“
Stílhrein hjálpar-
tæki vekja lukku
FUNDU GAT Á MARKAÐINUM
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það getur verið þrautin þyngri að finna
ástina. Fyrir nútímamenn og -konur vill
makaleitin vera afskaplega flókin, ekki
alltaf jafnskemmtileg og tímafrek fyrir
framafólk á þeytingi.
Úti í heimi hafa stefnumótaþjónustur
fyrir löngu rutt sér til rúms og hjálpað
til við pörunina á meðan Íslendingar
hafa þurft að leita sér að kærustum og
mökum með „gamla laginu“. En nú er
framtíðin loksins
komin með Sam-
bandsmiðlun.is.
„Við byrjuðum að
safna fólki inn i
gagnagrunn í sumar
og erum í dag með á
bilinu 400 til 500
manns á skrá. Það
var ekki fyrr en við
vorum komnar með
þennan stóra hóp að
við gátum hafist
handa við að para fólk saman,“ útskýrir
Gerður Huld Arinbjarnardóttir sem á
og rekur fyrirtækið með vinkonu sinni
Rakel Ósk Orradóttur. Fyrir eiga þær
Gerður og Rakel netverslunina Blush.is
sem selur hjálpartæki ástarlífsins.
Flott og frambærileg
„Við erum með alls konar fólk á skrá
hjá okkur. Aldursdreifingin spannar frá
25 til 75, kynjahlutföllin eru jöfn og upp
til hópa er þetta metnaðarfullt og glæsi-
legt fólk í góðum störfum. Það er hægt
að lýsa þessum hópi sem mjög flottu
fólki sem maður á í raun bágt með að
skilja að skuli vera á lausu,“ útskýrir
Gerður. Fyrirtækið tekur bæði við
gagnkynhneigðum og samkynhneigð-
um en enn sem komið er eru of fáir sam-
kynhneigðir á skrá til að hægt sé að
hefja paranir.
Sú ímynd hefur viljað loða við stefnu-
mótaþjónustur að þær séu einhvers
konar neyðarúrræði fyrir þá sem eiga
sér enga von. Lesendur þekkja t.d.
örugglega úr bandarískum kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum þann söguþráð
að söguhetjan kemst í kynni við kynlega
kvisti í gegnum stefnumótaþjónustu.
Gerður segir þessa staðalmynd ekki í
samræmi við veruleikann:
„Margir sem nota þessa þjónustu
hafa t.d. áttað sig á að það höfðar ekki til
þeirra að leita að rómantík úti á nætur-
lífinu og að það kann ekki góðri lukku að
stýra að hefja samband á þriðja glasi
inni á myrkvuðum skemmtistað,“ út-
skýrir Gerður. „Aðrir standa frammi
fyrir því að stefnumótamenningin á Ís-
landi er skammt á veg komin og lítil
hefð fyrir sakleysislegu daðri og öðrum
leiðum til að brjóta ísinn við áhugavert
fólk á förnum vegi.“
Draumar og þrár
Hjá Sambandsmiðlun er mjög vand-
að til pörunarinnar og vísindalegum að-
ferðum beitt. „Þetta hefst með því að
fólk kemur til okkar og á viðtal við sál-
fræðing. Viðtalið er ítarlegt, skoðað er
bæði hverju fólk er að leita að og á
hvaða forsendum og reynt um leið að
draga upp sem skýrasta mynd af ein-
staklingnum, áhugamálum hans og per-
sónuleika,“ segir Gerður og tekur fram
að þjónustan sé ekki ætluð þeim sem
eru að vinna mikla vinnu í sjálfum sér
svo sem í 12 spora kerfinu. Þá er saka-
skrá allra viðskiptavina skoðuð og ein-
staklingar með skráða kynferðisglæpi
eru ekki teknir inn í kerfið.
„Þorri fólksins sem við erum með á
skrá er á aldrinum 35 til 70 ára, oft fólk
sem er nýbúið að skilja eða hefur misst
maka sinn og vantar ákveðna hjálp við
að komast aftur af stað. Þarna eru líka
manneskjur sem eru einfaldlega að
vinna að því að beina lífi sínu á nýja
braut, og leita að skemmtilegum ferða-
félaga til að deila með nýju og betra lífi.“
Með viðtalsskýrslurnar í höndunum
hefjast starfsmenn Sambandsmiðlunn-
ar handa við að para saman fólk sem
ætti að eiga góða samleið og taka í leið-
inni tillit til þeirra útlitsóska sem komið
hafa fram í viðtalinu. „Við höfum sam-
band við báða aðila, segjum frá þeim
sem við höfum fundið og höldum að
passi, og ef bæði eru til í tuskið hjálpum
við þeim að skipuleggja fyrsta stefnu-
mótið,“ útskýrir Gerður en þjónusta
Sambandsmiðlunar kostar 55.000 kr.
Blind stefnumót
Þeir sem paraðir eru saman fá ekki
að sjá myndir hvor af öðrum nema í al-
gjörum undantekningartilvikum.
„Fólkið er ekki að berja hvort annað
augum fyrr en á stefnumótinu, sem er
iðulega létt og vinalegt spjall á kaffi-
húsi. Ef góð tenging reynist vera til
staðar þá hafa hlutirnir einfaldlega sinn
gang, en ef ekki þá þarf enginn að
skammast sín. Viðskiptavinir okkar
geta reiknað með að fara á nokkur
stefnumót áður en leitinni lýkur: sumir
smellpassa strax við fyrsta kandidatinn
en aðrir vilja þreifa sig áfram. Við ráð-
leggjum viðskiptavinum okkar að fara á
4-5 ólík stefnumót til að fá sem mest út
úr þjónustunni.“
En þá er það stóra spurningin: Virk-
ar stefnumótaþjónustan? „Bara í síð-
ustu viku veit ég að við bjuggum til tvö
pör. Við höfum til þessa sent 80 manns á
stefnumót og af þeim eru 10 manns í
sambandi í dag.“
„Tvö ný pör bara í síðustu viku“
Íslendingum stendur nú til boða stefnumótaþjónusta eins og þekkist erlendis Fara í gegnum ítar-
legt viðtal með sálfræðingi Hentar ekki öllum að finna sér nýjan maka á skemmtistað um miðja nótt
Morgunblaðið/Ómar
Rómantík Gerður segir þjónustu Sambandsmiðlunar.is m.a. sniðna að þörfum fólks sem hefur áttað sig á að það er ekki endilega sniðugt að byrja sam-
band í glasi á myrkvuðum skemmtistað um miðja nótt. Fyrirtækið parar fólk saman byggt á ítarlegu viðtali. Karl og kona knúsast í Bláa lóninu.
Gerður Huld
Arinbjarnardóttir