Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 ✝ Þórunn Ingi-björg Friðfinns- dóttir fæddist á Ný- lendugötu 16 í Reykjavík hinn 4. júlí 1930. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík 25. janúar 2015. Hún var dóttir hjónanna Stefaníu G. Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 11. apríl 1900, d. 28.7. 1983, frá Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd og Friðfinns Gíslasonar, verkstjóra hjá Bæj- arútgerð Reykjavíkur, f. 18. október 1893, d. 13.6. 1959. Þórunn, sem alltaf var kölluð Tóta, var næstelst fjögurra systkina, Ingibjargar, Guð- mundar Einars og Margrétar Kolbrúnar, sem öll eru látin. Þórunn giftist hinn 7.7. 1951 Sig- fúsi Jónssyni raf- virkjameistara, f. 10.12. 1930, d. 20.1. 2013, og voru þau hjón til dauðadags Sigfúsar, eða í 62 ár. Þau eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Jórunn, f. 22. nóvember 1950; Stefanía Stella, f. 13. janúar 1953; Jón, f. 9. febrúar 1954; Kol- brún Edda, f. 8. apríl 1960, og Friðfinnur Gunnar, f. 16. desem- ber 1962. Sigfús og Þórunn eign- uðust að auki 16 barnabörn og 17 barnabarnabörn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Elsku amma, þá ertu loksins búin að sameinast afa aftur eftir langa langa bið. Mikið er samt sárt að kveðja þig í hinsta sinn. Minningarnar streyma og af mörgu að taka. Þú varst svo hlý og umhyggjusöm og þolinmóð. Mjög eru kærar allar minningarnar úr eldhúsinu hjá ykkur afa úti á nes- inu. Þegar ég sat við eldhúsborðið að vesenast eitthvað eins og að bræða vaxliti til að búa til lista- verk og það mátti, varst jafnvel að steikja lummur á meðan eða búa til eitthvað annað gott að borða. Eitt er víst að frá þér fór enginn svangur. Svo þegar ég var búin að eignast mín börn fengu þau líka að njóta hversu yndislegt og ómetan- legt það var að fara út á nes í heimsókn til ömmu og afa. Man líka eftir brúnu buddunni sem við vorum alltaf send með ef eitthvað vantaði að kaupa í Vegamótum, hún var alltaf pössuð eins og gull því þetta var buddan hennar ömmu Tótu. Alltaf var kveikt á út- varpinu og ennþá finnst mér eitt- hvað rangt við það að hlusta á guf- una nema sitja með ykkur í eldhúsinu. Mikið þykir mér vænt um allar minningarnar úr jólaboð- unum þegar öll fjölskyldan kom saman heima hjá ykkur og hafði gaman. Við frændsystkinin inni í sjónvarpsherbergi að spila mata- dor, svo dönsuðum við saman í kringum jólatréð. Þá var mikið hlegið, borðað og haft gaman. Stundum þó með smápústrum hjá okkur frændsystkinum, sem kem- ur mér til að brosa út í annað. Þeg- ar ég eignaðist Berglindi var ég mjög stolt yfir að við værum orðn- ar fjórar í kvenlegg. Núna bíð ég bara eftir því þegar tíminn er rétt- ur að ég verði amma Tóta. Mikið hlakka ég til en á sama tíma vona ég að ég nái að standa undir nafni og verða jafnmikilvæg mínum og þú varst mér. Dyr ykkar voru allt- af opnar og það var svo gott að geta alltaf komið til að spjalla og hlusta á sögur. Þegar það var komið að því að kveðja og fara varstu alltaf komin til dyra með mér og stóðst í dyragættinni og vinkaðir bless alveg þangað til ég sá þig ekki lengur. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið og kennt mér elsku amma mín. Munt alltaf eiga stóran hlut í mínu hjarta og núna þegar ég hugsa til þín sé ég ykkur afa standandi í dyragættinni bros- andi og veifandi bless, sem veitir mér þá hugarró að þið séuð ham- ingjusöm og komin heim. Minning þín mun lifa og hvíl í friði amma Tóta Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um huga minn fer, þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín nafna Þórunn Lilja Kolbrúnardóttir. Elsku amma mín, það er sárt að kveðja þig en ég veit að þú ert komin í faðm afa sem þú saknaðir svo sárt síðan hann dó fyrir um tveimur árum síðan. Þið voruð af- skaplega samrýmd og erfitt að horfa upp á þig fulla af söknuði og þér hrakaði fljótt eftir að afi fór. