Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Síða 98

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Síða 98
texti“ kvæða, sem varðveittist í minni manna, fyrst minni skáldsins sjálfs og síðan þeirra sem töldu ómaksins vert að læra verk þess. Þetta hvort tveggja afsannar þá ströngu tvískiptingu milli „munnlegrar menningar“ og „ritmenningar“ sem er kjarninn í kenningu Parrys og Lords, svo og skilgreiningu „munnlegu menningarinnar“ og alhæfingar og reglur sem á henni eru byggðar. Loks sanna dróttkvæðin þá kenn- ingu, sem Gísli taldi svo fáránlega, að það eitt væri fullgild rök fyrir því að beita „munnlegu kenningunni" á eddukvæðin — sem sé að á Norðurlöndum hafi ríkt sér- stakar aðstæður hvað snerti bókmennta- sköpun og -varðveislu. Um þetta verður naumast deilt, enda viðurkennir Gísli það í reynd þegar hann reynir að afgreiða drótt- kvæðin með því að tala um „ólík lögmál“ í sambandi við þau. En þá er hann líka kom- inn í mótsögn við sínar eigin forsendur því „munnlega kenningin" byggist á því að æf- inlega gildi sömu lögmál í „munnlegri menningu“ og á þeim grundvelli hvílir rök- semdafærsla hans sjálfs. En með þessu er þó ekki nema hálfur sannleikurinn sagður. Hingað og þangað um heimsbyggðina hefur skáldskapur á ýmsum tímum haft harla mismunandi hlut- verk, skáld hafa beitt margvíslegum aðferð- um við að yrkja og síðan til að koma kvæðum sínum á framfæri, varðveisla bók- mennta hefur verið með ýmsum hætti og viðhorfin til þeirra fjölskrúðug: það eru með öðrum orðum og hafa verið víða ríkj- andi alveg „sérstakar aðstæður“. Með tví- skiptingu sinni í „munnlega menningu“ og „ritmenningu“ — sem mig grunar að sé einungis ný myndbreyting hinnar gamal- kunnu og gersamlega úreltu skiptingar í „frumstæðar þjóðir“ og „menningarþjóðir“ — svo og með alhæfingum sínum um hvora „menninguna“ um sig leiðir „munnlega kenningin" ekki til annars en fela þessa margbreytni, byrgja hana inni í tveimur heimasmíðuðum básum, ýkja og einhæfa muninn á því sem sett er á mismunandi bása en þurrka út muninn á því sem lendir sömu megin. Það ætti þó að vera meira spennandi fyrir fræðimenn að horfa fordómalaust á þessa margbreytni, rannsaka „sérstakar að- stæður" á einhverjum ákveðnum stað og tíma og kannske bera saman heldur en beita á vélrænan hátt einhverri fyrirframgerðri patentkenningu. Nú hefur Gísli vitanlega fullan rétt til að halda því fram, að „munnleg kenning" Parr- ys og Lords geti varpað ljósi á eddukvæðin, en hann getur ekki gengið út frá grundvall- arsetningum hennar sem traustum sannind- um og því hvílir sönnunarskyldan endilöng á honum sjálfum: hann verður sem sé að færa rök að því að eddukvæðin hafi orðið til á sama hátt og Parry og Lord telja að suður-slafnesku kvæðin séu ort. Þetta gerir hann ekki, enda kynni það að vefjast fyrir fleirum. Það er hins vegar nokkuð auðvelt að benda á ýmis rök sem mæla sterklega gegn því að „munnlega kenningin“ geti átt við um eddukvæðin. Menn eru sennilega sammála um að það sé því erfiðara fyrir skáld að spinna upp kvæði í beinum flutn- ingi sem þau þurfa að gæta fleiri atriða í einu og hafa minna svigrúm. Hvað sem annars má segja um skýringar Parrys og Lords á slafnesku kvæðamennskunni, virð- ist ljóðlist á þessum slóðum vera mjög ein- föld og reglumar hentugar fyrir einhvers konar impróvisasjón, ef svo ber undir, eða frjálsra tilbrigða í flutningi. Kvæðamaður- inn þarf ekki að gæta annars en þess að hver ljóðlína hafi rétt hljóðfall, sem sé ákveðna lengd og braghvíld á vissum stað, þær eru nógu langar (tíu atkvæði) til að gefa honum sæmilegt svigrúm, og við mótun þeirra get- ur hann stutt sig við fasta lagboða — því hljóðfallið er alltaf eins og síendurtekið — og sitt eigið undirspil. Allt öðru máli gegnir um eddukvæðin: í þeirri bókmenntagrein þurfti skáldið bæði að gæta lengdar og 96 TMM 1990:1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.