Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Blaðsíða 65

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Blaðsíða 65
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 2015 65 ÓLAFUR PÁLL JÓNSSON V LÝÐRÆÐI OG KENNIVALD En hvað kemur þetta lýðræði við? Snýst lýðræði ekki um stjórnskipulag, um það hvernig hópur fólks tekur sameiginlegar ákvarðanir? Vissulega varðar lýðræði stjórn- skipulag og sameiginlegar bindandi ákvarðanir, en þar með er ekki öll sagan sögð. Lýðræði í skóla varðar ekki fyrst og fremst skipulag og formleg ferli. Stjórn skóla er sérfræðiverkefni og þótt raddir nemenda þurfi vissulega að heyrast þar verður hún ekki gerð að sameiginlegu viðfangsefni alls skólasamfélagsins. Stjórnskipulag skóla er ekki lýðræðislegt, en starfshættir skóla geta eftir sem áður verið lýðræðislegir með ýmsum hætti. Að því marki sem skóli er lýðræðislegur er hann það vegna þess hvern- ig lífið í skólanum er. Að þessu leyti er lýðræði í skóla algjörlega sambærilegt við lýð- ræði í hinu víðara samfélagi. Og þess vegna verður skóli ekki lýðræðislegur nema hversdagslegir starfshættir skólans séu lýðræðislegir; daglegt samstarf nemenda og kennara, bæði í hinu smæsta og í hinu stærsta, verður að vera lýðræðislegt ef skólinn sem heild á að vera lýðræðislegur. Flestar hugmyndir um lýðræði í samfélagi gera ráð fyrir því að allir séu með, ekki bara efnislega heldur líka vitsmunalega og siðferðilega (Young, 2002). En hvað þýðir það að vera siðferðilega með í samfélagi? Hvenær sem við tölum um að einhver sé með – eða að einhver sé útilokaður, ef við skyldum heldur vilja huga að andhverfu þess að vera með – þá getum við spurt: Hvernig? Í hvaða skilningi? Af hvaða getu? Lægsta stig þess að vera með er að fá að vera efnislega viðstaddur. Hér skiptir geta manns eða getuleysi litlu máli, það nægir að vera á staðnum, t.d. í skólanum. Þátttaka sem felur í sér að maður fái að láta skoðanir sínar í ljósi er margfalt ríkulegri, enda gerir slík þátttaka bæði ráð fyrir því að maður hafi skoðanir og getu til að láta þær í ljósi. Þess vegna er það líka lykilatriði í mörgum kenningum um lýðræði að fólk fái að tjá skoðanir sínar (Dahl, 1989). En það er ekki nóg að fá að tjá skoðanir sínar, ef enginn er til að hlusta. Leikskólakennarar þekkja þetta vel, enda byggist það framsækna starf sem unnið er í íslenskum leikskólum ekki síst á því að fagfólkið sem þar vinnur hefur gert það að grundvelli starfs síns að hlusta á börnin (Jóhanna Einarsdóttir og Bryndís Garðarsdóttir, 2008, 2012). Og þótt margt sé vel gert á efri skólastigum (Jóhanna Karls- dóttir og Hafdís Guðjónsdóttir, 2010) þá einkennast þau ár of mikið af því að kennar- arnir leggja áherslu á að nemendur hlusti, en gleyma sjálfir að hlusta á nemendurna (Gerður G. Óskarsdóttir, 2014). Hversu mikilvægt sem það er að hlustað sé á mann, þá er það samt ekki nóg til að maður sé fullgildur þátttakandi í samfélagi. Það þarf líka að taka mark á því sem maður segir. Það er fyrst þá sem segja má að maður fái að vera með sem siðferðilegur gerandi og þar með fullgildur þátttakandi í samfélagi. Að taka mark á einhverjum er ekki það sama og að vera sammála honum; nemandi þarf ekki að vera sammála kennara þótt hann bæði hlusti og taki mark á honum. Kannski er einmitt mikilvægasti eiginleiki hins lýðræðislega borgara sá að hann getur tekið mark á annarri manneskju en samt sem áður verið ósammála henni. Í lýðræðislegum skóla er margbreytileikinn ekki galli eða hnökrar heldur þvert á móti auður – í honum búa lærdómstækifæri. John Dewey orðar þetta ágætlega þegar hann segir:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.