Neytendablaðið - 01.09.2011, Page 6
Neytendasamtökin könnuðu framboð og verð á stórum sjón
varps tækjum í ágústmánuði. Alls fundust 207 sjónvörp á stærð
ar bilinu 3260 tommur (1 tomma = 2,54 sm). Ódýrasta sjón
varpið kostaði 69.995 kr. en það dýrasta var 55” sjónvarp frá
Bang & Olufsen sem kostaði 3.500.000 kr.
ICRT (International Consumer Research & Testing), sem er fjöl þjóð
legur samstarfsvettvangur neytendasamtaka, fylgist stöð ugt með
sjónvarpstækjamarkaðnum og hefur á undanförnum mán uðum
prófað hátt á þriðja hundrað tækja. Á meðal þeirra eru 55 sjónvörp
á stærðarbilinu 3243” sem eru til sölu á Íslandi.
LCD eða plasma?
Það eru aðallega tvær sjónvarpstegundir á markaðinum í dag:
LCD og plasma. LCD táknar að skjárinn sjálfur notar „liquid crystal
display“ til að búa til liti, en þetta er algengasta tæknin í öllum
skjám í dag. Plasmaskjár er hins vegar búinn til úr mörgum litlum
sellum sem innihalda eðalgas eins og neon og eru í raun og veru
eins og neonperur. Plasmaskjáir eru eingöngu til í stærri stærðum.
Í töflunni eru þeir bara til í 4243” stærð og fá frekar slaka einkunn.
Þetta getur verið aðeins misvísandi því kostir plasmaskjáa aukast
eftir því sem skjárinn er stærri. Í þeim stærðum sem þessi könnun
tekur til er LCD þó almennt betri kostur. Plasmaskjáir eru yfirleitt
með meiri litagæði og hafa gleiðara sjónarhorn (wider viewing
angle) en LCDskjáir. Plasmaskjáir nota hins vegar meira rafmagn
og eru ekki með eins góða upplausn.
Ný tækni í sjónvörpum
Ein tegund sem var í könnun ICRT, en er ekki til sölu á Íslandi,
er af nýrri tegund sem heitir OLED (organic light emitting diode).
Díóður í OLEDskjám eru ekki eins og LEDperur sem við þekkjum,
t.d. í vasaljósum og jólaseríum, heldur eru þær úr sér stök um efna
samböndum sem eru límd á skjáinn. Þetta er tækni á byrjunar stigi
og hún er mjög dýr og hentar illa fyrir stóra skjái. OLEDskjáir eru
hins vegar í almennri notkun í sumum farsímum.
En hvað um LED sjónvörp?
Mörg sjónvörp eru markaðssett sem LED (skammstöfun fyrir „light
emitting diode“) en þetta er aðeins misvísandi. Þessi sjónvörp eru
LCDsjónvörp, en allir LCDskjáir þurfa tvennt: hvítt bakljós og
eitthvað sem breytir því í liti. Það síðarnefnda (og mikilvægara) er
í öllum tilfellum LCD (skammstöfun fyrir „liquid crystal display“).
Bakljósið getur hins vegar verið af mismunandi tegundum. Fyrir
nokkrum árum var bakljósið alltaf flúorpera en á síðustu árum hafa
LEDperur rutt sér til rúms. Hér er þá um LCDsjónvörp að ræða
sem eru með bakljós úr LEDperu. LCD sjónvörp með LED bakljós
eru almennt með betri litagæði og minni rafmagnsþörf en LCD
sjónvörp með flúorperubakljós, en munurinn er samt ekki mjög
mik ill.
Full HD/HD ready
Oft er spurt hvort sjónvarp getur sýnt „HD“ (highdensity) mynd
efni. Þá er betra að hugsa um upplausn á skjánum. HD þýðir að
efnið er í 1920x1080 pixla upplausn. Sum sjónvörp og skjáir geta
sýnt alla þessa 1920x1080 pixla og þá er talað um „Full HD“.
Önn ur sjónvörp eru með minni upplausn, oftast 1366x768, en
öll sjón vörp af þessari stærð í könnuninni geta samt tekið inn og
birt myndefni sem er í 1920x1080 stærð þó að myndgæðin verði
ekki alveg eins góð; þetta heitir „HD Ready.“ Því fleiri pixlar, því
betri getur myndin á skjánum orðið. Ekki hika þó við að kaupa
1366x768 sjónvarp ef það nægir. Mikið af efninu sem við horfum
á er í minni upplausn en 1920x1080 og oft jafnvel minni upplausn
en 1366x768. Þá er „Full HD“ í raun bara óþarfi.
Sjónvörp – flókin tækni og ör þróun
Gæðakönnun á 32-43 tomma sjónvörpum
6 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011