Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Side 50
Og ekki skil ég þá menn, sem ekki þjást af andlegu hungri ef þeir hafa enga andlega næringu aðra en þá sem okkar bókmenntir hafa að bjóða. En slíks hungurs gætir furðu lítið. Andlegu þarfirnar eru furðu litlar. Okkar andlegi heimur og himinn er svo lítill, litlu stærri en asklok. — Satt er það að vísu, að utan við asklok okkarmeðal þeirra, er við köllum stórþjóðir, en eru þó svo litlar og vesælar og vanmáttkar að svala sálun- um, gætir hungursins og þorstans enn meira en hjá okkur, en þareru líka kröfurnar meiri og stefna hærra. Mannsandinn er staddur á eyðimörk, allar brýr eru brotnar að baki, en fram undan mistur og „fata morgana“. — „Lítið sjá’m aftur, en ekki fram, skyggir skuld fyrir sjón.“ Hin mikla skuld frá 1914— 18. Andlegu verðgildin em „fallin" ekki minna en krónan, markið og frankinn. Hin gömlu andlegu hælin í rústum og allt í uppnámi og sundrungu. Straumur lífsins klofnaður í ótal kvíslar er flestar falla út á eyðimerkur og hverfa í sandinn. Gróðrar- blettimir, sem þessar kvíslar mynda, eru svo fáir og strjálir enn, að þeirra gætir lítið, og gróðurinn svo lágur, að hann veitir lítið skjól. Fáir sjá yfir allar kvíslamar, fæstir nema eina þeirra og skilja ekki hvert hún stefnir og halda að þar sé allur straumur lífsins, fleygja sér í þessa litlu kvísl og láta hana bera sig út á auðnina eða út í brimgarð úthafsins og hverfa að eilífu árangurslaust. — Þessi hörmulega askloka þröngsýni er nú því miður algeng um heim allan, en óvíða eins undantekningalaus eins og hjá okkur, því hún eyðileggur jafnvel starfsemi þeirra, sem fyrir bestu og göfugustu hug- sjónum berjast svo sem samvinnu- og frið- armálum, siðferðis- og trúmálum, vegna þess að á bak við starfsemina stendur engin víðsýn og samræmd lífsskoðun eða heims- skoðun sem allt sé miðað við og mælt eftir. Hver og einn kemur með sinn kvarða-stúf og leggur á mannlífið, tilveruna og sjálfan guð og heldur að nú hafi hann mælt allt, fundið takmörk alls og markmið eða mark- miðsleysi. Úr þessu verður svo eins konar „teknisk" lífsskoðun, viðlíka stórfelld sam- anborin við alskepið sem fyrsta samlagn- ingar dæmið, sem við gefum bömunum, er við útreikning á þyngd stjamanna í tugþús- unda ljósára fjárlægð Svona lítég nú á nútímalífíð, og auðvitað hugsar þú: nú er gamli Ben. að verða böl- sýnn, trúlaus og ellisljór. — En — aldrei hefi ég „litið fram á veginn“ með meiri eftirvæntingu en nú, einmitt vegna þess að nú er „krisis" bæði í hinum andlega og efnalega heimi, svo að í nánd hlýtur að vera umsköpun og endurfæðing, jafnvel ný „op- inberun". Eg hefi reynt að ferðast milli „kvíslanna“ og kynnast „gróðrarblettun- um“, og ég hefi sannfærst um hversu gróðr- armagn lífsins er stórfellt og ótæmandi. Laufin falla af lífsins meiði, en bolurinn lifir að eilífu og skýtur nýju laufi og limi. Sú trú, að lífið sé öllum heillum horfið, er sprottin af gorgeir fáviskunnar og hlýtur að verða sér til skammar. — ítarlegri skýringu á bjartsýni sinni og lífs- gleði gaf Benedikt í bréfi sem hann skrifaði Benedikt Björnssyni skólastjóra á Húsavík „ájólunum 1926“. Hann laukekki við þetta bréf og mun aldrei hafa sent nafna sínum það. Þar segir hann: Þú spurðir: „Á hverju hefir þú lifað?“ — Ég svaraði „á gleðinni“ og bætti víst ein- hverjum marklausum orðum við. En þetta svar á sér dýpri rætur en mér fínnst að þú hafir veitt næga eftirtekt, og ég veit ekki hvort við erum sammála um innihald hug- taksins „gleði“. —Thomas Moore sagði: Simply but to be, to live, to breathe is purest extacy! Annað skáld norrænt hefir sagt: „Deiligst af alle Glæder, er Glæden for slet ingenting, ikke for noget du kan eller vil, Glæden for intet, og Glæden for alt, 48 TMM 1991:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.