Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 10
FRÉTTIR
10 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
Þeir stýra Samskipum. Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður, og forstjórarnir Michael F. Hassing og Ásbjörn Gíslason.
Breytt forystusveit Samskipa
Forstjóraskipti urðu hjá
Samskipum á dögunum.
Forstjórar félagsins eru núna
tveir; þeir Ásbjörn Gíslason og
Michael F. Hassing.
Ásbjörn hefur verið forstjóri
Samskipa í Hollandi og unnið
þar gott starf. Hann tekur við
af Knúti G. Haukssyni sem er
orðinn forstjóri Heklu. Ásbjörn
hefur leitt útrás Samskipa undan-
farin ár á erlendum vettvangi og
undir hann heyrir áfram stjórn
Íslandsdeildanna erlendis og
frystivöruflutningar félagsins.
Michael F. Hassing er með
25 ára reynslu hjá AP Möller-
Mærsk Group í alþjóðlegum
siglingum og flutningastarfsemi.
Undanfarin ár hefur hann verið
forstjóri Mærsk í Bretlandi.
Hann mun einkum sinna ört
vaxandi gámaflutningastarfsemi
Samskipa erlendis sem og flutn-
ingsmiðlun félagsins. Báðir for-
stjórarnir munu gerast hluthafar í
Samskipum.
Michael F. Hassing sagði
þegar hann tók við hinu
nýja starfi að hann og Ólafur
Ólafsson, starfandi stjórnarfor-
maður Samskipa, hefðu þekkst
lengi og að hann vissi nákvæm-
lega hverjar væru væntingar
Ólafs um framtíð Samskipa.
„Ég stóðst því ekki freistinguna
þegar mér var boðið að slást í
hópinn.“
Ólafur Ólafsson, stjórnarfor-
maður Samskipa, segir markmið
Samskipa vera háleitt: „Við
ætlum að verða eitt stærsta
flutningafyrirtækið á okkar sviði
í Evrópu, en um leið að verða
afburðafyrirtæki í greininni.“