Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2004, Qupperneq 29

Læknablaðið - 15.06.2004, Qupperneq 29
FRÆÐIGREINAR / LÍKAMLEG RJÁLFUN OG ÞYNGDARSTUÐULL oftar voru með lægri þyngdarstuðul en þeir sem enga þjálfun stunduðu. Petta átti bæði við konur og karla og eru þessar niðurstöður í samræmi við það sem við fundum í íslenska þýðinu (30). Fjöldi Islendinga, 60-70%, stundar ekki hreyfingu flesta eða alla daga vikunnar. Þessir einstaklingar eru nær helmingi lík- legri til þess að hafa þyngdarstuðul >25 en þeir sem stunda hreyfingu flesta daga vikunnar og eru þar með í aukinni áhættu á ýmsum sjúkdómum og kvillum. Hér er þó vert að geta þess að ekkert verður sagt með vissu um orsakasamhengi út frá þversniðsrannsókn sem þessari og ekki er hægt að útiloka að holdafar einstaklinganna hafi áhrif á það hversu mikla þjálfun þeir stunda. Mælingar og flokkun á hreyfingu og þjálfun geta verið margs konar og ákaflega mismunandi. Þrátt fyrir fjölbreytileika þessara aðferða, ónákvæmni þeirra og töluverðan mismun á hönnun og framkvæmdum rann- sókna hafa að jafnaði fengist samsvarandi niðurstöður úr faraldsfræðirannsóknum á sambandi þjálfunar og heilsufars. Þjálfun sem örvar og hefur jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi minnkar líkur á hjarta- og æðasjúkdómum (sérstaklega kransæðasjúkdómum), háþrýstingi, ristilkrabbameini og sykursýki 1 og hef- ur jákvæð áhrif á geðheilsu, lil dæmis þunglyndi og kvíða (31). Góðar líkur eru á að slík þjálfun geti einn- ig minnkað áhættu á offitu, beinþynningu og þung- lyndi ásamt því að auka vellíðan og lífsgæði. Þjálfun sem miðar að því að auka og viðhalda vöðvamassa líkamans er talin geta minnkað áhættu á falli og brot- um hjá eldri einstaklingum og aukið getu hinna eldri til þess að lifa sjálfstæðu lífi (11,32,33). Samband virðist einnig vera á milli þess hversu mikil þjálfun er stunduð og hversu mikil áhrifin eru. Þeir sem stunda mikla þjálfun upplifa þannig mest jákvæð áhrif en minni þjálfun getur einnig haft mæl- anleg áhrif á suma áhættuþætti. Hversu mikla þjálfun hver einstaklingur fær ræðst af ákefð, tíðni og lengd áreynslunnar. Ekki hafa verið sett fram flokkunar- mörk sem segja til um hversu mikil heildaráhrif á heilsufar fást við heildarorkunotkun þjálfunar (til dæmis á viku). Þannig getur verið að með því að stunda þá þjálfun sem CDC-ACSM mælir með megi ná fram ýmsum jákvæðum áhrifum en hver áhrifin af ákafari, lengri og tíðari þjálfun eru er ekki ljóst. Klínískar rannsóknir benda þó til þess að jákvæð áhrif meðalákafrar þjálfunar á heilsufar séu svipuð ef ekki meiri en áhrif mjög ákafrar þjálfunar (15). Þegar áhrif þjálfunar á lífslíkur eru metin hefur verið sýnt að áköf og meðaláköf áreynsla hafi jafnmikið gildi fram að miðjum aldri, áhrif ákafrar þjálfunar dvíni við 70 ára aldur en meðaláköf áreynsla hafi fyrirbyggjandi áhrif fram yfir 80 ára aldur (34). Fjórði hver íslenskur karlmaður og fimmta hver kona stunda enga líkamlega þjálfun í frístundum sínum. Þetta er hærra hlutfall en víða annars stað- ar og þótt erfitt sé að segja til um orsakir þessa má telja líklegt að með því að auka ástundunina mætti bæta heilsu og auka lífsgæði margra einstaklinga. Að stunda daglega hreyfingu undir meðalálagi í 30 mínútur ætti að vera á flestra færi. Holdafar og lífsstíll hafa svo mikil áhrif á líðan einstaklingsins að nauðsyn- legt er að hér verði breyting á. Heimildir 1. Flegal KM, Troiano RP, Ballard-Barbash R. Aim for a healthy weight: what is the target? J Nutr 2001; 131: 440S-50S. 2. Troiano RP, Frongillo EA Jr, Sobal J, Levitsky DA. The rel- ationship between body weight and mortality: a quantitative analysis of combined information from existing studies. Int J Obes Relat Metab Disord 1996; 20: 63-75. 