Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Allur gangur er á því hvortsveitarfélögin veita stað-greiðsluafslátt af fast-eignagjöldum séu þau greidd í heild sinni fyrir tiltekinn tíma. Þessi afsláttur er allt að 5%, en var allt að 10% fyrir nokkrum árum. Mörg sveitarfélög eru hætt að veita þennan afslátt. Í skýrslu Sambands íslenskra sveitarfélaga um hagræðingar- aðgerðir sveitarfélaganna árið 2011 segir að mörg sveitarfélög hafi hætt að veita staðgreiðsluafslátt af fast- eignagjöldum í hagræðingarskyni og þar segir að þetta sé ein af þeim að- gerðum sem hafi skilað einna mestri hagræðingu í rekstri sveitarfélag- anna árin 2009 og ‘10. Í fasteignagjaldinu felst fast- eignaskattur og að auki felur gjaldið í sér lóðarleigu, fráveitugjald, vatns- og sorpgjald. Við útreikning fast- eignaskatts er mið tekið af fermetra- fjölda húseignar og misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu hátt hlutfall er lagt til grundvallar, eða allt frá 0,2% upp í 0,625% samkvæmt töflu á vef- síðu Sambands íslenskra sveitarfé- laga fyrir árið 2014. Þá eru önnur gjöld sem liggja að baki fasteigna- gjaldinu sömuleiðis mismunandi, t.d. fráveitugjöld sem eru allt frá 0,1% á fermetra húsnæðis og upp í 0,36% samkvæmt upplýsingum í sömu töflu. Vegna þessa er afar misjafnt hversu mikið hagræði getur verið fyr- ir fyrir eiganda fasteignar að fá þenn- an staðgreiðsluafslátt og það veltur að sjálfsögðu einnig á stærð og verð- mæti húseignar. Yfirleitt 3-5% afsláttur Staðgreiðsluafsláttur fasteigna- gjalda hefur tíðkast um margra ára skeið í sumum sveitarfélögum eins og t.d. Kópavogi, þar sem afslátturinn var 10% árið 1989 og sami afsláttur var í Vestmannaeyjabæ árið 1993 svo tekin séu dæmi um tvö sveitarfélög. Svo hár afsláttur virðist ekki vera á boðstólum í dag. Mismunandi er fyrir hvaða tíma þarf að greiða heildargjaldið til að eiga kost á afslættinum, en oftast er það í janúar eða fyrri part febrúar- mánaðar. Í Kópavogi er veittur 3% staðgreiðsluafsláttur ef fasteigna- gjöldin í heild eru greidd fyrir tiltek- inn tíma. Í Garði er afslátturinn 5% og sömuleiðis í Dalabyggð. Hann er líka 5% í Hafnarfirði og þar er gert ráð fyrir að um 800 einstaklingar, sem eru um 6,5% gjaldenda, muni notfæra sér afsláttinn, sem er svipað og í fyrra. Staðgreiðsluafsláttur fast- eignagjalda í Vestmannaeyjabæ er 5%. Í Höfn er veittur 2% stað- greiðsluafsláttur af fasteignagjöldum og þar hefur hann verið lækkaður úr 3% í fyrra. Í Ísafjarðarbæ var um nokkurra ára skeið veittur 5% af- sláttur, en í ár var ákveðið að veita hann ekki. Reykjavíkurborg veitir ekki staðgreiðsluafslátt af fast- eignagjöldum. Í skriflegu svari Birgis Björns Sigurjónssonar, fjármála- stjóra borgarinnar, við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að sveitarfélög beri ábyrgð á að framkvæma álagn- ingu fasteignaskatta í samræmi við þær leikreglur sem settar eru í lögum um tekjustofna sveitarfélaga. „Það er okkar skilningur að við höfum ekki heimild til að lækka eða hækka álagða skatta nema í sam- ræmi við nefndar leikreglur. Í þeim eru engin ákvæði um heimildir til að veita staðgreiðsluafslátt frekar en í lögum um tekjuskatt,“ segir í svari Birgis Björns. Dan Jens Brynj- arsson, fjármálastjóri Akureyr- arbæjar, segir að þar í bæ hafi aldrei verið boðið upp á afslátt sem þennan. Einnig er mismunandi í hversu margar greiðslur fasteignagjöldin skiptast. Algengast er að gjalddag- arnir séu átta, en eitt sveitarfélag var með þrjá í fyrra, tvö voru með fjóra gjalddaga og 14 með tíu. Afsláttur sums staðar, annars staðar ekki Morgunblaðið/Ómar Fasteignagjöld Þau eru mismunandi eftir sveitarfélögum, eins og margt annað. Sum sveitarfélög veita afslátt séu fasteignagjöldin greidd í einu lagi. