Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.09.2013, Síða 30
AF HVERJU EKKI AÐ FÁ MEIRA FYRIR MINNA? Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Pípulagnahreinsir Perfect Jet Síuhreinsihaus Stuðningssæti U.V. Áburður fyrir lok Glasabakki Yfirborðshreinsir fyir skel FituhreinsirFroðueyðir Síuhreinsir 3499,- 1249,- 2899,- 2899,-2999,- 3299,- 3499,- 4499,- 1999,- *Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar Úrval fylgihluta fyrir heita potta 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.9. 2013 K eramik-kolagrill, sem er eins og egg í laginu, hefur verið að slá í gegn hjá matgæðingum um allan heim. Grillið er ekki nýtt af nálinni því það á uppruna í 3.000 ára gömlum „ka- mado“ grillum frá Japan. Í núverandi mynd kom það fyrst á markað í Bandaríkjunum árið 1973 og hefur verið að sækja í sig veðrið, bæði hjá lærðum matreiðslumönnum og almenningi. Ólafur Kristjánsson matrsiðslumaður hjá Geira ehf. hefur reynslu af notkun grillsins og segir það hafa ótvíræða kosti fram yfir gasgrill. „Í þess- um ofnum er hægt að elda á mjög misjafnan hátt, þú getur verið að hægelda, reykja, baka, grilla og steikja. Það sem er sniðugt er að þú getur notað það allan ársins hring því veðrið hefur engin áhrif. Það er alltaf eldað með lokinu á því þá fær maður mesta bragðið úr matnum,“ segir hann. Eldamennska tekin á næsta plan Notuð eru ekta náttúruleg viðarkol en hægt er að blanda við- arspónum við til að fá meiri reyk eða meira bragð. Ólafur segir að- alkostinn við „stóra græna eggið“ er sá að hægt sé að stjórna hita- stiginu á eldamennskunni allan tímann og hitastigið getur verið allt frá 50-450 gráðum. Þannig er hægt að hægelda í 5-6 tíma á lágum hita eða eldbaka pitsu á keramik-pitsaplötu eða snöggsteikja kjöt eða fisk. Hann segir mjög einfalt að læra á „græna eggið“ en hitinn er stjórnaður með súrefnisflæðinu. „Þetta er heitasta varan í elda- mennsku í dag, og er komin á flesta Michelin-staði í Evrópu,“ segir Ólafur. „Ef þig langar til að gera meira en á venjulegu gasgrilli, er þetta næsta skrefið, og bragðið af matnum er mun betra.“ Græna eggið dregur nafn sitt af kúptu lokinu sem gerir það að verkum að grillið minnir verulega á egg. FJÖLHÆFT ELDUNARTÆKI Egglaga grill með þrjú þúsund ára sögu KOLAGRILL SEM ER EINNIG KERAMIKOFN NÝTUR NÚ VINSÆLDA Á FJÖLMÖRGUM VEITINGAHÚSUM VÍÐA UM HEIM. GRILLIÐ ER EINS OG EGG Í LAGINU OG NÝTIST TIL AÐ ELDBAKA PITSU, SNÖGGSTEIKJA NAUT, HÆGELDA LAMB EÐA BAKA KÖKU. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Sjávarréttir eldaðir við loga frá grillinu, sem á sér langa sögu. Eggið hentar vel hvort sem á að eldbaka pitsu, steikja fisk eða hægelda lamb. Matur og drykkir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.