Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 11. september 2013 Miðvikudagur Orkuveitan varaði eigendur við n Íbúar án rafmagns í þrjá sólarhringa vegna þess að eigendur brugðust ekki við viðvörunum E igendur verslunarhúsnæðis í Hamraborg 7 fengu að vita um yfirvofandi lokun á hita og rafmagn með hálfs mánaðar fyrirvara. Þrátt fyrir það virðist sem þeir hafi ekki brugðist við, né heldur látið íbúa húsnæðisins vita. DV fjall- aði á mánudaginn um íbúa í húsinu sem urðu fyrir því að rafmagn og hiti var tekinn af húsnæðinu. Ástæð- an var sú að eigendur húsnæðisins höfðu ekki staðið í skilum gagnvart Orkuveitunni. Rúmlega 70 manns búa í húsinu, meðal annarra hjón með vikugamalt barn. Þau urðu eins og gefur að skilja fyrir miklum óþægindum vegna málsins. Félagið sem á húsið heitir Umboðsverslun- in Vista ehf. en Róbert Þór Sighvats- son, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, er einn eigenda. „Lokunum er einungis beitt þegar vanskil eru orðin veruleg, ítrekað hefur verið gengið eftir greiðslu og önnur úrræði hafa reynst árangurs- laus,“ segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykja- víkur, í skriflegu svari við spurningu DV. Hjálmar vísar á eigendur hús- næðisins og segir ábyrgðina vera þeirra: „Það er á ábyrgð húseiganda að réttur aðili sé skráður fyrir orku- notkun og að leigjendur hans verði ekki fyrir óþægindum vegna van- skila.“ Þá segir hann að áður en til slíkr- ar lokunar komi sé skráðum notanda tilkynnt með 14 daga fyrirvara bréf- lega um yfirvofandi lokun. „Og síð- an er ítrekað reynt að hafa samband við hann símleiðis áður en til lokun- ar kemur. Skráður notandi hefur því góðan tíma til að hafa samband við Orkuveituna og semja um greiðslur. Einungis er lokað fyrir afhendingu ef viðskiptavinur hefur ekki samband við fyrirtækið og semur um greiðslu eða ekki næst í hann.“ Orkuveitan kannar ekki sér- staklega aldur eða stöðu íbúa í þeim húsum þar sem á að loka fyr- ir afhendingu, segir í svari Hjálm- ars. n jonbjarki@dv.is „Við erum á kúpunni“ n Kreppa ríkir á veiðileyfamarkaði n Ekki lengur litið á Ísland sem laxveiðiparadís M ikill samdráttur hefur ver- ið í sölu á laxveiðileyfum síðastliðin ár og er vax- andi óróleiki meðal veiði- leyfissala vegna hás verð- lags. Að nokkru leyti má rekja hátt verðlag til tregðu bænda til að laga verð á leigu áa að nýjum aðstæðum. Árið 2012 var verð veiðileyfa, miðað við vísitölu, í sögulegu hámarki og auk þess varð hrun í laxveiði. Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur, segir að þegar slíkt hámark í verði kemur í skallann á slíkum aflabresti hljóti eitthvað að gefa eftir. Íslenskir veiðimenn fara frekar til Spánar Segja má að góð veiði í sumar hafi bjargaði Stangaveiðifélagi Reykja- víkur frá gjaldþroti. „Við erum ekki gjaldþrota, en við erum á kúpunni,“ segir Bjarni Júlíusson. Að sögn hans er helsta ástæðan fyrir slæmri fjár- hagsstöðu félagsins sú að bænd- ur rukki of mikið fyrir leigu á ám. Hann segir að krafa bænda um háa leigu skili sér beint út í verð á veiði- leyfum. „Það er ekki hægt að selja ís- lenskum veiðimönnum veiðileyfi á þessu verði.