Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 Ef ég skyldi nokkru nenna næ ég slitnum aulapenna. Utan dáðra mikilmenna mér finnst gott að tala um Jenna. Alúðlegur prúður piltur pasturssmár, í orðum stilltur. Þó margur sé af hamstri hylltur, hann var aldrei stefnuvilltur. Oft í verki höndin hög hamri beitti, nagla, sög. Verkin smá, en vönduð mjög. Vinur minn um láð og lög. Jens Ragnar Nikulásson ✝ Jens RagnarNikulásson fæddist í Reykjavík 10. júní 1955. Hann lést á heimili sínu Engelbrektsgatan 137, Borås í Svíþjóð, 9. desember 2013. Útför Jens Ragnars fór fram frá kapell- unni í St. Sigfrids griftegård í Borås 8. janúar 2014. Austan hafs er veröld víð, vinna næg hjá sænskum lýð. Hjá þeim laus við nagg og níð nam og vann að rennismíð. Nú við heimsins darradans dreifir sitthvað gleði manns. Mér finnst gott að minnast hans, manns er hvarf í heimsins fans. Þegar Jens í Sviðnum afi hans og nafni dó orti Jón frá Skáleyj- um um hann. Ég vil að endingu gera orð hans að mínum af þessu tilefni: Sigla enn um sundin blá signd af þrenningunni skip. En Jenni er fallinn frá feyskja í menningunni. Jóhannes Geir Gíslason (Jói í Skáleyjum). Það var alltaf gaman að fara á Blönduós og heimsækja ömmu Ingibjörgu og afa Jósafat. Pétursborgin þeirra var eins og ævintýraland sem var umvafið hinni stórhættulegu Blöndu og úfnum sjónum. Þarna var kjallarinn hans afa og til að fara í hann var farið í gegnum búr- ið hennar ömmu. Afi borðaði skyr- hæring og amma sagði að maður mætti sleppa honum og borða Ingibjörg Kristín Pétursdóttir ✝ IngibjörgKristín Péturs- dóttir fæddist á Skagaströnd 1. september 1921. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 29. desember 2013. Útför Ingibjarg- ar fór fram 9. jan- úar 2014. kókókúlur í staðinn því skyrhræringur- inn var svo hræði- lega vondur. Afi sagði að maður yrði hraustur af skyrhær- ingnum svo auðvitað fékk maður pínulítið hjá honum. Hjá þeim var líka mjólk í pok- um og maður labbaði með ömmu út í „útibú“ að kaupa í matinn. „Útibúið“ var líka ævin- týraheimur því þar var hægt að kaupa allt á milli himins og jarðar. Ferðirnar með ömmu í „útibúið“ voru ævintýri. Þá gat maður spjallað við ömmu um alla heima og geima og hún sagði manni sög- ur af fólkinu sem bjó í húsunum sem við löbbuðum framhjá. Amma og afi fóru líka stundum með mann í bíltúr. Þá var skemmtilegast að keyra að Þúfna- læk og vaða og reyna að príla upp á Gullstein. Afi sagði manni sögur af steininum og amma tók til nest- ið. Afi var mikið í kjallaranum, ég veit ekki alveg hvað hann gerði þar en það var alltaf einhver ævintýra- ljómi yfir honum þegar hann var þar. Einu sinni gerði hann þó rólur sem hægt var að hengja upp úti en það var líka hægt að hengja þær upp inni og róla í þeim í kjallaran- um. Það var skemmtilegast að róla í kjallaranum því þá gat maður ról- að alveg upp í loft. Þegar afi dó flutti amma á Mýr- arbrautina. Þá labbaði maður með henni í Kaupfélagið og keypti grill- aðan kjúkling. Amma keypti líka stundum lax, það var nú ekki eins gaman. Verst var þegar hún borð- aði roðið og saug hausinn. Það fannst henni best og hló að svipn- um sem við krakkarnir settum upp við þessa tilburði hennar. En best þótti ömmu að vinna í garðinum sínum og var þar öllum stundum. Þegar aldurinn fór að færast yfir hana velti hún fyrir sér hvort hún ætti nú ekki að fara að koma sér á elliheimili. En svo fannst henni það óþarfi og