Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 22

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 22
gerist atburðurinn í skólaportinu á steini og má setja hann í samband við útlegðina; Hins vegar er varla hægt að tala um að heim- koman standi fyrir gróður og því virðist þessi tenging vart standast. Sé endurlitið til vorsins 1985 (116-117) hins vegar athugað sést að andstæða gróðurs og steins felst þar í því að gróðurinn myndar eins konar yfir- borð, hulu yfir steininn sem er tákn út- legðarinnar og Anna hefur í raun bælt. Þama sést skýrt að steinninn er tákn bældra minninga um aðskilnað, rof eða missi. Ákveðin eining sem var með Önnu og átt- högunum var rofin, hún var send í útlegð en hún hefur bælt sársaukafullar minningar sínar um þennan atburð. Atburðurinn í skólaportinu væri því tákn útlegðar í víð- asta skilningi. Hann væri tákn þess rofs sem verður á milli sjálfsveru einstaklingsins og spegilmyndar hans eða tákn um aðskilnað hans við móðurina og inngöngu hans í lög- mál föðurins. Hér em komin til sögunnar hugtök sem ættuð em úr fræðum Frakkans Jacques Lac- ans.5 Hann lagði mikla áherslu á hugtakið rof eða missi sem er að verki á nánast öllum stigum í þróun sjálfsvemnnar. Fyrstamikil- væga rofið verður því við fæðingu, það næsta verður þegar einstaklingurinn upp- götvar spegilmynd sína og síðan er hann gengur inn í heim tungumálsins sem sam- kvæmt Lacan er karlstýrður og er stjómað af lögmáli föðurins. Lestur „Endurkomu“ sem tákns þessarar þróunar byggir því á þremur meginhugtökum sem öll em mikil- væg í kenningum Lacans; rof, bæling og endurtekningarhvöt. Útskúfun Önnu má því skilja sem rof frá vissri heild sem henni fannst hún tilheyra áður líkt og bam lítur á sig og móður sína sem eina heild í upphafi en verður síðan að skiljast frá henni. Minn- ingin um þessa heild er síðan bæld, sem birtist í því að Anna neitar að snúa aftur til íslands aftur í þessi fjörutíu ár og vill ekki kannast við hinn sársaukafulla atburð út- skúfunarinnar, hún reynir að gleyma hon- um. En hann kemur engu að síður aftur og aftur upp á yfirborðið hvort sem hún kærir sig um það eða ekki. Hann þrýstir á um að fá að koma í dagsljósið. Sigmund Freud nefndi þessa hlið endur- tekningarinnar upphaflega endurtekning- arhvöt og átti þá við að um hugsýkieinkenni væri að ræða sem væri óháð vellíðunar- og veruleikalögmálunum sem sjálfxð stjómast af. Endurtekningarhvötin setti sjúklingana aftur í þá óþægilegu aðstöðu sem leiddi til hugsýkinnar án þess að þeir réðu því sjálfir og því áleit hann að hún væri birtingarmynd þess óhugnanlega krafts sem bælingin í undirvitundinni hefur í sér fólginn.6 Þessa hugmynd útfærði Lacan á þann veg að end- urtekningarhvötin væri einskonar krafa í undirvitundinni sem heimtaði að fá að tjá sig. Líkt og í „Endurkomu“ þar sem bæl- ingin er sífellt að koma upp á yfirborðið án þess að Önnu sé það sjálfrátt, krefst hið bælda inntak undirvitundarinnar þess að fá að koma fram í dagsljósið. Það þrengir sér sífellt að jafnvel þó að við tökum ekki eftir því dags daglega. Þetta ferli er mjög áber- andi í „Endurkomu“ og vissulega ein skýr- ing á endurtekningunni. Sé endurtekning- arhvötin tengd hinum huglæga tíma mætti líta á hann sem táknmynd þeirrar hring- hugsunar sem vafalaust einkennir sjálfs- veru mannsins fyrir rof hans. Sögulega séð væri hringhugsunin tákn þeirrar einingar sem maðurinn er í við tímann í forsögu- legum samfélögum, fyrir syndafall kapítal- ismans. Þessum hringferlum væri hér varpað yfir á svið sálræns þroska einstak- 20 TMM 1990:3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.