Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2008, Blaðsíða 22
fimmtudagur 26. júní 200822 Ættfræði DV 30 ára í dag 60 ára í dagTil hamingju með afmælið 30 ára afmæli n Bechir Habib jeridi Melalind 12, Kópavogi n Saul isac gutierrez tapia Tungubakka 26, Reykjavík n Sylwester Piotr gocal Gerðavegi 25, Garður n Piotr Lukasz Klósiek Ystaseli 31, Reykjavík n Leszek marek Pilawski Ekkjufelli, Egilsstöðum n Elena Solodunova Hlíðarbyggð 53, Garðabæ n dawid rafal Kazmierczak Hrannargötu 5, Reykjanesbæ n Hulda Sigurþórsdóttir Mýrargötu 7, Vogum n Þórunn Pálína jónsdóttir Skólavörðustíg 21a, Reykjavík n ragnhildur Sveina Árnadóttir Hléskógum 2, Egilsstöðum n Þórunn gyða Hafsteinsdóttir Borgargerði 6, Reykjavík n Sigursteinn már jónsson Lindasíðu 35, Akureyri n Hafdís Vera Emilsdóttir Eyjabakka 32, Reykjavík n Haukur már Helgason Arnarsmára 26, Kópavogi n maría guðrún gunnarsdóttir Helgugrund 10, Reykjavík n anna dagbjört gunnarsdóttir Þórðarsveig 22, Reykjavík n auður inga Þorsteinsdóttir Beykihlíð 17, Reykjavík n gunnar jökull Karlsson Ástjörn 9, Selfossi n anna Lára guðnadóttir Lágseylu 13, Njarðvík n Hafdís Ólafsdóttir Bergstaðastræti 9b, Reykjavík n Sindri Sigurfinnsson Furugrund 30, Selfossi 40 ára afmæli n Pavel messner Grettisgötu 92, Reykjavík n anna janyalert Brekkubæ 4, Reykjavík n grazyna Borkowska Strandgötu 14, Sandgerði n jonathan Portal gabon Reykjabraut 5, Þorlákshöfn n markus rennen Lyngholti 17, Álftanesi n jacek Pawel urbanski Hlíðardalsskóla, Selfossi n guðni th. jóhannesison Lágholtsvegi 13, Reykjavík n Sveinn Kristján ingimarsson Búlandi 4, Djúpivogi n Ása H. Sigurjónsdóttir Norðurvöllum 28, Reykjanesbæ n Snorri Páll Einarsson Arnarsmára 12, Kópavogi n Óli Þór jónsson Skútahrauni 1, Mývatn n Svala g. Lúðvíksdóttir Hvanneyrarbraut 6, Siglufirði n guðrún margrét Baldursdóttir Hrísdal 1, Borgarnesi 50 ára afmæli n irena Cernisoviene Brekkuseli 2, Reykjavík n guðmundur K. Þórðarson Mávabraut 4e, Reykjanesbæ n guðrún gunnarsdóttir Daltúni 27, Kópavogi n Sigurrósi Sigurðardóttir Traðarlandi 12, Bolungarvík n Erla guðmundsdóttir Hagamel 26, Reykjavík n Kolbrún garðarsdóttir Skógarási 5, Reykjavík n Áslaug jóhanna jensdóttir Austurvegi 7, Ísafirði n Sigríður Svavarsdóttir Barmahlíð 11, Sauðárkróki n Bryndís Sif guðbrandsdóttir Blómsturvöllum 1, Grindavík n Benjamín B Valgarðsson Ásholti 6, Dalvík n Þorleifur ingvarsson Sólheimum, Blönduósi 60 ára afmæli n Sigurberg Þórarinsson Jörfagrund 27, Reykjavík n andrés Sigvaldason Kringlunni 73, Reykjavík n Sigrún f jónsdóttir Stekkholti, Sauðárkróki n Þorleifur Kristján guðmundsson Forsölum 1, Kópavogi n Einar Árnason Laugateigi 50, Reykjavík n Sigurður Örn jónsson Hliðsnesii 2, Álftanesi n Eiríkur Einarsson Víkurströnd 9, Seltjarnarnesi n Ester Haraldsdóttir Flétturima 36, Reykjavík n jóhann Hákonarson Ólafsgeisla 20, Reykjavík