keypti sér gróður- hús í staðinn. Gróðurhúsið var því alltaf kallað „elliheimilið“. Þar ræktaði amma eitt og annað og naut sín vel. Amma var vinmörg og iðulega kom einhver í heim- sókn þegar maður var hjá henni. Það þótti mér gott því það var svo vont að vita af henni aleinni á Blönduósi, sérstaklega þegar vet- urinn var snjóþungur. Alltaf mátti treysta á að vinkonur hennar heimsæktu hana og héldu henni félagsskap. Amma var hörð á því að búa á Blönduósi. Hún hafði jú alltaf vinkonurnar, garðinn og föndrið. Amma kom þó suður á Eir þegar elli kelling var farin að leika hana grátt. Þá var gott að vita af henni á Eir og að mamma hitti hana á hverjum degi og gat passað upp á hana. Amma mín var hörkukona sem hafði dug og elju. Hún var hetjan mín og fyrirmynd. Elsku hjartans amma mín, minnig þín lifir í sög- unum sem ég segi börnunum mín- um, kysstu afa frá mér og hvíldu í friði. Þín Ragnheiður Dagný. Elsku mamma, þá er lífshlaup- ið á enda og þú komin hinumegin. Við trúum að þar sé glatt á hjalla hjá þér og pabba og hinum ættingjunum. Þú fæddist í faðmi Snæfellsness sem þú unnir alla tíð, og var þér kærkomið. Þú komst okkur börnunum þínum tíu á legg og hægt er að gera sér í hugarlund að það hafi ekki verið einfalt. En þú skilaðir okkur til samfélagsins sem nýt- um þjóðfélagsþegnum. Okkur rekur ekki minni til að þið pabbi hafið nokkurn tímann Anna Ólína Unnur Annelsdóttir ✝ Anna ÓlínaUnnur Annels- dóttir fæddist í Helludal í Bervík á Snæfellsnesi 31. október 1931. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 21. desem- ber 2013 og fór útför hennar fram í kyrrþey. skammað okkur, sama hvað gekk á. Þegar þú varst spurð hvort ekki hefði verið erfitt að ala upp allan þennan skara af börnum svaraðirðu: „Nei, þau voru svo þæg og góð, betri börn er ekki hægt að hugsa sér.“ Mörg áföll sem á þér dundu á lífsleiðinni voru þér þungbær. Veikindi sem hrjáðu þig og pabba sem þú studdir og hjálpaðir í veikindum hans, en þú barst ekki tilfinningarnar á torg heldur tókst á við þær í einrúmi. Minnisstætt er þegar þú og systurnar, Ásgerður og Huldís, hittust, þá var glatt á hjalla og sögurnar sagðar með miklum til- þrifum, þó þú hafir yfirleitt látið þær um að tala. Hárið varð að vera í lagi hjá ykkur og lífsnauðsynlegt að fara reglulega í greiðslu. Pabbi var ástin í lífi þínu enda glæsilegur maður. Þú varst mikil húsmóðir, þrifin og gerðir störfin átaka- laust. Maturinn hjá þér var í miklu uppáhaldi hjá okkur. T.d, fiskibollur og kjötsúpa. Svo spáðir þú í bolla, þá reynd- ir þú að tala um jákvæða hluti við þann sem spáð var fyrir. Þú hélst alltaf með lítilmagnanum í þjóð- félaginu. Þú kenndir okkur að fara ekki í manngreinarálit held- ur bera virðingu fyrir náungan- um. Þú kaust alla tíð Framsóknar- flokkinn og varst stolt af því og mjög þjóðrækin. Þú varst alla tíð vinmörg, eins og þegar þú fluttir á Framnes- veginn og kynntist þeim mætu hjónum Erlu og Hauki, Jónu og Gunnari (sem öll eru fallin frá). Þetta var þér dýrmætt, að hittast kaffi og kannski smá „gluss“, eins og þau Benný og Jón sem hjálp- uðu þér síðustu árin í veikindum þínum, buðu þér í mat, keyrðu þig og pössuðu kisuna þegar þú varst á spítala, það er ómetanlegt. Hafa þau okkar bestu þakkir fyrir. Alltaf var tónlist í kringum þig og voru Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ragnar Bjarnason í mestu uppáhaldi. Allar kisurnar sem hafa fylgt þér í gegnum tíðina