Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 111
ÞJÓÐ í HLEKKJUM TUNGUMÁLSINS þessi frændi minn sig fljótlega aftur til útlanda og hefur síðan stundum heyrst muldra í barminn að íslendingar séu fasistar. Víkjum að þeirri hugmynd margra íslendinga um tunguna, sem Gísli Pálsson líkir við afturgöngu en Böðvar Guðmundsson við ósnortna jómfrú, að hún búi einhversstaðar úti í bæ og hafi sinn eigin líkama og sál. Þessi vera á sig sjálf að einhverju takmörkuðu leyti en fær þó ekki að fara ffjáls ferða sinna. Umhverfis hana sitja varðmenn og riddarar og sjá til þess að hún haldi sér í skefjum og fari ekki á flandur eða hlaupi útundan sér með einhverjum útlendum sjóara eða öðrum ljótum slordóna. Hún má heldur ekki skreyta sig með lánsfjöðrum eða öðru ómerkilegu glingri því ekki er hún nein hispursmey eða tildurrófa. Best er ef hún situr kyrr og spinnur á rokkinn sinn í gömlu peysufötunum sem hún erfði eftir langömmu sína sem bjó í afdal nokkrum norðanlands. Á meðan skal hún raula gamla rímnastemmu eða í besta falli uppbyggilegt kvæði eftir eitt þjóðskáldanna og slái hún taktinn með fætinum sem ekki stígur rokkinn skal hann klæddur brydduð- um sauðskinnsskó. Án alls gamans þá langar mig að spyrja Ólaf Halldórsson og aðra þá sem telja sig sjálfkjörna verndara tungunnar hvað í ósköpunum þeir telji felast í orðinu tungumál. Þegar flett er upp á „tungumál“ í íslenskri orðabók stendur: „tunga, mál, kerfi orða með hefðbundna merkingu sem fólk notar til að gera sig hvert öðru skiljanlegt:“ Ólafur skilur þetta kannski þannig að um sé að ræða rökrétt kerfi sem byggt er upp líkt og stærðffæði og ekki sé hægt að breyta að ráði án þess að kerfið hætti að virka. Það geri ég hins vegar ekki. Fyrir mér er tungumálið tæki sem við mennirnir höfum til afnota til að gera okkur skiljanlega þegar við eigum samskipti okkar á milli. Þetta tæki er sameign okkar allra og enginn getur átt stærri hlut en annar. Tækið má laga að öllum hugsanlegum aðstæðum, teygja og toga út og suður útum allar trissur eða hnoða saman í litla kúlu allt eftir þörfum. Málvísindamaðurinn Widdowson hefur búið til hugtak sem notað er um ákveðna gerð tungumála. Þetta hugtak er haff um mál sem eru algjör andstæða svokallaðra „pidginmála“. Pidgin er það tungumál kallað sem ekki er móðurmál neins hóps en verður til þar sem fólk með ólík móðurmál hefur samskipti sín á milli, gjarna vegna viðskipta. Mætti kannski taka hina útdauðu en áhugaverðu Fáskrúðsfjarðar-frönsku sem dæmi um pidginmál.2 Málin sem eru andstæða pidginmálanna kallast hins vegar „babumál“ og er einkenni slíkra tungna að ofuráhersla er lögð á hvernig hlutirnir eru orðaðir, en það sem sagt er þ.e.a.s. inntak textans, skiptir litlu eða engu máli.3 Hugtakið „babu“ er leitt af nafhi ungs indversks prests en enska sú sem hann talaði þótti fábreytt, ófrumleg og tilgerðarleg. Ég vona að enginn sem lætur sig íslenskt mál einhverju varða, hvort sem TMM 1998:1 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.