Málfríður - 15.03.2011, Síða 10

Málfríður - 15.03.2011, Síða 10
Milli mála er heiti nýs ársrits Stofnunar Vigdísar Finn boga- dóttur, sem kom út í fyrsta sinn vorið 2010. Ritið hefur að geyma fræðigreinar á íslensku og erlendum tungumálum. Rit- stjórar fyrsta ársritsins voru Magnús Sigurðsson aðjúnkt í þýsku og Rebekka Þráinsdóttir aðjúnkt í rússnesku. Ritið inni- heldur fjórtán greinar um tungu- mál og tungumálakennslu frá ólíkum sjónarhóli: – tungumálakennsla á Íslandi, einkum á nítjándu öld, – mikilvægi leitarinnar í Sögunni um gralinn og hlut- verk lesandans, – notkun ensku sem samskiptamáls og niðurstöður könnunar á hlutfalli námsefnis á ensku í íslenskum háskólum, – saga tveggja orða úr spænsku sjómannamáli sem virðast vera tökuorð af norrænum uppruna, – saga spænskrar kvikmyndagerðar og efnistök í nám- skeiðum, – eiginleikar og flokkun fastra orðasambanda á grunni rannsókna svissneska fræðimannsins Haralds Burgers, með dæmum og hugtakaheitum, – handleiðsla við ritun háskólaritgerða þar sem sam- ræða og samvinna eru lykilatriði, – tilvitnanir í rómverska skáldið Ovidius í ritum, og þá einkum deiluritum Arngríms Jónssonar lærða, – hliðstæður í samfélagsrýni ítalska rithöfundarins og kvikmyndaleikstjórans Piers Paolos Pasolinis og bandaríska fræðimannsins Christophers Lasch, – kostir hlaðvarps sem kennslumiðils, – miðlun ítalskrar sögu og tungu í kennslu þar sem tungumálið og almennir þekkingarþættir eru sam- ofnir, – sértæk framburðarvandamál íslenskra rússnesku- nema, – náms- og kennsluaðferðir sem stuðla að skilvirkri tileinkun orðaforða, – tölvustutt nám í fjarkennslu í dönsku á háskólastigi. Ársrit númer tvö er nú skammt undan, en ritstjórar þess eru Erla Erlendsdóttir, dósent í spænsku og Rebekka Þráinsdóttir, aðjúnkt í rússnesku. Nýlega kom út bókin Open Sources: safn greina og fyrir- lestra í ritstjórn Birnu Arnbjörnsdóttur og Matthew Whelpton. Bókin hefur að geyma safn greina og fyrir- lestra frá ráðstefnunni „Open Sources“ sem var loka- hnykkur Covcell-verkefnisins sem miðar að opnu aðgengi að hugbúnaði til tungumálakennslu í gegnum Moodle-fræðslukerfið. Þá má nefna bókina Raddir frá Kúbu: Smásagnasafn með fjórtán sögum um konur frá Kúbu. Sögurnar eru skrif- aðar á áratugunum eftir byltingu og eru fjölbreyttar að stíl og efni. Erla Erlendsdóttir dósent í spænsku valdi sögurnar og þýddi og ritaði inngang ásamt Luisa Campuzano forstöðumanni rannsóknastofu í kvenna- fræðum við Casa de las Américas stofnunina. Tvímála útgáfa Sérstök ástæða er til að vekja athygli tungumálakenn- ara á tvímála útgáfum stofnunarinnar, en í þeirri rit- röð má nefna nýja þýðingu Ásdísar R. Magnúsdóttur á Útlendingnum, hinu rómaða skáldverki Albert Camus. Ásdís ritar einnig eftirmála um ævi höf- undarins og verk hans. Í bókarlok er viðauki með hugleiðingum og æfingum fyrir nemendur. Ritstjórn annaðist Irma Erlingsdóttir. Af eldri tvímála útgáfum er sérstök ástæða til að vekja athygli á Umskiptunum eftir Franz Kafka í þýðingu Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar, sem Gauti Kristmannsson ritstýrði, og hinu sígilda verki Yermu eftir Federico Garcia Lorca í þýðingu Margrétar Jónsdóttur og Karls Guðmundssonar. Álfrún Gunnlaugsdóttir ritstýrði verkinu. Þessar bækur ættu að henta vel til tungumála- kennslu í framhaldsskólum. Rithöfundar tjá sig um tungumál og mikilvægi tungumálakunnáttu Að lokum má nefna að Stofnun Vigdísar hefur nýverið gefið út bókina Tungumál ljúka upp heimum. Orð handa Vigdísi, en hún hefur að geyma texta 27 þekktra íslenskra rithöfunda um mikilvægi tungumála og tungumála- kunnáttu. Með bókinni vilja rithöfundarnir leggja sitt af mörkum til að draumur Vigdísar um alþjóðlega tungumálamiðstöð geti ræst. Auður Hauksdóttir rit- stýrði bókinni. Ritstjórar ritraða Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur eru þau Ásdís R. Magnúsdóttir prófessor, Erla Erlendsdóttir dósent og Gauti Kristmannsson dósent. 10 MÁLFRÍÐUR Áhugaverðar bækur um tungumál og menningu hjá Stofnun Vigdísar Ársritið Milli mála

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.