Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 28
FÓLK| HEIMILI GRÆNN APRÍL Þeir fjölmörgu sem eru með græna hugsun hafa snúið sér að því að nota eingöngu lífrænt ræktaða bómull í daglegu lífi. Það á við um fatnað, fylgihluti, rúmföt, mottur og handklæði. Markaður fyrir vörur úr líf- rænni bómull hefur vaxið mikið á undanförnum árum og er talið að það sé um að minnsta kosti 20% á undanförnum árum. Að velja lífrænt ræktaða bómull er nauðsynlegt fyrir jörðina og heilsu fólks. Lífrænir bændur nota ekki erfðabreytt fræ og framleiðslan fer eftir ströngum kröfum um ræktun, allt frá sáningu til uppskeru og til fullunnar vöru. Í vinnslu vörunnar eru ekki notuð neins konar eiturefni. Talið er að enn noti um 16% bómullarbænda skordýraeitur. Þetta eitur hefur áhrif á heilsu manna og dýra. Eituráhrifin koma víða fram í náttúrunni auk þess að smitast út í ár og vötn með alvar- legum afleiðingum fyrir sjávarlíf og jafnvel vatnsból. Rannsóknir hafa sýnt að eiturefni sem notuð eru á bómullarökrum hafa fundist í fólki. Framleiðsla á lífrænni bómull er bæði erfiðari og dýrari en ræktun með eiturefnum. Þar af leiðandi verður fatnaður mun dýrari sem framleiddur er á vist- vænan hátt. Eftirspurn og verðlag hafa því áhrif á framleiðsluna. Þegar fólk kaupir lífræna bómull styður það við vistvæna framleiðslu, sem hvetur framleiðendur til að fara fremur þá leið í ræktuninni. Stærstu bómullarræktarhéruðin eru í Bandaríkjunum, Indlandi og Kína. Fólki sem hefur einhvers kon- ar húðvandamál, exem eða ofnæmi líður oft mun betur noti það fatnað úr lífrænt ræktaðri bómull. Ágætt er að hafa í huga að í nærfatnaði unga- barna sé vönduð og hrein bómull. VELJUM LÍFRÆNA BÓMULL Bómull er ekki endilega sú hreina og náttúrulega afurð sem margir halda. Í mörgum löndum er óhemju mikið notað af eitur- og kemískum efnum í bómullarrækt. VINNSLA Bómullar- vinnsla á Indlandi. MYND/GETTY Í bókinni tökum við fyrir verk-efni sem urðu næstum því að veruleika, byggingar sem aldrei voru byggðar og byggingar sem risu annars staðar en upp- haflega stóð til. Fáir vita til dæmis að framkvæmdir voru hafnar við byggingu Alþingishússins í Banka- stræti en þegar arkitektinn kom frá Danmörku sá hann að hallinn í brekkunni var meiri en hann hafði reiknað með. Húsinu var því fundinn núverandi staður,“ segir Guðni Valberg arkitekt, sem ásamt Önnu Dröfn Ágústsdóttur sagnfræðingi vinnur að bók um Reykjavík eins og hún hefði getað orðið. Verkefnið fékk styrk úr Minn- ingarsjóði Guðjóns Samúelssonar, sem veitt var úr í tíunda sinn á föstudaginn var. Áætlað er að bókin komi út haustið 2014 og segir Guðni hana frekar ætlaða almenningi en arkitektum. „Bókin verður sett upp á mjög myndrænan hátt. Við teiknum upp verkefnin í þrívídd og fellum inn í ljósmyndir af svæðunum sem um ræðir. Sum verkefnanna eru alveg frábær en önnur eru hreinlega „absúrd“ og börn síns tíma. Til dæmis voru margar stór- karlalegar hugmyndir í gangi á 4., 5. og 6. áratugnum, eins og sú að þurrka út Grjótaþorpið og fylla svæðið af stórhýsum.“ Guðni segir einnig þó nokkrar hugmyndir Guðjóns Samúelsson- ar sjálfs, húsameistara ríkisins, ekki hafa náð fram að ganga og nefnir háborgina sem hann teikn- aði á Skólavörðuholtið. Þá hafi Sundhöll Reykjavíkur upphaflega verið teiknuð með þremur stórum burstum og Landspítalahúsið hafi átt að vera þrefalt stærra en það varð. „Tilgangurinn með bókinni er ekki síst sá að benda fólki á að alltaf hafa staðið deilur um opinberar byggingar í borginni, staðsetningu þeirra og útlit. Það er gömul saga og ný. Meira að segja stóðu deilur um byggingar sem fólki finnst í dag sjálfsagt að standi þar sem þær eru, eins og Alþingishúsið,“ segir Guðni. En væru einhverjar þessara tillagna framkvæmanlegar í dag? „Guðjón Samúelsson hannaði stórt torg fyrir framan Þjóðleik- húsið sem átti að teygja sig upp á Laugaveg. Þá tillögu væri hægt að framkvæma í dag,“ segir Guðni. Úr sjóðnum hlutu einnig styrk Dennis D. Jóhannesson og Hjör- dís Sigurgísladóttir arkitektar vegna útgáfu rannsóknarverk- efnisins Íslensk byggingarsaga – áhrif frá Bretlandseyjum. Þá hlaut einnig styrk Pétur H. Ármannsson arkitekt vegna útgáfu yfirlitsrits um ævi og verk Gunnlaugs Hall- dórssonar arkitekts. ■ heida@365.is ABSÚRD HUGMYNDIR ARKITEKTÚR Veitt var í tíunda sinn úr Minningarsjóði Guðjóns Samúelssonar fyrir helgi. Verkefnin snú- ast um skrásetningu arkitektúrs af ýmsum toga, meðal annars í þeirri Reykjavík sem hefði getað orðið. STYRKIR ÚR SJÓÐI GUÐJÓNS SAMÚELSSONAR Dennis D. Jóhannesson og Hjör- dís Sigurgísladóttir, Guðni Valberg og Anna Dröfn Ágústsdóttir. Pétur H. Ármannsson vantar á myndina. MYND/DANÍEL ■ SKOTTHÚFUR Arnþrúður Ösp Karlsdóttir opnar á morgun sýninguna MEÐ RAUÐAN SKÚF í Her- berginu í Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4. Þar sýnir hún prjónahönnun, skotthúfur og lambhúshettur úr íslenskri ull. Arnþrúður Ösp er lærður handavinnukennari frá Hånd- arbejdet Fremmes Seminarium í Danmörku og textílhönn- uður frá Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands. Hún hefur kennt í grunnskólum, fram- haldsskólum, Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Mynd- listaskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Sýningin verður opnuð klukkan 15 á morgun og stendur til 13. maí 2013. SÝNIR SKOTT- HÚFUR ÚR ULL Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.