Morgunblaðið - 30.11.2013, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.11.2013, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2013 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við getum gert ýmislegt til að auka framleiðsluna. Við erum tæknilega öflug og bændastéttin að stórum hluta vel menntað fólk sem kann til verka. Fyrst og fremst er þetta spennandi áskor- un fyrir fólk að takast á við,“ seg- ir Sigurður Lofts- son, formaður Landssambands kúabænda, um möguleika til að auka mjólkur- framleiðsluna til að mæta vaxandi eftirspurn eftir fituríkum afurðum á innanlands- markaði. Sala mjólkur hefur aukist mikið á þessu ári, sérstaklega vörur sem unnar eru úr mjólkurfitu. Mjög hefur gengið á birgðir á haustmánuðum þegar framleiðslan er í lágmarki. Mjólkursamsalan hefur hvatt bænd- ur til að auka framleiðsluna. Í þeim tilgangi var ákveðið að greiða alla mjólk fullu verði. Það hefur ekki dug- að til og áformar Mjólkursamsalan að flytja inn smjör til að verða ekki uppiskroppa með hráefni fyrir jólin. Fordæmalaus sölusprenging Sigurður Loftsson segir að fram- leiðslan hafi dalað meira í haust en venja hefur verið til. Tengir Sigurður það því að illa hafi árað og minna út úr framleiðslunni að hafa. Mjólkursamsalan hefur verið gagnrýnd á bændafundum síðustu vikurnar fyrir að bregðast ekki fyrr við söluaukningu. Sú gagnrýni hefur einnig komið fram hjá stjórn Lands- sambands kúabænda. „Við hefðum viljað fá snarpari viðbrögð frá Mjólk- ursamsölunni,“ segir Sigurður og getur þess að ákvörðun um að greiða fullt verð fyrir alla umframmjólk hefði mátt koma fyrr. „Við trúum því að með því hefði hugsanlega mátt fá framleiðsluaukninguna fyrr í gang. Hins vegar ber að virða ákvarðanir þeirra sem bera hina fjárhagslegu ábyrgð,“ segir Sigurður. Hann segir að gera hefði mátt ráð fyrir söluaukningu í takt við það sem verði hefði með einni undantekningu síðustu tíu árin en tekur fram að sölusprengingin í mjólkurfitu sem varð á síðari hluta ársins sé for- dæmalaus og ekki hafi verið hægt að sjá hana fyrir. Til að mæta söluaukningunni í ár og væntanlegri þróun hefur atvinnu- vegaráðuneytið ákveðið að auka heildargreiðslumark í mjólk um 7 milljónir lítra á næsta ári, í 123 millj- ónir lítra. Allir kvígukálfar settir á Kúabændur eru að vinna með lif- andi dýr og það tekur þá augljóslega langan tíma að auka framleiðsluna. Sigurður nefnir fyrst að hægt sé að fresta slátrun á mjólkurkúm og láta þær mjólka lengur en annars verið gert. Það sé skammtímaaðgerð og skili strax einhverri aukningu. Hann segir skýrslur sýna að fyrsta kálfs kvígur séu allt að tveimur mán- uðum eldri þegar þær bera en nauð- synlegt er. Unnt sé að flýta burði með réttum undirbúningi. Ef bænd- ur hafi hugað að þessu í haust komi þessir gripir fyrr inn í framleiðslu næsta haust en annars hefði orðið. Til að fjölga í kúastofninum til lengri tíma þarf að auka ásetning kálfa. Sigurður vill að allir kvígukálf- ar sem fæðast verði settir á, annað hvort á viðkomandi búi eða seldir annað. „Við eigum inni einhverja mögu- leika á að auka meðalnyt í kúastofn- inum, með markvissari fóðrun. Ráð- gjafarmiðstöð landbúnaðarins er að taka á því með okkur,“ segir Sigurð- ur. Hann bætir því við að bændur taki í vetur ákvarðanir um innkaup á áburði og sáðkorni og um aukna ræktun sem muni að öllu eðlilegu hafa áhrif á magn og gæði gróffóðurs á næsta sumri og þar með fram- leiðslu í kjölfarið. Kvótakerfið var sett á til að tak- marka framleiðslu mjólkur. Núver- andi búvörusamningar renna út í lok árs 2016. Sigurður telur að þær breytingar sem orðið hafi á sölu á þessu ári gefi ekki tilefni til þess að afnema framleiðslustýringuna en ef þróunin haldi áfram og bændur hafi markað fyrir alla mjólk sem þeir geta framleitt og fengið ásættanlegt verð fyrir, þurfi að ræða það hvort annars konar fyrirkomulag henti betur. Spennandi áskorun að takast á við  Formaður kúabænda segir að bændur hafi möguleika á að auka mjólkurframleiðsluna  Flestar aðgerðir skila sér á löngum tíma  Hefði mátt auka framleiðsluna fyrr með snarpari viðbrögðum Morgunblaðið/Eggert Í fjósi Bændur hafa einhver tækifæri til að auka mjólkurframleiðsluna strax og hafa sumir nýtt þau en flestar var- anlegar aðgerðir taka langan tíma. Björgvin Guðmundsson, bóndi í Vorsabæ í Austur-Landeyjum, hugar að kúnum. Mjólkurneysla » Sala á fitu hefur aukist mjög á síðustu tíu árum, eða úr sem svarar til 98 milljónum lítra í 119 milljónir lítra. » Sala á próteini var alltaf meiri en í fitu en nú í fyrsta skipti minni. » Ef neyslan er reiknuð á hvern íbúa sést að neysla á mjólkurpróteini hefur minnkað á tíu ára tímabili en fitusala aukist verulega. Neysla mjólkur *Áætlun 100 80 60 40 20 0 Próteinsala í milljónum lítra Fitusala í milljónum lítra ‘04 ‘05 ‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* Sigurður Loftsson www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnurgegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt aðminnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong Bílastæðum á Hofsvallagötu verður fjölgað að vestanverðu, fuglahús og flögg tekin niður, eyja að austan- verðu tekin burt og miðlína löguð að norðanverðu. Verkið verður unnið í desember og er gert ráð fyrir að það taki 4-6 vinnudaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en þar segir að unnið verði skv. tillögum sem gerðar voru í samráði við íbúa í Vesturbæ. Talsverður styr hefur staðið um framkvæmdirnar og gagnrýndu íbú- ar í hverfinu að þær yllu þrengslum. Fram kom í fyrri tilkynningu í haust að kostnaður við 1.374 hjóla- merkingar í götunni væri alls 7.144.800 kr. Alls kostuðu fram- kvæmdirnar 17,7 millj. og fuglahús þar af 155 þúsund. Upplýsinga- fulltrúi borgarinnar hafði ekki upp- lýsingar um hvað verkið nú kosti. Fuglahús fjarlægð á Hofsvallagötu  Framkvæmdin tekur 4-6 vinnudaga Morgunblaðið/Rósa Braga Umdeilt Svona leit Hofsvallagata út eftir breytingarnar fyrr í haust.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.