n Böðvar Halldórsson Laut 22, Grindavík n Þórey Ásmundsdóttir Reykjafold 30, Reykjavík 70 ára afmæli n Sólveig B Halldórsdóttir Yrsufelli 32, Reykjavík n jens Karlsson Hlaðbrekku 12, Kópavogi n jón Hjartarson Haðalandi 2, Reykjavík n maría magdalena Helgadóttir Holtagötu 3, Akureyri 75 ára afmæli n Erling jóhannsson Bröndukvísl 13, Reykjavík n Birna Baldursdóttir Aratúni 23, Garðabæ n guðrún melax Vallargerði 32, Kópavogi 80 ára afmæli n Elsa Heiðdal Stafni, Blönduósi n anna jóhannesidóttir Gnoðarvogi 70, Reykjavík n Beinteinn Sigurðsson Álfabergi 28, Hafnarfirði n margrét Eyjólfsdóttir Aðalstræti 22, Bolungarvík n ósikar Halldórsson Lyngbergi 39b, Hafnarfirði n ingibjörg Stefánsdóttir Fellsenda dvalarh, Búðardal n Steinólfur Lárusson Ytri-Fagradal 2, Búðardal 85 ára afmæli n Sigríður Elíasdóttir Þiljuvöllum 25, Neskaupstað n Helga júlíusdóttir Skjólbraut 11a, Kópavogi n Sigríður Kr Árnadóttir Blásölum 21, Kópavogi 90 ára afmæli n Þormóður torfason Grænumörk 5, Selfossi Erlingur SigurðarSon fyrrV. forStÖðumaður SigurHæða - HúSS SKÁLdSinS Á aKurEyri Þórunn Pálína Jónsdóttir er þrítug í dag: Fékk ferð til Tokyo „Ég ætla nú ekki að gera mikið á afmælis- daginn því ég held upp á það seinna. Ég fer samt út að borða á Santa María á Laugaveg- inum með nokkrum góðum vinum mínum,“ segir Þórunn Pálína Jónsdóttir afmælisbarn sem er þrítug í dag. Þórunn Pálína ólst upp í Reykjavík og gekk í Melaskóla, Mýrarhúsaskóla og Laugar- nesskóla áður en hún flutti til Brussel og gekk þar í International School Brussels. Eftir það flutti hún aftur til Íslands og kláraði mennta- skólann á Íslandi. Þórunn á ennþá eftir að ákveða hvernig haldið verður upp á tímamótin en það verð- ur gert næstu helgi: „Það eru nokkrir sem vilja hafa puttana í því með mér, en ætli ég reyni ekki að hafa þetta dálítið glæsilegt því ég hef ekki haldið upp á afmælið mitt í mörg ár,“ segir hún. Þórunn hefur þegar fengið nokkrar af- mælisgjafir og er sérlega ánægð með glæsi- legan leðurjakka sem hún fékk því það er búið að vera draumur í langan tíma. Auk þess er hún búin að fá gjöf frá Kaupþingi og hluta af tölvu og flugmiða til Tokyo frá foreldrum sínum: „Mamma og pabbi búa í Tokyo svo þetta er í annað skipti sem ég kem þang- að. Það er alveg eins og að detta inn á aðra plánetu, furðulegt á margan hátt. Ég er líka það hávaxin að ég er stærri en flestir karl- mennirnir, það er mjög sérstakt að vera risi í Tokyo,“ segir hún. Aðspurð segist hún hafa þroskast mikið þessa síðustu viku: „Það var mikil uppgvötun fyrir mig að ég væri að komast á fertugsald- urinn, núna er kominn tími til að hugsa sinn gang og láta verða af hlutunum,“ segir Þór- unn að lokum. Erlingur fæddist á Grænavatni í Mývatns- sveit og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1969, stundaði nám í ensku og sagnfræði við Colby College í Watermille í Maine í Banda- ríkjunum 1970, lauk BA-prófi í íslensku og sagn- fræði við HÍ 1976, cand. mag.