“ Eftir hækkanir í fyrra og hitteðfyrra hafi erlendum veiði- mönnum fækkað. Samhliða hafi Ís- lendingar nær alveg hætt að kaupa leyfi. „Verð á veiðileyfum er orðið það hátt að fólk er farið að íhuga aðra afþreyingarkosti. Veiðimenn segja bara: Nei takk, ég er farinn til Spánar í hálfan mánuð fyrir sama pening og það kostaði að fara í þrjá daga í Norðurá eða Miðfjarðará,“ segir Bjarni. Veiðileyfasalar og landeigendur verða að finna lausn Fjárhagsvandamál tengd verði veiði- leyfa virðast ekki vera einungis bund- in við Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Svört skýrsla sem Landssamband stangaveiðifélaga gaf út í maí sýn- ir að staða stangaveiða á Íslandi er grafalvarleg. Þar segir meðal annars að áhugi ferðamanna á Íslandi sem laxveiðiparadís hafi minnkað og að þrjátíu prósenta samdráttur í sölu veiðileyfa sé staðreynd. Í skýrsl- unni segir að ögurstund markaðsins sé runnin upp og því verði veiði- leyfasalar og landeigendur að setjast niður og finna lausn. Til að leiðrétta ástandið er sagt í skýrslunni að þörf sé á að lækka verð á veiðileyfum um allt að tuttugu prósent á besta veiði- tíma, um mitt sumar. „Verðlagning veiðileyfa hefur farið tugi prósenta fram úr almennu verðlagi síðastliðin ár. Það hefur ekkert gengið til baka til að jafnast á við almennt verðlag,“ segir Árni Þór Sigurðsson, stjórn- armaður í Landssambandi stanga- veiðifélaga. Erlendum veiðimönnum fækkar Ekki nóg með að hrun hafi orðið í sölu veiðileyfa til íslenskra veiðimanna heldur hefur erlendum stangveiði- mönnum fækkað umtalsvert. Í skýr- slu Landssamband stangaveiðifélaga kemur fram að samdráttur í sölu til Hjálmar Friðriksson blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is „Það er ekki hægt að selja íslenskum veiðimönnum veiðileyfi á þessu verði Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur Bjarni Júlíusson segir félagið ekki vera gjaldþrota en að róðurinn hafi verið erfiður síðastliðin misseri, sér í lagi vegna kröfu land- eigenda um háa leigu. Flutt út fyrir 269 milljarða Árið 2012 voru fluttar út sjávar- afurðir að verðmæti 269 millj- arða króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 6,8 prósent og í magni um 11,3 prósent. Þetta kemur fram á vef LÍÚ en þar kem- ur fram að eins og svo oft áður sé verðmæti þorsks langmest, eða um 83 milljarðar króna. „Þar næst koma uppsjávartegundir eins og loðna, síld og makríll en hlutur uppsjávartegunda var um 29% eða um 77,8 milljarðar króna,“ segir í frétt LÍÚ. 400 plöntur haldlagðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kanna- bisræktun í húsi á Kjalarnesi fyrir helgina. Við húsleit á áðurnefnd- um stað var lagt hald á um 400 kannabisplöntur, en karl og kona á þrítugsaldri voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Í framhaldinu var framkvæmd leit í híbýlum sem fólkið hefur einnig yfir að ráða annars staðar á höfuðborgarsvæð- inu. Þar var lagt hald á nokkrar kannabisplöntur til viðbótar, auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum. Í tilkynningu minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og toll- yfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Rannsaka meint samráð Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Eimskipafélagi Íslands hf., Samskipum hf. og tilteknum dótturfélögum þessara fyrirtækja á þriðjudag. Í tilkynningu sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér kemur fram að aðgerðirnar séu liður í rannsókn sem ætlað er að varpa ljósi á hvort vísbendingar um ólögmætt samráð fyrirtækj- anna og hugsanlega misnotkun á markaðsráðandi stöðu eigi við rök að styðjast. Til húsleitanna var aflað úr- skurða frá héraðsdómi Reykja- víkur. Síðdegis á þriðjudag gat Samkeppniseftirlitið ekki gefið frek- ari upplýsingar um rannsóknina. Voru varaðir við Eigendur hússins voru varaðir við því að rafmagn og hiti yrði tekinn af húsinu ef þeir greiddu ekki skuld við Orkuveituna. Íbúar vissu hins vegar ekkert. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.