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu. Það besta sem ég vissi var að koma í heimsókn til þín, þú naust þess að stjana við mig og fylltir eldhúsborðið af kræsingum, nýbökuðum kökum, brauði og kexkarfan var alltaf sett á borðið líka. Þegar ég var í pöss- un og mátti velja hvað var í matinn valdi ég alltaf ömmugraut, ég kalla grjónagraut enn í dag ömmugraut. Ég fékk líka að setja svo mikinn kanilsykur útá. Fiskur í raspi var með eindæmum góður hjá þér og tala nú ekki um svína- snitselinn þinn og allar góðu súp- urnar og það besta sem ég vissi var púðursykurtertan sem var í öllum veislum. Þú varst kokkur og bakari af Guðs náð og lærði ég margt af þér, auðvitað að gera grautinn góða, púðursykurtert- una og fleira góðgæti. Það var allt- af svo snyrtilegt og fínt á Nesinu og mér fannst þú alltaf vera eins og fínu frúrnar svo vel til höfð og nýkomin úr lagningu, þú varst fín frú. Heimilið ykkar afa á Nesinu var svo fallegt og gott að koma til ykkar. Það var dótakassi inni í geymslu með alls konar skemmti- legu dóti en mér fannst skemmti- legast að leika með stytturnar þín- ar fínu, ég lofaði að brjóta þær ekki og fór afar varlega, þú treyst- ir mér fyrir fallegu styttunum og ég fór vel með þær. Ég elskaði að koma til ykkar á jóladag. Þá voru auðvitað kræsingar á borðum, hangikjöt og meðlæti og kökur í eftirrétt. Skemmtilegast fannst mér þó að dansa með fjölskyld- unni í kringum jólatréð og spila langt fram eftir kvöldi. Ég fór oft á yngri árum með ykkur í sumarbú- staðinn þar sem við barnabörnin lékum okkur við lækinn, stungum af upp í fjall eða gróðursettum tré. Börnunum mínum fannst yndis- legt að koma til þín og fengu alltaf sleikjó í nesti. Þeim fannst gaman að leika með allt gamla dótið sem mamma þeirra hafði leikið sér með og fannst yndislegt að fá ömmu-góðgæti. Þið afi voruð dug- leg að hitta Skagfirðingana á laug- ardögum og komuð oftar en ekki við hjá okkur á leiðinni heim. Kaffitíminn lengdist og spjallað var svo mikið að þið sátuð oft hjá okkur í kvöldmat líka, þær stundir þykir mér afar vænt um. Það var erfitt að horfa á þig veika síðustu viku lífs þíns og ég er svo fegin að það síðasta sem ég sagði við þig var: Amma, ég elska þig. Þín verð- ur sárt saknað, elsku amma, meg- ir þú hvíla í friði. Þín Henný Ása og fjölskylda. Þórunn Ingibjörg Friðfinnsdóttir Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Klapparstíg 44 • Sími 562 3614 COTTAGE DELIGHT Bresk gæðavara stofnað 1974 25% afsláttur Seville Appelsínu marmelaði Chutney, margar gerðir Ávaxtasultur Annað góðgæti Áður nú Appelsínumarmelaði 795,- 595,- Ávaxtasultur 895,- 670,- Fudge 695,- 520,- Relish/chutney 795,- 595,- Ostastangir 895,- 670,- Teg: 206206 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 40 - 48 Verð: 15.975.- Teg: 206202 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 40 - 48 Verð: 17.885.- Teg: 204203 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Litir: cognac og svart. Stærðir: 40 - 47 Verð: 16.750.- Teg: 206201 Vandaðir og þægilegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 39 - 48 Verð: 15.975.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. Sendum um allt land www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar GYÐU JÓHANNSDÓTTUR Guðnýjar frá Siglufirði, síðast til heimilis á Brúnavegi 19, Reykjavík. . Valtýr Sigurðsson, Sigríður Hjaltested, Jóhann Ág. Sigurðsson, Linn Getz, börn, barnabörn og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og mágs, JÓNASAR JÓHANNSSONAR, Suðurhólum 24, Reykjavík. . Kristín Jóhannsdóttir, Böðvar Þorvaldsson, Guðjón Jóhannsson, Hrefna Bjarnadóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Ingólfur Karlsson. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför INGÓLFS JÓNSSONAR, Trönuhólum 16, Reykjavík. Ingibjörg Björgvinsdóttir, Óli Baldur Ingólfsson, Vigdís Ástríður Jónsdóttir, Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir, Bragi Halldórsson, Bjargey Þrúður Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA FRIÐRIKSDÓTTIR, lést föstudaginn 30. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. . Guðrún H. Arnljótsdóttir, Guðmundur B. Valdimarsson, Arna Íris Vilhjálmsdóttir, Guðjón Gunnarsson og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN HALLDÓRSSON sægreifi, lést á Borgarspítalanum sunnudaginn 8. febrúar. Útför hans verður frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. febrúar kl. 13. . Jóhann Sævar Kjartansson, Jóhanna Ósk Breiðdal, Halldór Páll Kjartansson, Elín Birna Bjarnfinnsdóttir, Elís Már Kjartansson, Unnur Lilja Aradóttir, barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR LÁRUSAR JÓHANNSSONAR, Grænumörk 1, Selfossi. Arnbjörg Þórðardóttir, Helga Þórdís Guðmundsdóttir, Vigfús Guðmundsson, Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir,Sigurdór Már Stefánsson, Jóhann Björn Guðmundsson, Anna Þóra Guðmundsdóttir, Hermann V. Baldursson, Lárus Arnar Guðmundsson, Íris Ellertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.