Fréttablaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 10. maí 2014 | HELGIN | 29
Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ samþykktu í vikunni
eigin tillögu í bæjarstjórn þess efnis að samhliða
sveitarstjórnarkosningunum verði afstaða bæjarbúa
til heilbrigðisþjónustu í bænum könnuð. Bæjarbúar
verða því spurðir: Telur þú þörf á að bæta þjónustu
heilsugæslunnar í Reykjanesbæ?
Heilsugæslan hefur verið í ólestri í Reykjanesbæ,
segir Árni Sigfússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins.
„Við viljum spyrja íbúana hvort þeir vilji að bærinn
komi að heilsugæslunni,“ segir Árni.
Hann segist gera ráð fyrir að meirihluti bæjarbúa
sé ósáttur við þjónustu heilsugæslunnar, og því þurfi
að ákveða hvernig eigi að laga hana.
„Við þurfum að ákveða hvort bærinn eigi að koma
að þessu með einhverjum hætti,“ segir Árni. Hann
segir einnig möguleika að ríkið bæti þjónustuna,
eða farið verði í útboð á þjónustunni með svipuðum
hætti og gert hafi verið í Salahverfi í Kópavogi.
Hann segir ekki standa til að Reykjanesbær taki
peninga úr sínum sjóðum til að reka heilsugæsluna.
Tillaga sjálfstæðismanna er allt of seint fram
komin og ólöglegt að gera þessa könnun meðfram
kosningunum, segir Kristinn Jakobsson, oddviti
Framsóknarflokksins. „Mér finnst þetta bíræfni af
hæstu gráðu að koma þessu kosningamáli þeirra inn
í kjörklefann.“ Hann segir þetta ekki réttu lausnina.
„Framsóknarmenn munu vaða eld og brennistein til
að bæta þjónustu heilsugæslunnar, en það er ekki
rétta lausnin að bærinn taki hana yfir.“
Samfylkingin er á móti einkavæðingu heil-
brigðis þjónustunnar, og var eini flokkurinn sem var
andsnúinn sölu á hluta HS Orku til einkaaðila, segir
Friðjón Einarsson, oddviti flokksins. „Þetta nýja
útspil um heilsugæsluna teljum við tilraun til að slá
ryki í augu kjósenda. Við erum alfarið á móti því að
Reykjanesbær taki að sér rekstur heilsugæslu til þess
eins að ýta henni í hendur einkaaðila, eins og þeirra
hugmyndir ganga út á.“ Píratar eru einnig algerlega
andvígir því að Reykjanesbær taki yfir heilsugæsluna
í bænum. „Það er eiginlega ómögulegt, ég skil
ekki hvernig það ætti að ganga þegar bærinn er í
bullandi mínus,“ segir Trausti Björgvinsson, oddviti
Pírata.
KÖNNUN UM HEILBRIGÐISMÁLIN SAMHLIÐA KOSNINGUNUM
1. sæti Gunnar
Þórarinsson
2. sæti Elín Rós
Bjarnadóttir
3. sæti Davíð Páll
Viðarsson
4. sæti Alexander Ragnarsson
Á Frjálst afl
D Sjálfstæðisflokkurinn
1. sæti Árni
Sigfússon
2. sæti Magnea Guð-
mundsóttir
3. sæti Böðvar
Jónsson
4. sæti Baldur Guðmundsson
PíratarÞ
1. sæti Trausti
Björgvinsson
2. sæti Tómas Elí
Guðmundsson
3. sæti Einar Bragi
Einarsson
4. sæti Páll Árnason
Y Bein leið
1. sæti Guðbrandur
Einarsson
2. sæti Anna Lóa
Ólafsdóttir
3. sæti Kolbrún Jóna
Pétursdóttir
4. sæti Kristján Jóhannsson
FRAMBOÐSLISTAR
Í REYKJANESBÆ
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
GÓÐ KAUP
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
B Framsóknarflokkurinn
1. sæti Kristinn
Jakobsson
2. sæti Halldóra
Hreinsdóttir
3. sæti Halldór Ár-
mannsson
4. sæti Bjarney Rut Jensdóttir
SamfylkinginS
1. sæti Friðjón
Einarsson
2. sæti Guðný Birna
Guðmundsdóttir
3. sæti Eysteinn
Eyjólfsson
4. sæti Dagný Steinsdóttir
ÁRIÐ 2014
24,7 milljarðar króna
heildarskuldir
Reykjanesbæjar.
ÁRIÐ 2010
43 milljarðar króna
heildarskuldir
Reykjanesbæjar.
KeflavíkSandgerði
Njarðvík
Grindavík
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURNESJA