Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 125
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 125
Æskumyndin er af Katrínu
Jakobsdóttur alþingismanni.
„Á þessari mynd er
ég rúmlega eins árs og
sit í fanginu á pabba
mínum heitnum, Jakobi
Ármannssyni, við ritvél-
ina hans. Hann starfaði í
Útvegsbankanum og kenndi
í Kvennaskólanum á sínum
tíma og skrifaði líka bridds-
þætti í Þjóðviljann en hann
var mikill bridds-maður og
varð Íslandsmeistari í því
spili.
Ég var frá upphafi mjög
spennt fyrir ritvélinni góðu
og það var eiginlega sama
hvað ég var að gera, ég
henti öllu frá mér þegar ég
heyrði pabba slá á takka,
kom þjótandi og vildi sjálf fá
að skrifa á ritvélina. Þetta
er kannski hálf undarlegt
áhugamál hjá stelpu á öðru
ári en ég sé það sjálf á
syni mínum sem núna er
eins og hálfs árs að hann
er afar spenntur fyrir því
að fá að slá á lyklaborðið
á tölvunni minni. Svo var
ég reyndar mjög snemma
spennt fyrir skrifum og um
leið og ég þekkti stafina
fór ég að skrifa krassandi
sögur á ritvélina góðu auk
þess sem ég gaf öðru hvoru
út dagblað á heimilinu með
helstu fréttum. Það dagblað
hét Góðviljinn og var með
mjög skemmtilega ritstjórn-
arstefnu.“
Æskumyndin:
Katrín Jakobsdóttir alþingismaður.
Úr Frjálsri verslun fyrir 31 ári:
Þorsteinn G.
Gunnarsson. „Það
sem kom mér mest
á óvart var hve
skemmtilegt og
tæknilega krefjandi
golfið er.“
Þorsteinn G. Gunnarsson, for-
stjóri Opinna kerfa, segist hafa
byrjað að fikta við golfið þegar
hann var við framhaldsnám í
Seattle í Bandaríkjunum og að
hann hafi verið nokkuð virkur
síðastliðin átta ár.
„Það sem kom mér mest
á óvart var hve skemmtilegt
og tæknilega krefjandi golfið
er. Maður er alltaf í keppni við
sjálfan sig og svo gerir forgjafar-
kerfið það að verkum að fólk
með mismunandi getu keppir
saman á jafnræðisgrundvelli.
Golfinu fylgir mikil útivera sem
mér finnst mikilvæg þar sem
ég er inni alla daga. Síðan
hefur komið á daginn að þetta
er frábært fjölskyldusport;
við erum fjögur í fjölskyldu og
spilum öll. Þetta gefur okkur
samverustundir þar sem ekki er
önnur truflun og við höfum tíma
til að spjalla og skemmta okkur
saman.
Við höfum sameinað sumar-
leyfi og áhugamálin og erum
til dæmis að fara til Sarasota
í Flórída í lok sumars þar sem
stefnan er að spila golf á morgn-
ana og slappa síðan af á strönd-
inni það sem eftir er dagsins.“
Þorsteinn segir að helsti
munurinn að spila golf í
útlöndum sé lengd golftímabils-
ins, hitastigið og oft og tíðum
ástand vallanna. „Einn besti
völlur þar sem ég hef spilað
golf erlendis er Pinehills Golf
Club rétt fyrir utan Boston í
Bandaríkjunum.“
Golf:
FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUSPORT