Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2010, Síða 82

Frjáls verslun - 01.04.2010, Síða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 1 0 Sigurður M. Harðarson véltækni fræð ingur hefur lengi unnið við um hverfisvottun bæði heima á Íslandi og í útlöndum. Að hans mati fjallar „græna stefnan“ fyrst og fremst um vit undarvakningu í fyrir tækj­ un um. „Við á Íslandi höfum verið svo fá í svo stóru landi að menn hafa ekki talið sig þurfa að hugsa mikið um umhverfið. Þetta er hins vegar misskilningur og nú er að verða vitundarvakning. Við verðum að taka um hverfismálin alvarlega,“ segir Sigurður. Fjöldinn allur af umhverfismerkjum frá fyrirtækjum og félagasamtökum gerði það að verkum fyrir nokkrum árum að við Íslendingar fórum að líta með nokkru yfirlæti á þessar merkingar. En þetta hefur breyst á síðustu árum. Sigurður segir að æ fleiri stjórnendur fyrir tækja átti sig á mikilvægi þess að fylgja alþjóðlegum stöðlum í umhverfismálum. Með því skapa fyrirtækin vitund og þekkingu á þeim áhrifum sem starfsemi þeirra hefur á umhverfið, losa sig við óþarfa efni og meðhöndla afganginn samkvæmt reglum. „Það er mikilvægt að láta ekki um hverfis­ mál reka á reiðanum og halda að ekkert sé á þeim að græða, að þetta séu bara útgjöld,“ segir Sigurður. „Það er nefnilega ekki rétt. Því ef einhvers staðar er hægt að spara er það einmitt með aukinni umhverfisvitund og minni út gjöldum. Rekstur fyrirtækja er nefnilega ekki bara spurning um að hafa sem mestar tekjur, heldur það sem meira er; að halda útgjöldum niðri.“ Umhverfisvottun er staðfesting á að menn hafi komið sér upp umhverfis­ stjórn unarkerfi og viti hvernig eigi að bregðast við óhöppum að sögn Sigurðar. „Fyrirtækin minnka áhættuna á að lenda í umhverfisslysum og draga úr afleið ing­ unum með réttum viðbrögðum ef slys verða. Staðallinn þvingar fyrirtækin til að gera umhverfismat og greina þá áhættu sem getur stafað af starfseminni.“ Oft er þessi „þvingun“ sjálfskipuð – fyrirtækin taka bæði upp umhverfisstjórnun og gæðastjórnun án þess að lagaboð búi að baki. Um leið ber æ meira á að opin­ berir aðilar setji kröfur um meðvitaða umhverfisstefnu sem skilyrði við innkaup. Sigurður bendir um leið á að tryggingafélög ættu að sjá sóma sinn í að koma til móts við umhverfisvottuð fyrirtæki og taka tillit til þeirra við ákvörðun iðgjalda. Samkvæmt líkinda­ reikn ingum ætti að vera minni hætta á óhappi hjá slíku fyrirtæki auk þess sem fyrirbyggjandi aðgerðir eru fastur liður í umhverfisstjórnunarkerfi. Vottunin þýðir einfaldlega að líkur á óhöppum og bótum minnka. Á öðrum sviðum getur umhverfisvottun leitt til minni kostnaðar. Vinnueftirlitið getur fækkað komum á vinnustað ef það veit að það er kerfisbundið unnið að öryggis­ og umhverfismálum. „Enn sem komið er taka fyrirtæki upp umhverfisvottun af hugsjón. Þarna þyrfti að vera meiri opinber hvati að baki. Kröfur um græna umhverfisstefnu eru farnar að birtast í útboðsgögnum en ekki umhverfisvottun,“ segir Sigurður. Sigurður er virkur í starfinu hjá Stjórn­ vísi og hefur starfað í tæp tuttugu ár sem úttektarstjóri erlendis og unnið að vott­ unum og úttektum í sjö löndum. Hann rekur nú eigin ráðgjafarfyrirtæki á þessu sviði. SIGURÐUR M. HARÐARSON, SÉRFRÆÐINGUR HJÁ NOR CON: OG FÆKKA FISKISKIPUM VITUNDARVAKNING Sigurður M. Harðarson, sérfræðingur hjá Nor Con. Mynd: Geir Ólafsson Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að kvóta­ kerf ið skapi hvata hjá kvótahöfum til að bygg ja upp fiskstofna og vernda umhverfi þeirra í sjónum. „Ástæðan er að verðmæti kvót anna – þ.e. varanlegra aflaheimilda – er núvirði væntanlegs hagnaðar af því að nýta þær aflaheimildir í framtíðinni. Sé gengið á fiskstofna og umhverfi þeirra í hafinu verður verðmæti aflaheimilda minna. Því hafa kvótahafar ríkan hag af því að vernda bæði fiskstofna og umhverfi þeirra. Samtök kvótahafa eru öflug og á vettvangi þeirra er unnt að ræða um hvernig á að ganga um NÝTA ORKU BETUR RAGNAR ÁRNASON PRÓFESSOR: GRÆNA HLIÐIN UPP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.