eru fjölmargar, stundum fleiri en ein og tvær og sú síðasta, Lísa, fylgdi þér til lokadags. En nú er ferðin á enda og við vitum að þú átt eftir að fylgjast með hópnum þínum, passa upp á okkur. Við þökkum þér, elsku mamma, fyrir allt sem þú kenndir okkur, við munum hafa það að leiðarljósi fyrir okkur og aðra af- komendur þína. Með þessari hinstu kveðju lát- um við fylgja ljóð sem heitir Haustvísur sem afi þinn, Jón Ólafsson frá Einarslóni, samdi. Hallar sumri, hausta fer, hreyfast skuggatjöldin. Hvarvetna um ættland er orðið dimmt á kvöldin. Gustar vindur, harla hár, hrekur yndi lýða. Á fjallatinda fellur snjár, frjósa lindir víða. (Jón Ólafsson) Hvíl í friði, elsku mamma, þín verður sárt saknað. Minning þín mun aldrei gleym- ast. Þín Agnar Breiðfjörð, Halldór Rúnar, Aðalsteinn, Jón Ás- geir, Hansborg, Annel, Guð- laug, Steinunn, og Björg. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, EYGERÐAR BJÖRNSDÓTTUR, Lækjargötu 34 B, Hafnarfirði. Börn, tengdabörn og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar eiginkonu, móður og tengdamóður, GUÐBJARGAR JÓHÖNNU BACHMANN, sem lést föstudaginn 3. janúar á Hjúkrunar- heimilinu Eir. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks heimahjúkrunar sem og starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Eir, deild 3.S, fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Björgúlfur Bachmann, Helga S.L. Bachmann, Hallgrímur S. Hallgrímsson. Kæri frændi, það er sárt að þurfa að kveðja þig í blóma lífsins. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Eiríkur Ómar Sveinsson ✝ Eiríkur ÓmarSveinsson fæddist í Reykja- vík 13. febrúar 1955. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 25. desember 2013. Útför Ómars fór fram frá Dóm- kirkjunni 14. jan- úar 2014. Biðjum við góðan Guð að styrkja fjöl- skyldu þína í sorg sinni. Ólafur, Lárus, Helga, Erla og fjölskyldur. Þegar ég var á þriðja ári fór ég í fylgd móður minnar til læknis. Hann spurði mig hvað ég héti, um aldur og hvort ég ætti einhver systkin. Ég sagði til nafns, að ég væri tveggja ára og jú ég ætti bæði bróður og systur. Bróðir minn héti Ómi og systir mín Lóa. Þessi systkini móð- ur minnar hafa alla tíð verið mér sem eldri systkin frekar en frændi og frænka, enda bjuggum við undir sama þaki fyrstu ár ævi minnar. Ómi tók mikið af myndum af mér lítilli. Þær framkallaði hann sjálfur og stækkaði og ég á þær enn í dag. Hann hafði mikinn áhuga á að kenna mér að ganga enda fór svo að ég tók mín fyrstu skref með honum. Þegar mamma hélt utan til náms fékk ég að dvelja vetrarlangt í góðu yfirlæti hjá Óma og fjölskyldunni hans. Eva heitin var þá tveggja ára og Svenni var varla mánaðar gam- all. Það var mikil upplifun fyrir mig að fá að vera eins og stóra systir þeirra þennan vetur. Þegar ég flutti að heiman tvítug var ég afar lukkuleg með að fá leigt herbergi í kjallaranum hjá þeim Imbu og Óma á Flókagöt- unni. Oft gekk mikið á þarna í kjallaranum þar sem við vinkon- urnar leigðum sitt herbergið hvor. Stundum kom Ómi niður og við spiluðum CCR og sungum hástöf- um með. Mér þótti ósköp vænt um þær stundir. Veikindi og andlát Evu voru okkur fjölskyldunni mikill harmur og tóku verulega á Óma. Stuttu eftir að hún lést bauð ég honum með mér til New York. Þar áttum við frábærar stundir saman, fór- um á tónleika með Crosby, Stills Nash and Young í Atlantic City, fengum okkur steik og lentum í ævintýrum. Hann hafði alltaf mik- inn áhuga á starfinu mínu og við skiptumst á skoðunum um eitt og annað varðandi flugvöllinn, hann út frá sjónarmiði stjórnandans en ég flugmannsins. Í gegnum árin hefur alltaf verið gott og kærleiksríkt samband á milli okkar Óma. Eftir að þau fjöl- skyldan fluttu svo hingað í Garða- bæinn hefur Imba verið dugleg að bjóða okkur í mat og þær stundir eru nú ómetanlegar í mínum huga. