Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Page 33
„Hann er kominn. “ - „Hann erfarinn. “
greina margvíslegar forsendur íyrir blendnum kenndum Þorkels tál
Gísla - og vekur þar með ugg þeirra um framhaldið: Þorkell missir ekki
aðeins vin sinn, heldur er teldð ffam fyrir hendur honum sem elsta bróð-
ur; yngri bróðir hans gengur erinda feðraveldisins gegn honum og hef-
ur sennilega að engu tilfiruiingar systur þeirra, sem Þorkell virðist ná-
kominn. Þar eð vígsins nýtur ekki við í myndinni er reynt að sýna
togstreitu milli Súrsbræðra með svofelldum orðaskiptum þeirra um gjaf-
irnar sem Vésteinn býður Þorkatli:
Þorkell: Hvað hef ég gert til að verðskulda gjafir? Ekki neitt.
Gísli: Þú ert bróðir minn.
Þorkell: Er það afrek? Skal gefa mér gjafir af þeim ástæðum?18
Aðferðin er ansi kollótt í samanburði við aðferð Gísla sögu; óljós rígur
tekur við af harmi og margfaldri reiði.
I Útlaganum má einnig finna dæmi þess að látæði tjái það sem forn-
sagan gefur í skyn með röð atburða. Á þann hátt virðist til dæmis reynt
að miðla kenndum Gísla til Þórdísar eftir að hann er kominn á Sæból til
að drepa Þorgrím. Ekki sést - enda karmski erfitt að koma því við - hvar
Gísh snertir systur sína áður en hann leggur til bónda hennar. En með-
an hann bíður þess að þau hjón sofhi, skimar hann ekki opineygur í
kringum sig eins og búast hefði mátt við. Nærmyndir af andliti hans, orð
Þórdísar og Þorgríms, svo og svipmyndir úr hvílum fólks í skálanum
sýna að hann lokar augunum þegar Þorgrímur hyggst snúa sér að konu
sinni og er með þau lukt dágóða stund. Þeir sem fyrr hafa haft hugmynd
um girndarástina velta kannski vöngum yfir hvað gerist innra með Gísla
- en naumast aðrir. Seinna er gimd hans reyndar ítrekuð á ljósari hátt
með atvikum í tveimur drauma hans, þar sem Þórdís kyssir hann nakinn
og/eða fer tun hann blóðgum höndum. Eigi draumarnir að varpa ljósi á
þróun helstu atburða þurfa þeir að bregða birtu aftur fyrir sig og á slíku
fer sennilega betur í skáldsögu en kvikmynd.
Urvinnsla úr Gísla sögu í fyrsta hluta Útlagajis, viðbætur og umsköp-
un sem mæta eiga niðurskurði söguefnis, verður til þess að rök megin-
atburða era allmiklu veikari í myndinni en í fomsögunni. Samræður As-
gerðar og Auðar era helstu stoðimar sem reknar eru undir framvindtma,
ásamt girndarást Gísla á Þórdísi. Ast - með viðeigandi afbrýði - og
hefhdir eru þar með settar á oddinn. Sú tvennd er reyndar mikilvæg í
18 Agúst Guðmundsson 1981.
3 1