Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 17

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 17
j-pðj\skir dðigevp ® [esjomps fpajx^ðJs Bjarni Sigurðsson Ólafur Indriðason Vilhelm Knudsen til að sinna kennslu í hreppnum og kenndi sá þá gjarnan á tveimur bæjum á hverju skólaári. Arið 1900 var hins vegar brotið blað þegar tveir kennarar voru ráðnir til að sinna farkennslunni og árið 1905 voru þrír ráðnir til að annast fræðslu barna í Fáskrúðsfjarðarhreppi. Fastur skóli á Búðum 1900-1901 Árið 1900 þótti kominn tími til að koma á föstum skóla á Búðum en slíkur skób var heimangöngu- skóli með fast aðsetur. A Búðum hafði íbúum fjölgað og þar var að verða til myndarlegt sjávar- þorp. 1 ýmsum öðrum þorpum á Austfjörðum höfðu fastir skólar séð dagsins ljós þegar hér var komið sögu og nægir að nefna Seyðisfjörð, Eski- fjörð og Búðareyri við Reyðarfjörð sem dæmi. Hreppsnefnd Fáskrúðsfjarðarhrepps hóf að fjalla um fast skólahald á Búðum haustið 1900 og var niðurstaðan sú að taka hús- næði á leigu fyrir skólastarfið. Þá var ákveðið að ráða herra cand. phil. Vilhelm Knudsen verslunar- mann til að gegna starfi kenn- ara við skólann. Herra Knudsen mun hafa haft einhverja reynslu af barnakennslu í Reykjavík en hann hafði numið við Prestaskól- ann og lokið þar prófi i heimspeki. Hreppsnefndin gerði grein fyrir ráðningartíma og kjörum kenn- arans með eftirfarandi hætti: „Laun hans vóru ákveðin pannig: Honum skyldi goldið úr hreppssjóði 90 kr. ogpess utan átti hann aðfá2 kr. um mánuðinn fyrir hvert barn. Hinsvegar átti hann sjálfur að kosta hita, Ijós og ræstingu á skólanum og fá óskertanpann styrk sem goldinn Bamaskólinn á Búðum. Skólahúsið var reist árið 1905 og kennsla hófitþar um baustið. kynni uð Verða til kennslunnar af Vattarnesi var kennt í fjóra mánuði og á Búðum í tvo. Kennslugreinarnar á Vattarnesi voru eftir- taldar: Reikningur, biblíusögur, skrift, kver, rétt- ritun, saga og lestur. Greinarnar sem kenndar voru á Búðum voru færri enda námstími styttri. Þær voru eftirtaldar: Kver, bibh'usögur, reikningur, skrift og réttritun. Alls þreyttu sjö nemendur á Vattarnesi próf þegar kennslu lauk og tólf á Búðum. Nemendurnir voru á aldrinum 8-14 ára. Fyrir lesendur er rétt að geta þess að kennsla farkennaranna fór fram á heimilum og þurfti þá helst að fá afnot af góðri stofu til að kenna f. Börnin af þeim bæ sem kennslan fór fram á nutu hennar en einnig var hún oftast sótt af börnum frá nágrannabæjum. I Fáskrúðsfjarðarhreppi var erfitt að skipuleggja farkennslu þannig að öll börn nytu hennar enda teygir byggðin sig eftir 70 kíló- metra langri strandlengju. Fram til aldamótanna 1900 var ávallt einungis einn farkennari ráðinn opinberu fe'. Ráðningin náði til 6 mánaða tíma, 5 tíma kennsla á dag. “ Kennslan í skólanum á Búðum hófst 1. nóvem- ber og lauk 1. maí vorið eftir. Alls nutu hennar 22 börn og voru þau öll innan við fermingu. Börnin sem sóttu skólann allan starfstíma hans fengu 26 vikna kennslu en sumir nemendanna sóttu skólann í skemmri tíma. Eftirtaldar náms- greinar voru kenndar: Lestur, kver, biblíusögur, skrift, réttritun, reikningur, íslenska, danska, saga, landafræði og náttúrusaga. Alls luku 15 nemendur prófum frá þessum fyrsta barnaskóla á Búðum vorið 1901 og var skýrsla þess efnis undirrituð af kennaranum og próf- dómendum. Prófdómarar voru tveir; Jónas P. Hallgrímsson sóknarprestur og Bjarni Sigurðs- son hreppsnefndaroddviti. Að skólahaldi loknu sótti Vilhelm Knudsen um styrk til landssjóðs vegna kennslunnar og fylgdu umsókninni vottorð frá prestinum og hreppsnefndinni. I vottorði prestins mátti lesa eftirfarandi: „... kennsla herra Knudsens hefr haft svo ánægju- legan árangur, sem sanngjarnl. verðr krafist, og verð jeg að Ijúka lofsorði á alla kennslu hans og vakandi áhuga ápessu karleiksstarfi sínu. “ Hallgrímur Sveinsson biskup fékk umrædda styrkumsókn í hendur og lét hann frá sér fara minnisblað með ýmsum athugasemdum. I at- hugasemdum hans kom fram að skólinn full- nægði alls ekki skilyrðum fyrir styrkveitingu en hins vegar mælti margt með því að hann teldist með barnaskólum landsins. Eitt helsta skilyrðið sem barnaskólinn á Búðum uppfyllti ekki var það að engin samþykkt reglugerð fyrirfannst um starfsemi hans. Þrátt fyrir athugasemdirnar mælti biskup með því að skólinn hlyti nokkurn styrk, enda virtist kennslan hafa verið ágæt, laun lítil og kennslugreinar margar. Þá benti hann á að skýrslan frá skólanum væri afar glögg og vel færð. 17

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.