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að þurfa að kveðja hann Óma minn svona snemma á lífsleiðinni. Ekki bjóst ég heldur við því að samtalið sem við áttum uppi á spítala nokkrum dögum fyrir jól yrði okkar síðasta. Ég þurfti starfs míns vegna að dvelja er- lendis um jólin og fór því og kvaddi Óma daginn sem ég fór af landi brott. Hann var sofandi þeg- ar ég læddist inn til hans en opn- aði augun og tók á móti kveðjunni minni: „Bless Ómi minn, við sjáumst þegar ég kem heim.“ Elsku Imba mín. Mikill er þinn missir. Þið voruð svo samhent og flott hjón. Það var svo augljóst hvað hann var ástfanginn og stolt- ur af þér alla tíð. Elsku Svenni, Egill og Þóra, innilegustu samúð- arkveðjur til ykkar elsku frændur mínir og frænka. Elsku mamma og Lóa, hugur minn er hjá ykkur. Á himnum sameinast nú ástvin- ir. Ómi er laus við þjáningar þessa heims og á endurfundi við Evu sína og foreldra. Hann er komin heim. Eftir sitjum við hér og syrgjum góðan dreng. Ég endur- tek hinstu orðaskipti okkar og segi: Bless Ómi minn, við sjáumst þegar ég kem heim. Þín, Sigrún. HINSTA KVEÐJA Það er þungbært að þessi flinki og skemmtilegi félagi skuli genginn, langt um aldur fram, frá fjöl- skyldu sinni og óloknum verkefnum. Blessuð sé minning hins ljúfa og góða drengs Ómars Sveinssonar. Halldór Guðmundsson. Elsku amma, það er svo margt sem flýgur í gegnum huga minn þegar ég hugsa til þín. Ég var svo heppin að fá að vera heimagangur hjá ykkur afa hvort sem var á Flateyri eða Gerðhömrum og þegar við vor- um öll komin hingað á Ísafjörð þá var mikið farið í heimsóknir. Þegar við Sigurður eignuðumst Sigrúnu Jónínu fannst mér ekki koma annað til greina en að láta hana heita í höfuðið á ykkur afa. Allt sem þú saumaðir, hvort sem það var á þig, mig eða aðra, var vandað og allir bútar nýttir enda varst þú mikill saumasnill- ingur, og ég tala nú ekki um Guðmunda Jónína Guðmundsdóttir ✝ GuðmundaJónína Guð- mundsdóttir fædd- ist á Brekku á Ingj- aldssandi 10.6. 1926. Hún lést á öldrunardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Ísafirði 31.12. 2013. Útför Guðmundu fór fram frá Ísafjarð- arkirkju 11. janúar 2014. kleinurnar og hveitikökurnar, ég var svo lánsöm að læra að gera hveiti- kökur (ömmukökur eins og ég kallaði þær) með þér. Þeg- ar þú komst til okkar Sigurðar í skötuna núna fyrir jólin sagðir þú að þetta væru bestu hveitikökur sem þú hefðir fengið. Þú varst alltaf svo stolt af öllum afkomendum þín- um og varst alltaf að spyrja hvað þeir væru orðnir margir, eins og þú sagðir; „eru stelp- urnar búnar að telja saman?“ og nefndir það líka hve margar stelpurnar væru og strákarnir fáir. Það var svo gaman hvað þú varst dugleg að koma til okkar meðan þú mögulega gast, þegar börnin áttu afmæli, matarboð eða bara koma í heimsókn og spjalla saman um gamla tímann og þann nýja. Minningarnar eru margar um ykkur afa og ylja okkur um hjartarætur um ókomin ár. Elsku amma okkar, takk fyrir allt. Árný og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.