Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2010, Side 3

Bókasafnið - 01.06.2010, Side 3
bókasafnið 34. árg. 2010 Landskerfi bókasafna hf. www.landskerfi.is gegnir.is er vefviðmót bókasafnskerfis sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. Í samskránni eru einkum bækur, tímarit, tímaritsgreinar, tónlistarefni og myndefni. Allar prentaðar íslenskar bækur og íslensk tímarit eru skráð í gegnir.is. Kerfið veitir aðgang að upplýsingum um safnkost flestra bókasafna landsins, auk þess sem margvísleg þjónusta er í boði fyrir notendur. Efnisy rlit 4 Einar G. Pétursson Ritdómur. Willard Fiske, vinur Íslands og velgjörðamaður 6 Sigrún Klara Hannesdóttir Þurfti að finna eigin lausnir á öllum vandamálum í safninu. Viðtal við Guðrúnu Gísladóttur 10 Halldóra Jónsdóttir Bókasafn Akraness í nýtt húsnæði 14 Guðrún Jónsdóttir og Sævar Ingi Jónsson Í minningu bókvinar 17 Edda Bryndís Ármannsdóttir „Geturðu bent mér á góða bók?“ Um ráðgjafaþjónustu við fullorðna lesendur skáldsagna 23 Þórdís T. Þórarinsdóttir Dewey-flokkunarkerfið og notkun þess á Íslandi 31 Arngrímur Vídalín Við Prinsessugötu 32 Kristín Bragadóttir, Áslaug Agnarsdóttir og Þorsteinn Hallgrímsson Vefir á vegum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns 36 Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. 1. desember 1994-2009 – 15 ára afmæli Frá ritstjóra Í þessu hefti Bókasafnsins gerumst við svolítið sjálfhverf og birtum grein um tímaritið sjálft sem hóf göngu sína árið 1974. En efnið er annars fj ölbreytt allt frá ljóðum til langra greina. Lengst er ítarleg grein um Dewey-fl okkunarkerfi ð og notkun þess á Íslandi. Það var fyrst kynnt í blaðagrein árið 1899, tuttuguogþremur árum eftir að það var fyrst birt á prenti í Bandaríkjunum. Það er nú notað í fl estum bókasöfnum hér á landi og greinarhöfundur gerir ekki ráð fyrir að á því verði breyting í bráð. Í síðasta hefti var einnig fj allað um fl okkunarkerfi , en þá í víðara samhengi og horft til nýlegra kenninga þar að lútandi, meðal annars út frá tæknilegri og samfélagslegri þróun á sviði bókasafna og upplýsingamála. Breyttir tímar eru borgarbókaverði ofarlega í huga á níræðisafmæli Borgarbókasafns Reykjavíkur, spurningar vakna til dæmis um hversu stór útlánsþátturinn verður í störfum almenningsbókasafna í framtíðinni. Störfi n á bókasöfnunum breytast, þau sinna í æ ríkari mæli ýmis konar menningarlegri starfsemi auk bókaútlána, eins og kemur fram í grein um fj ölmenningarlegt starf á Borgarbókasafni. Þessar vangaveltur kallast líka á við aðra grein um ráðgjafaþjónustu við fullorðna lesendur skáldsagna. Það efni sem bókasöfnin geyma og miðla færist æ meir í rafrænan búning, rafbækur eru þegar komnar til sögunnar og vefþjónusta er orðinn mikilvægur þáttur í starfsemi bókasafna eins og fram kemur í umfj öllun um vefþjónustu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Mikilvægt er að nýta þann vettvang sem tímaritið Bókasafnið er til að fj alla um starfsemi bókasafna og upplýsingaþjónustu á breyttum tímum. En við megum ekki verða svo ölvuð af nýjum möguleikum tækninnar og glæstri framtíðarsýn að við gleymum fortíðinni, án traustrar undirstöðu hrynur allt, – um það þarf vart að fj ölyrða. Okkur er því hollt að lesa viðtal við elsta núlifandi bókasafnsfræðinginn hér, Guðrúnu Gísladóttur, og grein um bókavörðinn, bókasafnarann og náttúruunnandann Pál Jónsson. Hið merkilega bókasafn hans er nú að fi nna í Héraðsbókasafni Borgarfj arðar. Og þá erum við komin á Vesturland þar sem Bókasafn Akraness er komið í nýtt húsnæði ásamt Héraðsskjalasafni og Ljósmyndasafni Akraness. Bókasafn Akraness átti líka 145 ára afmæli í nóvember 2009, þannig að Borgarbókasafnið er unglingur hjá því. Á Vesturlandi eru ýmsar vöggur íslenskra bókasafna og bókmenningar. Upplýsing ætti því að vera vel sett þar með landsfund sinn 2010, en hann verður haldinn í Stykkishólmi dagana 17. - 18. september. Vonandi sjáumst við þar sem fl est. Einar Ólafsson Útgefandi: Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræða Lyngási 18 | 210 Garðabæ | Sími 864-6220 | Netfang: upplysing@upplysing.is Veff ang: www.upplysing.is Prentun: GuðjónÓ – vistvæn prentsmiðja Veff ang: www.bokasafnid.is Mynd á kápu er hluti listaverksins Tölum saman, sem meðlimir Söguhringsins unnu í sameiningu undir handleiðslu listakvennanna Fitore Berisha og Helgu Arnalds. Verkið er í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi í Reykjavík og má sjá það í heild á ljósmynd á bls. 50. Bókasafnið • 34. árgangur júní 2010 • ISSN 0257-6775 39 Sigrún Hauksdóttir og Hildur Gunnlaugsdóttir Hjartað í Gegni. Nokkrar tölur úr bókfræðigrunni 44 Eva Sóley Sigurðardóttir Tímaritið Bókasafnið 47 Arngrímur Vídalín Gíraffinn er á stultum 48 Anna Torfadóttir Borgarbókasafn Reykjavíkur. Hvað næst? 49 Kristín R. Vilhjámsdóttir Fljúgandi teppi og önnur fjölmenningarleg ævintýri á Borgarbókasafni 52 Úlfhildur Dagsdóttir Líf og fjör í myndasögulandi 53 Cesar Vallejo Enginn býr núna í húsinu 54 Bækur og líf 58 Afgreiðslutími safna 62 Höfundar efnis Ritnefnd: Einar Ólafsson, ritstjóri – bokasafnid.timarit@gmail.com Kristín Ingunnardóttir, gjaldkeri – kingunnar@gmail.com Sigurborg B. Ólafsdóttir, ritari – sigurborg@internet.is Hallfríður Hr. Kristjánsdóttir, vefstjóri – hhk1@bok.hi.is Áslaug Óttarsdóttir – aslaugo@hi.is Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í Library & Information Science Abstracts (LISA)

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.