Fréttatíminn - 10.10.2014, Qupperneq 22
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Engin
lántökugjöld
Lánshlutfall
allt að 80%
Engin
lántökugjöld
Allt að 7 ára
lánstími
Landsbankinn býður betri kjör. Í október greiða
einstaklingar engin lántökugjöld af bílafjármögnun.
Kynntu þér allt um bílalán á landsbankinn.is/bilalan.
Y
oko Ono tendraði Friðarsúluna í Viðey í
áttunda skipti í gærkvöldi að viðstöddu
fjölmenni. „Ég minnist mannsins míns,
John Lennon, þegar ég kem hingað
og kveiki á súlunni. Mér finnst gott
að gera þetta fyrir hann, og ekki bara hann heldur
alla aðdáendur hans,“ segir hún. Friðarsúlan, sem á
ensku nefnist The Imagine Peace Tower, er útilista-
verk sem Yoko Ono vann til minningar um eigin-
mann sinn John Lennon en Friðarsúlan er einskonar
tákn fyrir baráttu hjónanna fyrir heimsfriði, baráttu
sem hófst snemma á 7. áratug síðustu aldar.
Vinsæl á Twitter
Yoko Ono hefur haldið friðarboðskapnum hátt á lofti
og er meðal annars afar virk á samfélagsmiðlunum.
Hún og hennar aðstoðarfólk halda úti vefsíðunni
ImaginePeace.com þar sem stór mynd af Viðey og
Friðarsúlunni er það fyrsta sem mætir lesendum.
Yoko Ono er á Facebook, myndasíðunni Instagram
og á Twitter er hún með hvorki meira né minna en
4,7 milljón fylgjendur sem þar lesa um friðarboðskap
hennar. Hún segir það alls ekki taka mikinn tíma að
sinna friðarunnendum á öllum þessum miðlum. „Mér
finnst svo dýrmætt að geta spjallað við fólk á þennan
hátt og jafnvel mynda vinskap. Það er einstakt að ná
til fólks um allan heim á þennan hátt,“ segir hún. Auk
þess tekur hún vikulega við spurningum frá fylgjend-
um en aðstoðarfólk hennar velur úr um 20 spurning-
ar í hverri viku, en jafnt er spurt um samband hennar
og John Lennon, hvernig hún heldur sér hraustri
orðin 81 árs gömul, eða hún jafnvel beðin um að færa
hjónum nokkur vísdómsorð á brúðkaupsafmælum.
Sameinumst í friði
Hún er afar stolt af Friðarsúlunni og dáist mikið af
fegurð hennar. Hún segir að upphaflega hafi fólk
erlendis ekki alveg áttað sig á því um hvað listaverkið
snerist en nú hafi hróður þess farið um allt. „Nú vita
allir hvað Friðarsúlan er og hver þýðing hennar er.
Hún er sameiningartákn og gerir fólki líka kleift að
koma saman í huganum þegar hugsað er um frið.“
Yoko Ono segir að hver og einn geti lagt baráttunni
fyrir heimsfriði lið á sinn hátt. Í hinu daglega lífi
reynir hún að leggja sitt á mörkum með því að vera
góð við fólk og sýna öðrum skilning.
Ár hvert er Friðarsúlan tendruð tveimur tímum
eftir sólsetur á afmælisdegi John Lennon heitins, 9.
október, og logar hún til og með 8. desember en það
er sá dagur sem John Lennon var skotinn til bana
árið 1980. Hún logar einnig á öðrum völdum tímum,
svo sem á vetrarsólstöðum, á gamlárskvöld, í eina
viku kringum vorjafndægur og á sérstökum tilefnum
sem Yoko Ono og Reykjavíkurborg koma sér saman
um. Friðarsúlan var til að mynda tendruð í ágúst
síðastliðnum þegar átökin milli Palestínu og Gaza
stóðu sem hæst.
Fer alltaf í Bláa lónið
Þeim hefur fjölgað ár frá ári sem eru viðstaddir
þegar kveikt er á Friðarsúlunni á fæðingarafmæli
John Lennon og kemur fjöldi ferðamanna til að vera
við þessa stund. Sérstakt Óskatré Yoko Ono stendur
þá við súluna og geta gestir þar skrifað óskir sínar,
en í kringum Friðarsúluna eru grafnar óskir hálfrar
milljónar einstaklinga víða að úr heiminum sem Yoko
Ono hefur safnað saman á síðustu áratugum. Áður
en Friðarsúlan var tendruð afhenti hún friðarverð-
launin „Lennon-Ono Grant for Peace“ en meðal
þeirra sem fengu þau var Jón Gnarr, grínisti og fyrr-
verandi borgarstjóri, sem Yoko Ono hefur miklar
mætur á, en meðal þeirra sem hafa fengið verðlaunin
eru Lady GaGa og meðlimir pönksveitarinnar Pussy
Riot.
Yoko Ono er sannkallaður Íslandsvinur og þykir
gott að koma hingað til lands. „Ísland er einstaklega
fallegt land,“ segir hún. „Þegar ég kem hingað byrja
ég alltaf á að hvíla mig aðeins eftir flugið en svo reyni
ég að fara í göngutúra. Í hvert sinn sem ég kem til Ís-
lands fer ég síðan í Bláa lónið. Allt sem ég geri hér er
mjög heilsusamlegt, bæði fyrir líkama og sál.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Dýrmæt tengsl á samfélagsmiðlunum
Yoko Ono
minntist John
Lennons heitins,
eiginmanns síns,
í gær þegar
hún tendraði
Friðarsúluna í
áttunda skipti.
Yoko leggur
sitt af mörkum
daglega til að
auka friðsæld í
heiminum, með
því að vera góð
við fólk og sýna
því skilning.
Hún heldur
baráttunni fyrir
friði á lofti á
samfélagsmiðl-
unum en hún er
með tæplega
5 milljónir
fylgjenda á
Twitter.
Yoko Ono tendraði á Friðarsúlunni í gær á 74
ára fæðingarafmæli John Lennon. Hún hefur
haldið baráttu þeirra hjóna fyrir heimsfriði
ötullega áfram eftir fráfall hans. Ljósmynd/Hari
22 viðtal Helgin 10.-12. október 2014