Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 60

Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 60
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR f KLEMMU Eineygðir samverjar eða félagshyggju- læknar með pólitíkusinn í maganum? Norskir læknar ræða ýmis grundvallaratriði í læknisstarfinu og eru ekki á eitt sáttir um hvort skuli vega þyngra hagur einstaklingsins eða heildarinnar Lœknar standa oftframmi fyrir þessari erfiðu spurn- ingu: Hvort er það sjúk- lingnum fyrir bestu að skera eða láta það vera? Ljósmyndstofa Landspítalans Saga af vaktinni Klukkuna vantaði kortér í fimm að morgni til. Vaktlæknirinn var rétt að ljúka skýrslugerð og ætlaði að fara að fleygja sér þegar kallið kom. Frú Svendsen, 79 ára gömul, var komin í bráðamóttökuna með magaverki. Frú Svendsen var lágvaxin, hokin og hvíthærð og andlilið bar þess merki að hún þjáðist. Púlsinn var hraður og hún átti erfitt um andardrátt. Kviðurinn var harður og aumur viðkomu og engin meltingarhljóð heyrðust frá þörmum. í sjúkraskýslu sá læknirinn að konan hafði verið skorin upp við ristilkrabba- meini tveimur árum áður og fyrir þremur mánuðum höfðu greinst merki um meinvörp í lifur. Að öðru leyti hafði konan verið heilsuhraust allt sitt líf. Hún gat lítið talað en af og til hvíslaði hún einhverju sem lækninum heyrðist snúast um að hún „vildi losna“. Vakthafandi skurðlæknir kom, leit á konuna og sagði: „Það er greinilega komið gat á þarmana og kviðurinn fullur af krabbameini. Hún vill ekki láta skera sig upp og þess utan er rangt að nota þau úrræði sem við höfum og eru takmörkuð á þann sem er að deyja þegar aðrir hefðu meiri gagn af þeim.“ Þá kom skurðlæknir á bakvakt til skjalanna og var ekki sammála kolleganum: „Það er greinilega komið gat á þarmana og kviðurinn fullur af krabbameini. Við verðum að gera það sem hægt er fyrir hana og með dálítilli heppni gæti hún lifað í nokkra mánuði til viðbótar. Eg sker hana upp núna strax.“ Sautján dögum síðar var frú Svendsen útskrifuð, til þess að gera spræk. Tveimur mánuðum síðar héldu þau hjónin upp á 53 ára brúðkaupsafmæli og skömmu síðar voru þau viðstödd skírn á fyrsta langömmubaminu. Fimm mán- uðum eftir aðgerðina hlaut hún hægt andlát á heimili sínu. Alþjódlegur vandi Þannig hljóðar upphafið á verðlaunaritgerð sem birt- ist í norska læknablaðinu í fyrra (1). Blaðið hafði efnt til ritgerðarsamkeppni um efnið Dyggðir og gildi í lœknisfrœði og sigurvegarinn var Vegard Bruun Wyller læknir í Fredrikstad í Noregi. Ritgerðin fjallar um þær ákvarðanir sem læknar þurfa daglega að taka og snúast iðulega um líf eða dauða sjúklinga þeirra. Af hverju láta þeir stjómast, meðaumkun og samúð með sjúklingnum eða þörfum og kröfum samfélags- ins? Hvort vegur þyngra eða er kannski hægt að sam- ræma þessi viðhorf? Því má slá föstu að læknar finna æ meira fyrir þess- um vanda. Framfarir í þekkingu, tækni og meðferð hafa leitt til þess að læknar geta gert miklu meira en áður - miklu meira en samfélagið telur sig hafa efni á að borga fyrir. Krafan um forgangsröðun í heilbrigð- iskerfinu verður æ háværari og yfirvöld heilbrigðis- og fjármála eru stöðugt með niðurskurðarhnífinn á lofti. Vandinn er alþjóðlegur eins og fram kom í nýlegri grein í breska læknablaðinu (2). í Bretlandi og raunar víðar eru í gildi ákveðnar reglur um það hvort og hve- nær læknar megi ákveða að reyna ekki endurlífgun sjúklings. Greinarhöfundur heldur því fram og styðst við rannsóknir sem sýna að í tveimur tilvikum af 456 Læknablaðið 2000/86
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.