Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Allar helstufréttastof-ur heims
hafa beint athygli
sinni að Róm síð-
ustu daga. Þá voru
kardinálar að
flykkjast í Vatík-
anið til að velja sér
páfa með fornfálegum en lit-
ríkum aðferðum.
Meira en milljarður manna
tilheyrir kaþólsku kirkjunni og
æðsti leiðtogi hennar hefur
mikil áhrif í þeim mikla söfnuði
og raunar langt út fyrir hann.
Ekki er einfalt að ákvarða
valdalegt mikilvægi einstakra
manna í veröldinni, þótt slíkt
sé stundum reynt, enda oft
óljóst á hverju slíkar mælingar
byggjast. Þeir Churchill og
Roosevelt stríðsleiðtogar eru
eitt sinn sagðir hafa nefnt í
viðræðum við Stalín, að óhjá-
kvæmilegt væri að taka tillit til
sjónarmiða páfans í Róm.
„Hve mörgum herfylkjum fer
hann fyrir?“ ansaði einvald-
urinn sovéski þá.
Örfáum áratugum síðar var
páfinn Jóhannes Páll gjarnan
nefndur með þeim Ronald
Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov
þegar rætt var um þá menn
sem mest allra einstaklinga
höfðu haft um það að segja að
kerfið, sem Stalín og eft-
irmenn hans studdust við,
hrundi til grunna.
Vald páfans er auðvitað
fyrst og síðast kennivald og
hvort sem Stalín eða öðrum
líkar það betur eða verr getur
slíkt vald páfans við sérstakar
aðstæður verið ígildi fleiri her-
fylkja en sýnist.
Sagt var að sjötíuþúsund
manneskjur hefðu þyrpst á
torg Péturskirkjunnar eftir að
út spurðist að ljósari reykur
hefði rokið upp úr strompinum
fræga eftir allmargar svartar
gusur dagana á undan. Hundr-
uð milljóna manna fylgdust
með beinum útsendingum frá
atburðunum. Enginn stjórn-
málamaður og
jafnvel ekki einu
sinni hljómsveit-
argoð eru líkleg til
að fá aðra eins at-
hygli og aldrei jafn
einlæga og þarna
birtist.
Fjarri er þó að
kaþólska kirkjan hafi verið
böðuð í vinsamlegu fjölmiðla-
ljósi síðustu árin. Margt hefur
gerst í hennar ranni, og það
sem verra er oft í skjóli hátt-
settra trúnaðarmanna hennar,
sem hvergi ætti að þrífast og
síst af öllu þar. Þau erfiðu mál
og önnur mun smærri sem eru
þó ótrúlega fyrirferðarmikil
hafa þó lítið með sjálfan
grundvöll kaþólsku kirkjunnar
eða annarra kirkjudeilda að
gera. Hann stendur óhagg-
aður, en þjónustan við hann
skaddast óhjákvæmilega og
þeir sem síst skyldu rufu við
hann trúnað.
Það væri fljótræði, fáum til
gagns, að gera tilraun til að
gefa páfavali kardinálanna
einkunn núna. En það virðist
þó a.m.k. falla í góðan jarðveg
þar sem hinn kaþólski söfn-
uður er.
Benedikt páfi XVI. lét ekki
hundraða ára venjuhelgun
hindra sig, þegar hann taldi að
kallið hefði komið til páfadóms
hans. Þær brotakenndu mynd-
ir sem byrjaðar eru að berast
af Frans I. páfa sýnast geta
bent til að hann geti verið í
senn fastheldinn og frjáls-
lyndur. Vera má að átökin á
milli þeirra gilda, en þau eru
jafnan til staðar í kirkjunni,
hafi á þessari stundu ekki átt
val á betra manni en Frans í
hásæti Péturs postula í Róm.
Og rétt er að vona að hinn
mikli fjöldi fólks, sem horfir til
kirkjunnar út frá öðrum og
mikilvægari þáttum en þeim
sem mestur fjölmiðlahávaðinn
einatt endurspeglar, megi
einnig vel við una. Það væri þá
huggunarrík guðs handleiðsla.
Páfakjör eftir alda-
gömlum reglum var
ekki minna sjónar-
spil en hátækni-
atburðir nútíma-
tilveru}
Páfinn í Róm
Haldi Alþingistarfsáætlun
verður þingi
frestað í dag og
ekki seinna vænna
því stutt er í
kosningar. Því fer
þó fjarri að ríkisstjórnin
vinni að því að áætlunin geti
haldist. Síðustu daga hafa
ráðherrar raðað inn nýjum
lagafrumvörpum eins og þeir
búist við að þingið muni
starfa langt fram á sumar.
Lausungin á verkstjórninni
er slík – nema um viljaverk
sé að ræða sem væri enn
verra – að í gær lögðu fjórir
ráðherrar ríkis-
stjórnarinnar
fram ný laga-
frumvörp.