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sviss var ífyrra ífimmta sæti á lista Trans- parency Inter- national yfir spill- ingu. Í löndunum í efstu sætunum ríkir minnst spilling. Á sama lista er Ísland í 12. sæti. Í gær birtust fréttir um hvernig útibú bankans HSBC í Sviss hefði hjálpað mörg hundruð viðskiptavinum að fela peninga og komast undan sköttum, þar á meðal í þeim löndum heims, sem hvað oftast eru orðuð við spillingu. Nú nær listi gagnsæis- samtakanna yfir spillingu hjá hinu opinbera. Svissneskir bankar eru ekki opinberir. Það væri því kannski nær að segja að í þessu tilfelli væri spilling útflutningsvara. Þessi spilling hefur hins vegar síður en svo verið í óþökk sviss- neskra stjórnvalda. Ef svo væri og vilji hefði verið fyrir hendi hefði verið hægt að binda enda á þessa spillingu með því að opna allt upp á gátt. Hinir duldu reikningar voru hins vegar ábatasamir og voru því látnir í friði. Nú gætu einhverjir sagt að þessi samanburður sé ósann- gjarn. Gögnin, sem birt voru í gær, séu frá árunum 2005 til 2007 og nú sé öldin önnur. Ár- ið 2007 var Sviss hins vegar í sjöunda sæti spillingarlistans þannig að ekki breytir það miklu. Sérfræðingur hjá HSBC í Sviss tók upplýsingar um reikninga og eigendur þeirra traustataki 2007 og flúði með til Frakklands. Ýmsar rík- isstjórnir hafa notað þessar upplýsingar síðan og hafa skattsvikarar verið hand- teknir á Grikklandi, Spáni, Bandaríkjunum, Belgíu og Argentínu. Bretar notuðu listann til að endurheimta vangoldna skatta, einum var stefnt, en engin nöfn birt. Þessi gögn hafa því verið í umferð, en í gær birtust op- inberlega fréttir, sem eru af- rakstur samstarfs nokkurra fjölmiðla og sýna umfangið, þótt ekki hafi fylgt nöfn nema valinna einstaklinga. Í frétt á mbl.is í gær kemur fram að gögnin sýni að sex við- skiptavinir með tengingu við Ísland hafi átt um 9,5 milljónir dollara, eða rúma 1,2 milljarða íslenskra króna, á 18 banka- reikningum. Í frétt, sem birtist á vef The Guardian, sýna gögnin að HSBC í Sviss leyfði við- skiptavinum reglulega að taka af reikningum háar upphæðir, oft í erlendum gjaldmiðlum. Bankinn stundaði ágenga markaðssetningu á leiðum, sem lík- legt var að gerðu ríkum við- skiptavinum kleift að koma peningum undan skatti í Evr- ópu. Bankinn tók beinlínis þátt í því að fela „svarta“ reikninga, sem ekki voru gefn- ir upp, fyrir skattyfirvöldum í heimalöndum viðskiptavina. Bankinn opnaði reikninga fyr- ir alþjóðlega glæpamenn, spillta kaupsýslumenn og aðra vafasama einstaklinga. Einum var hjálpað að fela pen- ingaslóð blóðdemanta og aug- ljóst að hjá bankanum vissu menn hvað var á ferðinni. Nafngreindum eiturlyfjasala var hjálpað að þvo ágóðann af sölu eiturlyfja í Frakklandi með því að fara með pen- ingana í gegnum reikninga heiðvirðra einstaklinga í Par- ís. Síðan voru reikningar í Sviss notaðir til að koma pen- ingunum aftur í hendur eitur- lyfjasalans og vitorðsmanna hans. Dönskum auðkýfingi var einnig hjálpað að fela auðæfi sín. Í innanhússamskiptum segir að öll samskipti eigi að fara í gegnum dætur hans á Bretlandi þar sem í Dan- mörku sé „glæpsamlegt að eiga reikning erlendis án þess að greina frá honum“. Bankinn hefur viðurkennt að brot hafi verið framin í svissneska útibúinu og segir að slík vinnubrögð viðgangist ekki lengur. Skal ósagt látið hvort Alparnir eru þar með óspilltir. Nóg er þó af aflöndum þar sem geyma má peninga á föld- um reikningum og þurrka út peningaslóðir. Það er erfitt að sjá hver tilgangurinn er með slíkum reikningum annar en að koma peningum undan skatti. Skattsvik eru hins veg- ar ekki íþrótt heldur glæpur. Þeir sem svíkja undan skatti leggja byrðarnar af því að halda þjóðfélaginu gangandi á aðra, en nýta sér kinn- roðalaust þjónustuna. Gögnin um reikningana hjá HSBC í Sviss fela í sér upplýs- ingar, sem tengjast Íslandi. Íslenskum skattyfirvöldum hefur um nokkurt skeið staðið til boða að kaupa upplýsingar um reikninga Íslendinga í skattaskjólum erlendis, en skattrannsóknarstjóri ekki tekið af skarið án þess