Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 3

Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 3
Söngskemmtun í kirkjunni Söngfuglarnir Garðar Thór Cortes, Bergpór Pálsson og Berta Dröfn Omarsdóttir ásamtpíanóleikaranum Aðalheiði Þorsteinsdóttur, halda tónleika í Fáskrúðsfjarðarkirkju á Frönskum dögum. Það verður létt yfirbragð yfir tónleikunum, allt frá frönskum óperuaríum úr Carmen til 12. sept- ember, Jóns Múla og ýmissa auglýsingalaga í nýjum búningi. Þess má geta að Berta Dröfn er barnabarn Oddnýjar Jónsdóttur og Þorvaldar Jónssonar á Sunnuhvoli. Hún stundar nám við Söngskólann í Reykjavík. Oddný, amma Bertu var annálaður hagyrðingur. Á tónleikunum frumflytur Berta nokkur ljóð ömmu sinnar við eigin lög. Aðalheiður Þorsteinsdóttir lauk námi frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík og organistaprófi frá Tónskóla Þjóð- kirkjunnar. Hún hefiir um árabil fengist við ýmis störf tengd tónlist, leikið með kórum og mörgum af fremstu söngvurum þjóðarinnar. Til dæmis hefur hún verið aðalpíanóleikari Léttsveitar Reykjavíkur og útsetningar hennar eru rómaðar. Berta Dröfn Ómarsdóttir stundar söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og lauk átt- unda stigi í söng nú í vor. Næsta vetur stefnir hún á burtfararpróf í klassískum söng. Hún var skiptinemi í Kosta Ríka, stundaði hönnunarnám á Italíu, er með BA- gráðu í ítölsku frá Hl og er lærður leið- sögumaður. Berta hefur sungið við ýmsar kirkju- legar athafnir og á tónleikum. Hún á ættir að rekja bæði á Fáskrúðsfjörð og í Breiðdalinn. Bergþór Pálsson lauk B.M. og Master’s námi frá Indiana University og leiklistarnámi frá Drama Studio London. Hann hefur tekið þátt í mörgum óperuuppfærslum, haldið fjölda ein- söngstónleika, sungið einsöng með Sinfóníu- hljómsveit íslands, Kammersveit Reykjavíkur svo og einsöng í mörgum kórverkum. GarðarThór Cortes hóf söngnám í Söngskólanum í Reykjavík. Eftir það stundaði hann nám við Hochschule fur Dar- stellende Kunst und Musik í Vínarborg, sótti einkatíma í Kaupmannahöfn og stundaði nám við óperudeild Konunglega tónlistarháskólans í Lundúnum. Garðar Thór hefur komið víða fram og haldið einsöngstónleika, sungið I söngleikjum, óratóríum og óperum hér heima, víðsvegar í Evrópu og í Bandaríkjunum. Garðar hefur sungið á tón- leikum með Sinfóníuhljómsveit Islands og með sópransöngkonunni Kiri Te Kanawa og kom fram á lokatónleikum Proms-tónlistarhátíðar- innar í London. Garðar Thór og Bergþór fóru báðir með hlut- verk í La Bohéme í íslensku óperunni sl. vetur. 3 •

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.