Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 18
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginkona mín og móðir, ODDNÝ ERLA SIGURBJÖRNSDÓTTIR SADOWINSKI Buena Park, Kaliforníu, lést á Íslandi 21. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Waldemar Sadowinski Robert Jack Anderson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÁRA STEFÁNSDÓTTIR Vetrarbraut 15, Siglufirði, andaðist föstudaginn 26. apríl á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 4. maí kl. 14.00. Sigmar Magnússon Magnús Steinar Helga Sveinsdóttir Sigursveinn Stefán barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS INGA PÁLSSONAR Jakaseli 18, Reykjavík. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Bergþóra Björnsdóttir Páll Grétar Jónsson Bryndís Gunnlaugsdóttir Rut Jónsdóttir Magnús Vignir Guðmundsson og barnabörn. Okkar ástkæri JÓN ÞÓR TRAUSTASON sem lést af slysförum 21. apríl sl. verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitirnar. Díana S. Sveinbjörnsdóttir Linda Björk Jónsdóttir Aron Örn Jónsson Sólveig Eva Pétursdóttir Egill Þór Jónsson Ellen Katrín Kristinsdóttir Þórunn Jónsdóttir Steinn Þór Karlsson Sigurbjörg Jóna Ágúst Friðgeirsson Pétur Kristinn Elín Valdís Rögnvaldur Guðmundsson Gróa Guðbjörg Óttar Már Ellingsen Steinþór Darri Ingibjörg Halldórsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KÁRI SÖEBECK KRISTJÁNSSON Miklubraut 64, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 27. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Ísleifsdóttir Kristín Káradóttir Albert Sigtryggsson Sigríður Káradóttir Guðjón Guðmundsson Tryggvi Kárason Guðrún R. Rafnsdóttir Trausti Kárason Selma Rut Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU ÓLAFSDÓTTUR frá Látrum í Aðalvík, Seljahlíð, áður Brúnavegi 3. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar og hjúkrunarfólks á 13G Landspítala við Hringbraut. Sigríður Gunnarsdóttir Theódór Gunnarsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN TÓMAS INGJALDSSON fv. aðalbókari Seðlabanka Íslands, Sæviðarsundi 60, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi hinn 27. apríl sl. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir Margrét Jóhannsdóttir Hálfdán S. Helgason Ingi Gunnar Jóhannsson Kristín G. Hákonardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Fjölbreytt úrval legsteina Frí áletrun og uppsetning Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88 Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum) Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði www.granithollin.is Sími 555 38 88 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VIGDÍS MAGNÚSDÓTTIR lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík þriðjudaginn 23. apríl sl. Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 3. maí nk. kl. 13.00. Magna Sigbjörnsdóttir Ómar Möller Gunnar Hallsson Oddný Guðmundsdóttir Þóra Hallsdóttir Þórlindur Ólafsson Erla Hallsdóttir Pétur Haraldsson Hallur Hallsson Shaunna Hallsson börn, barnabörn og barnabarnabörn. Það er dálítið merkilegt að UNESCO hafi valið þetta verkefni, að halda djassdag. Við sjáum þetta sem tæki- færi til að vekja athygli á þessari tónlist á breiðum grundvelli,“ segir Sigurður Flosason saxófónleikari um Alþjóðlega djassdaginn sem haldinn er í fyrsta sinn á Íslandi í dag en hann var fyrst haldinn erlendis í fyrra. „Á Alþjóðlega djassdeginum sam- einast heimsbúar allir í friði og sátt til þess að deila ástríðu sinni fyrir tón- list hver með öðrum og til þess að taka höndum saman í nafni frelsis og sköp- unargleði,“ segir Irina Bokova, aðal- framkvæmdastjóri UNESCO. „Þess vegna stóð UNESCO fyrir því að fagna Alþjóðlega djassdeginum í fyrsta sinn árið 2012, þá í samstarfi við velvildar- sendiherrann og djasssnillinginn Her- bie Hancock. Alþjóðlegi djassdagurinn er stund milli stríða fyrir okkur öll til að tjá friðarvilja.“ Sigurður heldur sjálfur útgáfutón- leika á Kexi Hosteli í kvöld í tilefni af plötunni Nightfall sem kemur út á vegum dönsku útgáfunnar Story- ville. Plötuna vann hann með fremsta Hammond-leikara Dana, Kjeld Laurit- sen. Einnig spiluðu á plötunni Jacob Fischer og Kristian Leth. „Það er gaman að útvíkka sinn markað aðeins og spila fyrir annað fólk í öðrum löndum og með öðrum músíköntum,“ segir Sigurður, sem hefur spilað tölu- vert í Danmörku síðustu árin.“ freyr@frettabladid.is Alþjóðlegur djassdagur stund milli stríða Málþing verður haldið í Hörpu og tónleikar á þremur stöðum í tilefni Alþjóðlega djass- dagsins sem haldinn verður í annað sinn í dag en í það fyrsta á Íslandi. MEÐ ÚTGÁFUTÓNLEIKA Saxófónleikarinn Sigurður Flosason heldur útgáfutónleika á Kexi hosteli í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á þessum degi fyrir 22 árum tók ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, undir forsæti Davíðs Oddssonar, við völdum. Sú stjórn hefur verið kölluð Viðeyjarstjórn þar sem hún var mynduð í Viðey á einungis fjórum dögum. For- maður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, varð þá utanríkisráðherra. Stjórnin kvaðst berjast við mikinn for- tíðarvanda sem fælist í hallarekstri á ríkissjóði, tómum sjóðum vegna mis- heppnaðra fjárfestinga í fiskeldi og loðdýrarækt og hættu á verðbólgu. Með aðhaldi í fjármálum og peningamálum tókst að halda verðbólgu í skefjum en það auðveldaði starf stjórnarinnar að aðilar vinnumarkaðarins höfðu gert þjóðarsátt árið 1990 um hóflegar launa hækkanir. Einnig voru ýmsir opinberir sjóðir lagðir niður og strangar reglur settar um Byggðasjóð. Eitt fyrsta verk stjórnarinnar var að viðurkenna á ný sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens, eftir hrun Sovétríkjanna og varð Ísland fyrst ríkja til að gera slíkt. Halla í rekstri íslenska ríkisins var á nokkrum árum snúið í afgang, sem síðan var notaður til að lækka skuldir. Atvinnulífið opnaðist verulega þegar Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu árið 1994 og var kvótakerfið fest í sessi með margvíslegri löggjöf. ÞETTA GERÐIST: 30. APRÍL 1991 Viðeyjarstjórnin tekur við völdum Í tilefni Alþjóðlega djassdagsins stendur íslenska UNESCO-nefndin í samstarfi við Tónlistarskóla FÍH fyrir viðburði í Hörpu kl. 17-18.30 undir yfirskriftinni „Hvað er djass?“. Um er að ræða málþing um djass þar sem Vernharður Linnet, Tómas R. Einars- son, Sigurður Flosason, Lana Kolbrún Eddudóttir, Egill B. Hreinsson og Pétur Grétarsson flytja erindi. Einnig verða í dag haldnir djasstónleikar á Jómfrúnni, Kexi og Café Rosenberg. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði. Hvað er djass?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.