-prófi í sagnfræði við HÍ 1987, prófum í uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1981, stundaði nám í þýsku, þjóðfræðum og sagnfræði við Ebenhard-Karls-Universität í Tübingen í Þýskalandi 1991-92 og hefur sótt ýmis námskeið fyrir kennara. Erlingur var kennari við MA 1969-70, blaða- maður við Tímann 1972-73, þáttagerðarmaður við Ríkisútvarpið 1974-75 og 1985, og hafði um- sjón með þættinum Daglegt mál 1986-87 og 1996-97, var blaðamaður við Þjóðviljann 1975- 76, landvörður í Mývatnssveit sumrin 1973-79, bóndi að Grænavatni 1976-77 og við bústörf þar öll sumur til 1979, kennari við Skútustaða- skóla 1976-77, starfsmaður Alþýðubandalags- ins 1977-78, sat í ritnefnd og vann við ritstjórn Norðurlands 1977-88, íslenskukennari við MA 1978-97 og jafnframt deildarstjóri þar í fimm ár, var eini íslenskukennarinn við HA 1997-98 og forstöðumaður Sigurhæða á Akureyri 1997- 2003. Erlingur var formaður Félags stúdenta í heimspekideild 1973-75, sat í stúdentaráði HÍ, gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Al- þýðubandalagið 1975-91, var formaður Nátt- úruverndarnefndar Akureyrar 1980-86, sat í stjórn Útgerðarfélags Akureyringa 1987-95, í stjórn Hins íslenska kennarafélags 1989-91, í Ferðamálaráði Íslands 1989-93, sat í skólanefnd Tónlistarskólans á Akureyri 1990-91, í stjórn Mecklenburger Hochseefischerei í Rostock í Þýskalandi 1993-95, í starfshópum Menning- armálanefndar um framtíðarstarfsemi í Sigur- hæðum 1994-96 og í skipulagsnefnd Akureyrar 1996-98. Ritverk Erlings: Heilyndi - ljóð frumort og þýdd, útg. 1997; Á svörtum fjöðrum, leiksviðs- verk úr ljóðum Davíðs Stefánssonar, frumsýnt af LA á hundrað ára afmæli skáldsins 1995; Ágrip af sögu Mývatnssveitar og mannlífs þar, hand- rit; Laxárdeilan, kandídatsritgerð. FJölskylda Erlingur kvæntist 1.1. 1974 Sigríði Stefáns- dóttur, f. 29.7. 1949, skrifstofustjóra hjá Akur- eyrarbæ. Hún er dóttir Stefáns Magnússonar, f. 26.8. 1926, d. 18.3. 1963, flugstjóra í Reykjavík, og Önnu Camillu Einarsdóttur, f. 4.6. 1925, fyrrv. verslunar- og skrifstofumanns. Börn Erlings og Sigríðar eru Erna, f. 24.1. 1975, íslenskufræðingur hjá Alþingi; Sigurður, f. 11.9. 1977, búfræðingur, leiðsögumaður og bíl- stjóri; Kári, f. 16.8. 1982, rannsóknarlögreglu- maður á Akureyri. Bræður Erlings eru Benedikt, f. 3.4. 1952, forstöðumaður Búseta á Akureyri; Hjörleifur, f. 25.10. 1957, búfræðingur og bóndi að Græna- vatni. Foreldrar Erlings eru Sigurður Þórisson, f. 5.5. 1919, d. 14.4. 2001, bóndi að Grænavatni, og k.h., Þorgerður Benediktsdóttir, f. 5.4. 