Þegar ríkis-
stjórnin sýnir
þinginu slíka
óvirðingu og hyggst augsýni-
lega hafa af almenningi tæki-
færið til að kynna sér fram-
boð og frambjóðendur, þá á
þingið engan annan kost en
að taka fram fyrir hendurnar
á henni og stöðva enda-
leysuna. Engum, allra síst Al-
þingi, er greiði gerður með
því að láta svona lagað við-
gangast.
Stjórnleysið er slíkt
að fjögur ný stjórn-
arfrumvörp voru
lögð fram í gær}
Reynt að hindra þingfrestun T
akist Evrópusambandinu að semja
um fríverzlun við Bandaríkin
verða það góðar fréttir og mun án
efa hafa jákvæð áhrif víða um
heim. Meðal annars fyrir okkur
Íslendinga. Kálið er hins vegar ekki sopið þó í
ausuna sé komið í þeim efnum. Ýmis ljón eru
þar á veginum líkt og raunin hefur verið í fyrri
tilraunum Evrópusambandsins til þess að
landa slíkum samningi við Bandaríkjamenn.
Ekki sízt þegar kemur að viðræðum um land-
búnaðarmál en þegar eru ýmsar blikur á lofti í
þeim efnum þrátt fyrir að fríverzlunarviðræð-
urnar séu ekki enn formlega hafnar.
Fróðlegt er annars að bera saman árangur
Evrópusambandsins og Fríverzlunarsamtaka
Evrópu (EFTA), sem Ísland er aðili að ásamt
Noregi, Sviss og Liechtenstein, þegar kemur
að gerð fríverzlunarsamninga. Þannig hefur Evrópu-
sambandið gert fjóra fríverzlunarsamninga samkvæmt
vefsíðu framkvæmdastjórnar sambandsins, viðræður
standa yfir um sjö slíka samninga og tveir viðskipta-
samningar þess eru fríverzlunarsamningar að hluta til.
EFTA hefur á hinn bóginn gert 24 fríverzlunarsamn-
inga við 33 ríki fyrir utan EES-samninginn við Evrópu-
sambandið. Þar á meðal öll þau ríki sem sambandið hef-
ur samið um fríverzlun við. Viðræður eru að auki í gangi
af hálfu EFTA um níu aðra fríverzlunarsamninga. Þess
utan höfum við Íslendingar samið um fríverzlun við Fær-
eyinga og Grænlendinga og eigum í fríverzlunarvið-
ræðum við Kína sem kunnugt er. Staða Ís-
lands varðandi fríverzlun er því mun sterkari
við núverandi aðstæður en ef landið yrði hluti
Evrópusambandsins, fyrir utan þá staðreynd
að innganga í sambandið þýddi að valdið til
þess að semja um viðskipti við önnur ríki
færðist til þess.
Til þessa hefur það gjarnan verið svo að
næði Evrópusambandið að landa fríverzl-
unarsamningi hafi það auðveldað EFTA það
og öfugt. Takist sambandinu þannig að semja
um fríverzlun við Bandaríkin verður að telj-
ast líklegt að það greiði götu EFTA í þeim
efnum. Þó er margt sem bendir til þess að
auðveldara væri fyrir EFTA að semja um frí-
verzlun við Bandaríkin en Evrópusambandið
og þá ekki sízt vegna einfaldari hagsmuna og
minni viðskiptalegrar togstreitu. Á þetta hafa
ýmsir málsmetandi aðilar bent í gegnum tíðina.
Líkt og Evrópusambandið hefur EFTA áður þreifað
fyrir sér með fríverzlunarsamning við Bandaríkin en
þær þreifingar hafa strandað af nokkurn veginn sömu
ástæðum og í tilfelli sambandsins. Einkum landbún-
aðarmálum og ólíku regluverki um vörur og þjónustu.
Helzta markmið fyrirhugaðra fríverzlunarviðræðna á
milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er einmitt
að samræma regluverkið á milli þeirra í þessum efnum.
Takist það ætti það þannig sem fyrr segir að greiða fyrir
mögulegri fríverzlun á milli EFTA og Bandaríkjanna.
Eða Íslands á eigin forsendum. hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Fríverzlun við Bandaríkin?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Til stendur að reisa gas- ogjarðgerðarstöð fyrir líf-rænan sorpúrgang. Með til-komu slíkrar stöðvar væri
hægt að draga stórlega úr því magni
sem fer til urðunar samhliða því að
framleiða metangas auk annarra af-
urða sem falla til við framleiðsluna.
Eins og málin standa fer allt óflokkað
sorp á höfuðborgarsvæðinu, og þar
með talinn lífrænn úrgangur, til urð-
unar í Álfsnesi í Reykjavík.
