Neytendablaðið - 01.09.2011, Page 21
Niðurstöður könnunarinnar
Á heimasíðu Neytendasamtakanna má sjá töflu með 85 mynda
vélum, en hér í blaðinu eru einungis birtar niðurstöður fyrir vélar
sem eru með hærra en 3 í heildareinkunn. Félagsmenn geta prentað
töfluna út og farið með hana í verslun til að skoða hlutlaust gæða
mat á staðnum. Taflan er á læstum síðum fyrir félagsmenn á
heima síðunni www.ns.is.
Ódýrar en ágætar myndavélar
Þrjár vélar frá Panasonic (Lumix DMCS3, DMCS1 og DMCFP1)
hafa sæmileg myndgæði og eru fjölhæfar, auðveldar í notkun og á
góðu verði. DMCS3 og DMCS1 eru báðar ódýrastar hjá Max, en
kosta aðeins einni krónu meira hjá Sjónvarpsmiðstöðinni. DMCS3
kostar aðeins meira, en tekur betri kvikmyndir en DMCS1.
Vél sem fær góða einkunn og er á hagstæðu verði
Nikon Coolpix L120 fékk háa einkunn. Hún er jafnframt í ódýrari
kantinum og kostar 54.000 kr. í Beco.
Vatnsheldar vélar sem fá lélegar einkunnir
Það gæti verið ástæða til að forðast Fujifilm FinePix XP10 og
XP30. Báðar eru vatnsheldar myndavélar og kosta tæplega 40.000
kr., en koma frekar illa út úr könnuninni.
Veldu hvaða hæfileika þú vilt
Almennt sýnir taflan mjög skýrt að dýrari myndavélar hafa marga
eiginleika. Þær eru aðeins auðveldari í notkun og taka betri ljós
myndir og kvikmyndir. Spurningin er samt hvort bestu mynda
vélarnar hafi fleiri eiginleika en þú hefur þörf fyrir? Margir geta
líklega sætt sig við myndavél sem gerir mikilvægustu hluti bara
ágætlega ef hún er ódýr og sæmilega nothæf. Stundum er keypt
myndavél fyrir ungt barn eða aukamyndavél til að geyma í vinnu
eða í bíl og í þeim tilfellum getur einföld vél dugað vel. Ef þú hefur
hinsvegar sérþarfir − og margir hafa þær í sambandi við vinnu,
fjölskyldu eða áhugamál − þá borgar sig að greina þær og leggja
smá vinnu í að finna myndavél sem þjónar þér sem best.
Verð í útlöndum
Ef leið þín liggur til útlanda á næstunni borgar sig að kaupa
mynda vél þar ef hún er í ódýrari kantinum. Dýrari vélar rúmast
mögu lega ekki innan tollfríðinda ferðamanna við komu til landsins
(farþegar mega taka vörur að verðmæti allt að 65.000 kr. með sér,
en enginn einn hlutur má kosta meira en 32.500 kr.) Að kaupa
Nikon Coolpix L120 í Bandaríkjunum rétt sleppur því hún kostar
29.250 kr. í ristastóru J&R tækjabúðinni í New York en hún kostar
54.000 kr. á Íslandi. Panasonic Lumix DMCS3, sem kostar 19.989
kr. á Íslandi, kostar um það bil 11.700 kr. frá Amazon.com eða
15.900 kr. frá Amazon.co.uk.
Nikon Coolpix L120 fær mjög góða einkunn en er ekki eins dýr og
sumar svipaðar myndavélar.
Panasonic Lumix DMCS3 fær einkunnina 3 sem er hæsta einkunn
meðal mynd avéla undir 20.000 kr.
Fujifilm FinePix XP10 og XP30 eru frekar dýrar vatnsheldar mynda
vélar sem fengu áberandi lélegar einkunnir eða 2 í heildareinkunn.
21 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011