Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2003, Side 29

Læknablaðið - 15.03.2003, Side 29
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR sjúklingar) framkvæmdu vísindamenn á Mayo-sjúkra- húsinu í Bandaríkjunum en það var tvíblind, lyfleysu- stýrð rannsókn á áhrifum daglegrar inntöku 12 g af fiskolíu (1,88 g EPA og 1,47 g DHA) samanborið við ólífuolíu hjá sjúklingum með prótínmigu >1 g/d og kreatínín í sermi (S-kreatínín) < 265 pmól/L, þar af höfðu 68% hækkað S-kreatínín (110). Meðferðin stóð yfir í tvö ár og reyndist nýrnastarfsemin stöðug hjá hópnum sem fékk ómega-3 fjölómettaðar fitusýr- ur en versnaði hjá viðmiðunarhópnum. Aðeins þrír (6%) sjúklingar í fiskolíuhópnum náðu meginloka- punkti sem var 50% hækkun S-kreatíníns en 17 (33%) í lyfleysuhópnum. Hlutfall sjúklinga sem hafði fengið lokastigsnýrnabilun eða var látinn eftir fjögur ár var 10% í fiskolíuhópnum og 40% í lyfleysuhópnum. Enginn munur var á prótínútskilnaði eða blóðþrýst- ingsstjórnun hjá hópunum. Rannsókninni var fram haldið (open-label observational study) (111) og reyndist árangur langtímameðferðar með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum einnig marktækt betri en meðferð með lyfleysu. Þessi rannsókn gefur því til kynna umtalsverðan ávinning af meðferð með ómega- 3 fjölómettuðum fitusýrum í framangreindum skömmt- um fyrir sjúklinga með alvarlegt form IgA nýrna- meins. Sami rannsóknarhópur sýndi nýlega fram á að hærri skammtar af ómega-3 fjölómettuðum fitusýr- um leiddu ekki til betri útkomu (112). Aðrar rann- sóknir hafa gefið mismunandi niðurstöður, rannsókn frá Japan með mun færri sjúklingum sýndi svipaðan ávinning (107) en hins vegar sýndu rannsóknir frá Ástralíu (108) og Svíþjóð (109) engan ávinning af ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum. Báðar þessar rann- sóknir voru þó smáar og eftirfylgdartími skammur (sex mánuðir) í þeirri síðamefndu. Fjölrannsóknagreining er sameinaði þessar fjórar samanburðarrannsóknir og eina sem bar saman sjúk- linga fyrir og eftir meðferð með ómega-3 fjölómett- uðum fitusýrum (113) sýndi að þegar tekið var tillit til mismunandi eftirfylgdar reyndist ávinningur af fisk- olfumeðferð ekki tölfræðilega marktækur en minni- háttar ávinningur virtist líklegur (114). Höfundarnir mæltu með stórri lyfleysustýrðri rannsókn með lang- tímaeftirfylgd og er slík rannsókn nú í gangi í Banda- ríkjunum (115). Þar til niðurstöður úr þeirri rannsókn liggja fýrir kemur mjög til álita að meðhöndla alla sjúklinga með IgA nýrnamein með ómega-3 fjölómettuðum fitusýr- um, bæði þá sem hafa sjúkdóminn á alvarlegu stigi þar sem vísbendingar um ávinning verða að teljast mjög sterkar og jafnvel einnig þá sem eru með vægari form IgA nýrnameins. Pótt rannsóknir liggi ekki fyrir um gildi meðferðar með ómega-3 fjölómettuðum fitu- sýrum hjá þeim síðarnefndu eru nokkrar líkur á ávinningi og meðferðin án teljandi aukaverkana. Lág- skammtameðferð Mayo-hópsins, EPA 1,88 g og DHA 1,47 g á dag, er sú meðferð sem líklega hentar best. Eiturverkun cýklósporíns á nýru Cýklósporín er ónæmisbælandi lyf sem hefur valdið straumhvörfum við meðferð h'ffæraþega. Sá böggull fýlgir þó skammrifi að lyfið getur bæði valdið aftur- kræfri starfrænni skerðingu á nýmastarfsemi og óaftur- kræfum æða- og pípluskemmdum sem leitt geta til nýmabilunar. Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrar hafa reynst gagnlegar til að fyrirbyggja nýrnaskemmdir í til- raunadýrum sem fengið hafa cýklósporín (116). Klín- ískar rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið á síð- asta áratug eru flestar litlar og ekki samhljóða varð- andi áhrif fiskolíu á eiturverkun cýklósporíns (117- 120) en flestar styðja þær þó að ómega-3 fjölómettaðar fitusýmr hafi gagnleg áhrif sem kunna að vera skammta- háð (119). Auk verndandi áhrifa þessara fitusýra gegn eiturverkunum cýklósporíns eru vísbendingar um að ómega-3 fjölómettaðar fitusýmr geti aukið ónæmis- bælandi áhrif lyfsins (121,122). Meðferð með ómega- 3 fjölómettuðum fitusýrum getur því gagnast einstak- lingum sem meðhöndlaðir eru með cýklósporíni á ýmsan hátt en þó hefur slík meðferð ekki náð fótfestu. Óvisst aðgengi að ömggu lyfjaformi sem og skortur á stórum rannsóknum þar sem græðlingslifun er megin- endapunktur á vafalítið stóran þátt í að svo er ekki. Gauklabólga af völdum rauðra úlfa Rannsóknir á gauklabólgu af völdum rauðra úlfa í mönnum hafa ekki sýnt fram á marktækan ávinning af meðferð með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum og hafa því ekki uppfyllt þær væntingar sem dýratil- raunir hafa gefið tilefni til. Kalsíumnýrnasteinar Hækkuð þéttni arakídónsým í blóðvökva og aukið hlutfall þeirrar fitusýru í himnum rauðra blóðkorna hafa fundist hjá sjúklingum með kalsíumnýrnasteina. Enn fremur hefur greinst aukinn útskilnaður prosta- glandíns E2 í þvagi þessara sjúklinga en það bendir til hlutverks díenóískra eikósanóíða í meinmyndun kalsí- umofgnóttar í þvagi sem er vel þekktur áhættuþáttur fyrir myndun kalsíumnýrnasteina (123). Sýnt hefur verið fram á að ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur geta dregið úr kalsíumofgnótt í þvagi hjá sjúklingum með nýmasteina. Baggio og samstarfsmenn bættu dagleg- um skammti af 2,6 g EPA og DHA við fæði sjúklinga með kalsíumnýmasteina í 30 daga. Það leiddi til lækk- unar á hlutfalli arakídónsýru í blóðfitu, minnkunar á útskilnaði kalsíum og fosfats í þvagi auk þesss sem það dró úr uppsogi kalsíum frá görn (124). Þessar niður- stöður benda til að ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur geti haft hagstæð áhrif á undirliggjandi efnaskiptarask- anir og gæti það minnkað klínískar afleiðingar nýrna- steina. Langtíma meðferðartilraunar er þörf. Segamyndun í æðagræðlingi fyrir blóðskilun Lokun æðaaðgengis vegna segamyndunar er algeng- asta orsök sjúkrahúsinnlagna sjúklinga sem eru í lang- Læknablaðið 2003/89 205
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.