Metan fyrir 3.000 smábílaígildi
Helsta afurð vinnslunnar er metan-
gas sem er það eldsneyti sem einna
helst er litið til sem umhverfisvæns
orkugjafa fyrir bifreiðar. Sorpa er eini
framleiðandi metans hér á landi. Í dag
er, að sögn Björns, ígildi um 2.000
smábíla sem ganga fyrir metangasi á
Íslandi. Hann gerir ráð fyrir því að
gas- og jarðgerðarstöð gæti framleitt
metan fyrir um 3.000 „smábílaígildi“
sé miðað við grófar áætlanir. „Úr-
gangurinn þarf að vera aflokaður og af
honum berst ekki lyktarmengun á
meðan hann er í vinnsluferli. Síðan
brjóta bakteríur niður lífræna efnið og
mynda úr því hauggas, sem er blanda
af kolsýru og metangasi. Það er svo
sent í hreinsistöð og þá verður til þetta
eldsneyti sem er metan. Afganginn
þarf að hreinsa og úr honum mætti fá
tvær afurðir. Annars vegar moltu sem
hægt væri að nýta í áburð eða sem efni
til uppgræðslu. Eftir stendur rest sem
kallast brenni. Það má nýta í fram-
leiðslu á sementi, malbiki eða jafnvel í
stað olíu þar sem hún er nýtt í að búa
til rafmagn eða hita eins og gert er í
Grímsey svo dæmi sé tekið.
Eins mætti selja það erlendis því
það má nota til húskyndingar ef það
uppfyllir ákveðna mengunarstaðla.
Svo má einnig nota brenni við fram-
leiðslu á metanóli eða aðra framleiðslu
á eldsneyti,“ segir Björn. Hann segir
að mjög lítill hluti muni standa eftir
sem þurfi að urða.
Tvær metanstöðvar í bígerð
Metan hf. var stofnað 20. ágúst 1999
af Sorpeyðingu höfuðborgarsvæðisins
bs. og Aflvaka hf. Félagið var svo í
eigu SORPU bs., Orkuveitu Reykja-
víkur, REI og N1 hf., þar til um síðast-
liðin áramót þegar Sorpa bs. eignaðist
öll hlutabréf í félaginu.
Sorpa framleiðir allt metan fyrir
bifreiðar en N1 er eini söluaðili þess
og eru afgreiðslustöðvar á Höfða í
Reykjavík og í Vallarhverfi í Hafnar-
firði. Sorpa hefur jafnframt gengið
frá samningi við Metanorku og Olís
um sölu á metani. Stefnir Olís að því
að opna metanafgreiðslustöð í
Reykjavík á næstu mánuðum. Met-
anorka er dótturfélag Íslenska gáma-
félagsins og að sögn Dofra Her-
mannssonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, verður metanaf-
greiðslustöð opnuð í Gufunesi eftir
páska.
Til að byrja með mun hún ein-
göngu þjónusta bifreiðar Íslenska
gámafélagsins, Vélamiðstöðvarinnar
og Metanorku. Jafnframt hafa
Metanorka hf. og Olís gert með sér
samning um að Metanorka muni sjá
um flutning á metani og byggingu af-
greiðslustöðvar fyrir Olís.
Engin vörugjöld á metani
Metanverð hefur að sögn Björns
ekki fylgt verðlagsþróun. Útsöluverð
á metangasi er í dag 149 kr. á norm-
alrúmmetra. Orkan í því er að sögn
Björns svo til sú sama og fæst úr ein-
um lítra af bensíni. Bensínverð var í
gær frá 254,6 - 256,9 kr. Verð á met-
ani var um 80% af útsöluverði þegar
sala þess hófst árið 2000. Lægst fór
það í um 50% af útsöluverði bensíns.
Engin vörugjöld eru á metani en af
því er greiddur virðisaukaskattur.
Sorpið að metangasi,
moltu og brenni
Heildarsala á metani á ökutæki hvert ár
2.500.000
2.000.000
1.500.000
1.000.000
500.000
0
R
úm
m
ál
se
lt
(N
m
3 )
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
Ár
Í heimilissorpsrannsókn sem
unnin var af Sorpu kom m.a.
fram að 18% af innihaldi þess
eru plast. Eins og sakir standa
fer það allt til urðunar í Álfs-
nesi. Ekki hefur verið sýnt fram
á umhverfisáhrif af plastinu en
niðurbrot þess tekur mjög lang-
an tíma. Einn af kostum gas- og
jarðgerðarstöðvar er sá að
hægt er að nýta plastið í gas- og
jarðgerðarvinnsluna. „Við höf-
um verið í tilraunaverkefni um
að skoða framleiðslu á metanóli
og það getur komið úr plastinu
eftir að vinnslu á metangasi er
lokið. Þá eru vinnslutæknilegir
kostir við að hafa plastið með.
Yfirleitt er ákveðin filma af mat-
vælum á plastinu. Á skinkubréfi
er t.d. filma af lífrænu efni sem
hægt er að nýta í metanfram-
leiðslu sem annars færi til spill-
is,“ segir Björn Hafsteinn Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri
Sorpu bs.
Plastið kost-
ur í vinnslu
PLASTIÐ ER 18% AF
HEIMILISSORPI