1916, húsfreyja. Ætt Þórir er sonur Torfa, b. og pósts á Birnings- stöðum, Sæmundssonar, b. í Narfastaðaseli, bróður Friðriks, föður Barða hjá VSÍ, Kristj- áns í Últíma og Margrétar, móður Björns Þór- hallssonar, varaforseta ASÍ, föður Karls, fyrrv. bæjarstjóra á Selfossi. Sæmundur var son- ur Sæmundar í Narfastaðakoti, Jónssonar, b. í Holtakoti, Torfasonar, bróður Sæmundar, afa Valdimars Ásmundssonar ritstjóra, föður Héð- ins alþm., föður Bríetar leikkonu, móður Stein- unnar Ólínu leikkonu. Móðir Þóris var Guðrún Snorradóttir, b. á Geitafelli, Oddssonar og Sig- urbjargar Jónsdóttur, b. á Langavatni, Illugason- ar, b. í Baldursheimi, Hallgrímssonar, ættföður Hraunkotsættar, Helgasonar. Móðir Sigurðar var Þuríður, systir Þórólfs í Baldursheimi. Þuríður var dóttir Sigurðar, b. í Baldursheimi, bróður Sigurbjargar á Geita- felli. Móðir Þuríðar var Solveig Pétursdóttir, b. í Reykjahlíð, Jónssonar, ættföður Reykjahlíða- rættar Þorsteinssonar. Þorgerður er dóttir Benedikts, b. á Græna- vatni, Guðnasonar b. þar Ásmundssonar, b. í Álftagerði, Helgasonar, ættföður Skútustaðaætt- ar, Ásmundssonar. Móðir Benedikts var Kristín Einarsdóttir, Björnssonar. Móðir Þorgerðar var Solveig, hálfsystir Sig- urðar skálds á Arnarvatni, föður Málfríðar, fyrrv. alþm. Hálfsystir Solveigar var Sigrún, móðir Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra. Solveig var dóttir Jóns, skálds á Helluvaði, Hin- rikssonar. Móðir Solveigar var Sigríður, hálfsyst- ir Þorgils gjallanda. Móðir Sigríðar var Guðrún, systir Péturs í Reykjahlíð. Erlingur mun lesa upp úr óbirtum eigin verkum á afmæliskvöldi í Deiglunni á Akureyri og hefst upplesturinn kl. 20.45. Lárus KjarTansson gLímuKaPPi og framKVæmdaStjÓri gLímuSamBandS íSLandS Lárus fæddist í Reykjavík en ólst upp á Laugarvatni. Hann var í Barnaskóla Laugar- vatns, Héraðsskólanum á Laugarvatni, lauk stúdentsprófi frá ML og lauk íþróttafræði- prófi frá Íþróttaskor KHÍ á Laugarvatni 2004. Lárus vann hjá Íþróttamiðstöð Íslands á Laugarvatni á námsárunum og kenndi auk þess við Grunnskólann í Grundarfirði. Þá kenndi hann á sund- og leikjanámskeiðum hjá ÍTR í Vesturbænum í Reykjavík. Frá því hann lauk íþróttafræðiprófi hefur hann verið framkvæmdastjóri Glímusambands Íslands en mun hefja kennslu við Brekkubæjarskóla á Akranesi í haust. Lárus hóf að æfa glímu 1985 og keppti um árabil. Hann er margfaldur Íslands- og bik- armeistari í glímu í öllum aldursflokkum og hefur auk þess sigrað á fjölda glímumóta víðs vegar um land. FJölskylda Kona Lárusar er Erna Hafnes Magnúsdótt- ir, f. 5.7. 1979, kennari í Brekkubæjarskóla. Dóttir Lárusar er Anna Kolbrún Lárusdótt- ir, f. 19.6. 1997. Dóttir Lárusar og Ernu er Auður María Lárusdóttir, f. 19.6. 2006. Systkini Lárusar eru Vilborg Guðný Atla- dóttir, f. 5.1. 1973, arkitekt í Róm; Óðinn Þór Kjartansson, f. 28.10. 1979, grafískur hönnuð- ur. Foreldrar Lárusar eru Kjartan Lárusson, f. 25.2. 1955, kennari á Laugarvatni, og Auð- unn Waage, f. 31.10. 1949, starfsmaður við leikskólann á Laugarvatni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.