3. Singh PN, Lindsted KD. Body mass and 26-year risk of mort- ality from specific diseases among women who never smoked. Epidemiology 1998; 9: 246-54. 4. Singh PN, Lindsted KD, Fraser GE. Body weight and mortality among adults who never smoked. Am J Epidemiol 1999; 150: 1152-64. 5. Zhu S, Wang Z, Shen W, Heymsfield SB, Heshka S. Percentage body fat ranges associated with metabolic syndrome risk: results based on the third National Health and Nutrition Examination Survey (1988-1994). Am J Clin Nutr 2003; 78:228-35. 6. Movsesyan L, Tank AL, Larsen PJ, Christiansen C, Svendsen OL. Variations in percentage of body fat within different BMI groups in young, middle-aged and old women. Clin Physiol Funct Imaging 2003; 23:130-3. 7. Blair SN, Kohl HW 3rd, Barlow CE, Paffenbarger RS Jr, Gibbons LW, Macera CA. Changes in physical fitness and all- cause mortality. A prospective study of healthy and unhealthy men. JAMA 1995; 273:1093-8. 8. Pate RR, Pratt M, Blair SN, Haskell WL, Macera CA, Bouchard C, et al. Physical activity and public health. A recommendation from the Centers for Disease Control and Prevention and the American College of Sports Medicine. JAMA 1995; 273:402-7. 9. Morris JN, Clayton DG, Everitt MG, Semmence AM, Burgess EH. Exercise in leisure time: coronary attack and death rates. Br Heart J 1990; 63: 325-34. 10. Kampert JB, Blair SN, Barlow CE, Kohl HW 3rd. Physical act- ivity, physical fítness, and all-cause and cancer mortality: a pro- spective study of men and women. Ann Epidemiol 1996; 6:452-7. 11. Anonymous. American College of Sports Medicine Position Stand. Exercise and physical activity for older adults. Med Sci Sports Exerc 1998; 30: 992-1008. 12. Thune I, Njolstad I, Lochen ML, Forde OH. Physical activity improves the metabolic risk profiles in men and women: the Tromso Study. Arch Intem Med 1998; 158:1633-40. 13. Villeneuve PJ, Morrison HI, Craig CL, Schaubel DE. Physical activity, physical fitness, and risk of dying. Epidemiology 1998; 9: 626-31. 14. Caspersen CJ, Powell KE, Christenson GM. Physical activity, exercise, and physical fitness: definitions and distinctions for health-related research. Public Health Rep 1985; 100: 126-31. 15. Physical activity and health. A Report of the Surgeon General. Atlanta : U.S. Department of Health and Human Services, Centers for Disease Control and Prevention, National Center for Chronic Disease Prevention and Promotion, 1996: 61-207. 16. Heilsufar kvenna. Rit 1. Reykjavík: Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið, 1998. 17. Gunnarsson Ö, Indriðason ÓS, Franzson L, Halldórsdóttir E, Sigurðsson G. D-vítamínbúskapur fullorðinna íslendinga. Læknablaðið 2004; 90: 29-36. 18. Sinaki M, Nwaogwugwu NC, Phillips BE, Mokri MP. Effect of gender, age, and anthropometry on axial and appendicular muscle strength. Am J Phys Med Rehabil 2001; 80: 330-8. 19. Visser M, Deeg DJ, Lips P, Harris TB, Bouter LM. Skeletal muscle mass and muscle strength in relation to lower-extremity performance in older men and women. J Am Geriatr Soc 2000; 48:381-6. 20. Varo JJ, Martinez-Gonzalez MA, De Irala-Estevez J, Kearney J, Gibney M, Martinez JA. Distribution and determinants of sedentary lifestyles in the European Union. Int J Epidemiol 2003; 32:138-46. 21. Kurtze N, Gundersen KT, Holmen J. Selvrapportert fysisk aktivitet i 1980- og 1990-árene - Helseunderspkelsene i Nord- Trpndelag (HUNT). Norsk Epidemiologi 2003; 13: 717-76. Læknablaðið 2004/90 485
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.