að fram hafi komið hvað standi í veg- inum. Slík gögn hafa verið keypt í Þýskalandi og Banda- ríkjunum án þess að það teld- ist stangast á við lög og nýst til að afhjúpa fé, sem annars hefði verið skotið undan skatti. Uppljóstrun um leynireikninga svipt- ir hulu af spillingu og undanskotum} Hinir óspilltu Alpar É g var á vakt á mbl.is þegar skemmtilega orðuð frétt um leg- gangaskolun Gwyneth Paltrow birtist á síðunni fyrir tilstuðlan eins af slúðursérfræðingum fréttadeildarinnar. Eftir að hafa hlegið upp- hátt að fyrirsögninni „Lætur skola reglulega úr skonsunni“ henti ég fréttinni á Facebook- síðu mbl.is. Slefandi af prakkaraskap sat ég síðan og fylgdist með athugasemdum netverja hrynja inn en þær urðu samtals 46 talsins. Flestar þeirra sneru að orðinu „skonsa“, sem margir glöddust yfir, en fleiri sökuðu miðilinn um að þora ekki að kalla kynfæri kvenna sínu rétta nafni. Uppáhaldsathugasemdin mín var: „Skonsa er ekki orð yfir skuð. Þetta er eins og ég væri að segja að ég væri með baguette.“ Fast á hæla henni kom: „Píííííka píka píka píka píka píka píka.“ Það er einmitt sama setning og bróðir minn æpti oft há- stöfum yfir Pókemon-þáttunum í den án þess að íhuga nokkuð tengingu stríðsöskurs Pikachu við skapabarma. Flestum ætti að vera ljóst að hvorki leggöng, píkur né pjöllur stuðla jafn vel við orðið „skola“ og „skonsa“ gerir. Í svari Guðrúnar Kvaran prófessors á Vísindavefnum um orðið „krummaskuð“ kemur fram að seinni hluti orðsins sé oftast notaður með niðrandi hætti um kvenmanns- kynfæri, svo ekki dugar það innlegg bakaradrengsins. Sköp og skapabarmar myndu sóma sér vel í setningunni en hún Gwyneth vinkona mín var öllu innar á ferð. Og er ekki miklu skemmtilegra að skola úr skons- unni heldur en að láta leka úr leggöngunum? Það er þó sannarlega rétt að píkan þarfnast uppreisnar æru enda hefur hún lengi vel ver- ið allt að því skammaryrði á íslenskri tungu. Og nei, hér er ég ekki að tala um munngælur. Í febrúar 2014 greindi Ægir Þór Eysteins- son Kjarnamaður t.a.m. frá því að fjögurra ára frænka hans hafði talið að stúlkur væru með rass að framan á meðan hún var vel með- vituð um tilvist typpa. Maður á erfitt með að trúa því upp á leikskólastarfsfólk að ljúga slíku að barninu en það er í það minnsta ljóst að það var ekkert gert til að leiðrétta mis- skilninginn. Sömuleiðis getur anatómían þvælst fyrir fólki langt fram yfir kynþroskann. Ég heyri reglulega af stúlkum sem héldu að það væri ekki hægt að pissa með túrtappa af því að þær vissu ekki að klof kvenna eru vopnuð tveimur opum. Eins eru enn til fullorðnar konur sem kannast ekkert við þennan sníp sem allir eru alltaf að tala um af því að þeim var snemma innrætt að það væri ljótt að fikta í „þessu ljóta milli fóta“. Að öllum barmabröndurum slepptum held ég að auk- inn skilningur og ást á eigin kynfærum geti styrkt konur ósegjanlega. Orð eru til alls fyrst og í sannleika sagt finnst mér bara allt í góðu að kalla vinkonuna eftir brauð- meti við og við. Aðalatriðið er bara að við förum að spjalla um þessar elskur. Hvað kallar þú píkuna þína? annamarsy@mbl.is Anna Marsibil Clausen Pistill Hvað kallar þú píkuna þína? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að hjá sambandinu sé ekki haldið sérstaklega utan um fjölda þeirra sveitarfélaga sem bjóði þennan afslátt eða hversu hár hann sé, því sé ómögulegt að segja til um hversu margir landsmenn nýti sér afsláttinn. „Sum hættu að bjóða upp á þetta í sparnaðarskyni en líka vegna þess að þessu fylgir aukin umsýsla. Áður skipti það líka sveit- arfélögin meira máli að fá peningana snemma inn, en núna er fjárflæði þeirra allt öðruvísi háttað,“ segir Gunnlaugur. „Maður heyrir af einu og einu sveitarfélagi sem er að gera þetta, en ég held að þau séu ekki mörg,“ segir Gunnlaugur. Eitt og eitt sveitarfélag ÓVÍST MEÐ FJÖLDANN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.