Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2010, Page 36

Frjáls verslun - 01.04.2010, Page 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 N Æ R M Y N D A F G U N N A R I H E L G A H Á L F D A N A R S Y N I Fyrir þá sem muna enn árin fyrir út ­rásina miklu er nafnið Gunnar Helgi Hálfdanarson nánast heim i lis legt. Hann var þá oft í fréttum þegar rætt var um fjármál, bæði sem stjórnandi fjár ­ mála fyrirtækja og álitsgjafi – sérstaklega ef fjallað var um verðbréf á tím um þegar verð­ bréfamarkaður var að slíta barnsskónum á Íslandi. En svo hvarf hann algerlega úr opinberri umræðu á Íslandi 1. september árið 1999. Í heilan áratug upp frá því var Gunnar Helgi nefndur þrisvar í íslenskum prentmiðlum og þá alltaf vegna tengsla við Verslunarskóla Íslands. Áratuginn á undan leið ekki mán­ uð ur án þess að nafn hans stæði í blöðunum af einu eða öðru tilefni. En Gunnar Helgi hvarf ekki vinum sínum og fjölskyldu og hann hélt áfram að sjást við komur og brottfarir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann skipti um vinnu ­ veitanda. Hann fór að vinna sem fram ­ kvæmda stjóri fyrir bandaríska sjóða stjórn­ unarfyrirtækið AllianceBernstein Investments með skrifstofu í Stokkhólmi. Varð að segja já Gunnar Helgi var kunnastur sem forstjóri Landsbréfa, dótturfélags Landsbanka Íslands, og þar með einn af æðstu stjórnendum bankans. Og nú er hann aftur kominn að stjórn Landsbankans, það er að segja nýja bankans. Það er annar banki. Gunnar Helgi lauk störfum fyrir Bandaríkjamennina í desember 2009. Hann segist ekki hafa haft áform um nýja vinnu fyrst um sinn. Þó fannst honum fullsnemmt að fara á eftirlaun tæplega sextugur. „Ég hafði engin sérstök plön önnur en að einbeita mé að golfinu, bridsinu og fjölskyldunni og að hugsa minn gang laus við vinnustressið næstu misseri,“ segir Gunnar Helgi. „Þá var hringt í mig frá bankasýslunni í febrúar sl. og þess farið á leit við mig að ég yrði formaður bankaráðs Landsbankans nýja.“ Gunnar Helgi segist hafa hugsað málið í tæpan sólarhring og síðan sagt já. Efstir í úrvalsdeild „Ég leit á þetta sem einskonar herkvaðn­ ingu,“ segir Gunnar Helgi, „það var ekki um neitt annað að velja en að segja já.“ Hann bætir við: „Ég tel að þrátt fyrir allt sem á undan er gengið eigi Landsbankinn mikla möguleika í framtíðinni. Þess vegna var ég tilbúinn til að taka þetta að mér.“ Bankaráðið hefur ráðið nýjan bankastjóra til að „stýra metnaðarfullum áætlunum í höfn og endurskapa bankanum það traust og þann orðstír sem hann áður hafði byggt upp á meira en 100 árum“, eins og Gunnar Helgi orðar það. „Bankinn á að vera í efsta sæti í úrvalsdeild eins og ég hef áður sagt og hvergi annars staðar. Árangurinn fram að þessu hefur verið góður, en bankinn getur orðið miklu betri en hann er. Hann hefur til þess alla burði; gott fólk, sterka fjárhagsstöðu og mikla sögu,“ segir Gunnar Helgi. Borgarbarn Gunnar Helgi óx úr grasi í Holtunum í Reykjavík, Stangarholti nánar tiltekið. Foreldrarnir dæmigert millistéttarfólk – hvorki rík né fátæk – í Reykjavík eftir­ stríðsáranna. Hálfdan Helgason faðir hans frá Stokkseyri en móðirin, Margrét Sigurðardóttir, Húnvetningur. Þau ráku lengi litla heildsölu með vinnuföt og hreinlætisvörur í Holtunum. Gunnar Helgi fæddist árið 1951, annar tveggja bræðra. Hann var í sveit á sumrin hjá móðursystur sinni austur á Héraði í níu ár frá fimm ára aldri og segist enn búa að þeirri reynslu, sem hafi meðal annars gert hann sjálfstæðari í hugsun. „Ég hef aldrei hliðrað mér við að taka mig út úr hópnum og breyta til þegar ég hef talið það mikilvægt,“ segir Gunnar Helgi. Hann gekk upphaflega í Æfingaskóla Kennaraskólans og átti að fara þaðan í Gunnar Helgi Hálfdanarson kom heim rétt fyrir síðustu jól, alkominn eftir að hafa verið fjarri íslensku fjármálalífi alla öldina. Tíu ára vinna fyrir bandarískt fjármálafyrirtæki var að baki, – eftirlaun, golf, brids, veiði og afslöppun fyrir stafni. Í febrúar sl. var hringt í hann úr nýstofnaðri Banka- sýslu ríkisins og honum sagt að hann ætti að verða formaður banka ráðs Landsbankans sem formlega heitir NBI hf. GUNNARS HELGA HERKVAÐNING TEXTI: GÍSLI KRISTJÁNSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON GUNNAR HELGI HÁLFDANARSON, FORMAÐUR BANKARÁÐS LANDSBANKANS, Í NÆRMYND:

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.