Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2008, Blaðsíða 17
Fulltrúi sjálfstæðismanna í Orku- veitu Reykjavíkur upplýsti í kvöld- fréttum tugmilljóna króna kostnað vegna starfsloka forstjóra fyrirtæk- isins. Margir hafa beðið þess með óþreyju að umræddur starfskraftur yfirgæfi fyrirtækið enda aðkoma hans að REI-málinu margfræga vart túlk- uð á annan veg en sem starfsafglöp á hæsta stigi. Vandséðir eru hagsmun- ir Reykvíkinga í fórum þessa manns enda tímabundin brottvikning varla ástæðulaus. Og nú skal höggva í sama knérunn og Þórarins forðum sem fékk 39 milljónir fyrir klúður og sjálftöku. Almenningur hlýtur að spyrja sig hverju gegnir. Hvaða tón er ver- ið að gefa? Axarsköft, óheiðar- leiki, fjár- dráttur, eiginhags- munapot á kostnað skattborgar- anna er ekki bara óátalið heldur verð- launað með milljónatugum. Hvaða erkifífl skrifa upp á svona samninga? Og af hverju seg- ir enginn neitt, ekki einu sinni þeir sem hrundu skriðunni af stað? Starfslok sem þessi, milljóna- bónus þar sem hagsmunavörður borgarbúa bregst algerlega skyldu sinni, eru þversögn og öllu vel- þenkjandi fólki óskiljanleg. Af hverju taka stjórn- mála- menn ekki slaginn og fara dómstólaleið- ina? Verri málstaður hefur nú ver- ið hrakinn og varla stendur í ráðn- ingarsamningum að verðlauna skuli sérstaklega fyrir íhlutun í eigur al- mennings? Kyndilberar þessa starfslokarugls ganga einhverra erinda, svo mik- ið er víst, og eins að þeir hagsmun- ir ganga á skjön við þjóðarvitund. Samtrygging æðstráðenda í fyrir- tækjum á einkamarkaði er öllum ljós en þar hefur fólk þó val. Þegar stjórnendur fyrirtækja sem rekast af skattfé borgaranna gera sig seka um ranga forgangsröðun kemst enginn undan. Á þessu er grundvallarmun- ur. Góð laun eru hvetjandi, bónus þegar vel tekst til sannlega líka en að stærsti lottóvinningurinn skuli vera fyrir meiriháttar yfirsjónir í starfi er gersamlega galið og hlýtur að vera séríslenskt fyrirbrigði. Sandkassinn Skjálftarnir sem Íslendingar þekkja eru af ýmsum toga. Skjálft- ar af völdum kulda, áhyggna yfir stöðu krónunnar, timburmanna- skjálftar og jarðskjálftar eru þar á meðal. Þeir síðastnefndu eru óneitanlega ívið eftirminnilegri en hinir og eru landsmönnum ofar- lega í huga þessa dagana. Einn er þó sá skjálfti sem skek- ur Ísland ekki bara þessa dag- ana, heldur alla daga, allan ársins hring. Afleiðingar hans eru ekki jafn sýnilegar og skjálftans í síð- ustu viku. Hús brotna ekki, hill- ustæður verslana hrynja ekki og grjóthnullungar þeysast ekki niður fjallshlíðar af hans sökum. Tollur- inn sem þessi skjálfti tekur er þó óhemju hár. Fólk deyr af völdum þessa skjálfta. fíkniefnavandinn er jarðskjálfti sem hefur staðið yfir á Íslandi í mörg ár, bæði á yfirborðinu en ekki síður undir því. Og hann mun standa um ókomin ár. Ekki dugir að reisa sterkbyggð hús eða búa í tjaldi til að stemma stigu við fíkniefna- vandanum eða forðast frekari hamfarir hans. Á hinn bóginn getum við bætt það góða með- ferðarstarf sem í boði er hér á landi, bætt forvarnir og bætt eftirlit með fíkniefnainn- flutningi. Meginstoðin í þeim að- gerðum er að sjálfsögðu fjármagn. Árleg álfasala SÁÁ fór fram um helgina til stuðnings ungu fólki í vímuefnavanda. Hún féll nokkuð í skuggann af skjálftanum stóra á fimmtudaginn. En sú skjálftavakt sem SÁÁ stendur alla daga ársins má illa við því að falla í skuggann. Nógir eru skuggarnir sem samtök- in kljást við á hverjum degi. íSland verður aldrei fíkniefna- laust, en það þýðir ekki að bar- áttan gegn vandanum sé höfuð- barningur í stein. Ég keypti álf, ekki einungis vegna þess að bróðir minn féll í valinn fyrir fíkniefna- djöflinum í upphafi árs, heldur í þeirri von að þessi alræmdasti skjálfti íslensks samfélags hafi tek- ið færri líf ungra Íslendinga næst þegar álfasalan fer fram. Og svo enn færri árið eftir og enn færri árið þar á eftir ... Ef þú keyptir ekki álf um helgina, þá skora ég á þig að gera það að ári liðnu. Kristján Hrafn Guðmundsson talar um íslenska skjálfta 39 milljónir DV Umræða mánudagur 2. júní 2008 17 Óhress aldraður selur olli vegfarendum við Fossvoginn talsverðum áhyggjum í gær. Hann hreyfði sig hægt og virtist nær dauða en lífi. að lokum fór hann þó aftur út í sjóinn og virtist hressast mjög, börnunum til mikillar ánægju. DV-mynd Ásgeirmyndin P lús eð a m ínu s Spurningin „Það er alltaf lokað.“ Bjarki Freyr guðmundsson markvörður Þróttar er með auglýsingu á búningi sínum þar sem stendur: „alltaf opið.“ Bjarki hefur fengið á sig átta mörk í fyrstu fjórum leikjum Þróttar. Er alltaf opið? Handknattleikslandslið Íslands fær plúsinn. Liðið hefur tryggt sér þátttökurétt á Ólympíu- leikunum í Kína síðar í sumar með því að leggja lið Svía að velli með 29 mörkum gegn 25. LÝÐUR ÁRNASON heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Axarsköft, óheiðar- leiki, fjárdráttur, eigin- hagsmunapot á kostn- að skattborgaranna er ekki bara óátalið held- ur verðlaunað með milljónatugum.“ -hvað er að frétta?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.