Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 11
„Vítahringur Vitleysunnar“ Fréttir 11Miðvikudagur 11. september 2013 V ið erum í vítahring vegna þess að fólk eykur vinnu- tímann af því að grunn- kaupið er lágt en langur vinnutími tengist alls staðar lélegri framleiðni. Svo koma menn og segja: Kaupið verður að vera svo lágt af því að framleiðnin er svo lítil. Þannig að þetta er svona vítahringur vitleysunnar í raun og veru.“ Þetta segir Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, í samtali við DV. Gögn frá Eurostat og Hagstofu Íslands sýna að kaupmáttur tímakaups á Íslandi var um 82 prósent af meðaltali ESB- ríkja á árinu 2010, og langt fyrir neðan þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Með kaupmætti tímakaups er átt við hversu mikið af vörum og þjónustu fólk getur keypt fyrir hverja unna klukkustund. Landið er í 20. sæti á lista Eurostat yfir kaupmátt tímakaups í löndum Evrópu og skipar sér á sess með löndum eins og Möltu og Slóveníu. Írland, Danmörk, Sviss og Noregur tróna á toppi listans með hæsta tímakaupið. Stefán fjall- aði nýlega um þessar tölur á heima- síðu sinni og benti á að Ísland væri óeðlilega mikið láglaunaland, mið- að við ríkidæmi þjóðarinnar: „Við vinnum um átta klukkustundum lengur en Norðmenn á viku hverri. Það er einn virkur dagur sem við erum lengur í vinnu en Norðmenn – á hverri viku. Einn heill dagur! Það er mikill munur á lífskjörum.“ Mikil yfirvinna Stefán segir Íslendinga bæta stöðu sína svolítið með því að vinna langan vinnutíma og mikla aukavinnu. Þá sé algengara að hér á landi séu tvær fyrirvinnur á hverju heimili. „Þannig að með auknu vinnumagni nær fólk að bæta sér tekjurnar aðeins upp fyrir þetta, án þess þó að það sé neitt viðunandi.“ Hann segir þetta lélega „stragetíu“. „Hún þýðir að það er mikið álag á fjölskyldur, ekki síst barnafjöl- skyldur. Hún þýðir líka lítil lífsgæði vegna þess að frítíminn er auðvitað líka lífsgæðaþáttur. Og í þriðja lagi þýðir þetta það að framleiðnin verður mjög lítil.“ Hann segir kaupmátt tíma- kaupsins hafa hrapað mikið við hrunið. „Við hröpuðum náttúrulega niður í kaupmætti þegar krónan hrundi á árinu 2008. Þannig að hér varð kaupmáttarskerðing á þess- um krepputíma sem var meiri en annars staðar í Evrópu og við sitjum dálítið í súpunni með það.“ Hann segir kaupmáttinn hafa aukist svo- lítið frá hruni og nefnir árið 2011 sérstaklega í því samhengi. Hins vegar hafi ekki verið mikil kaup- máttaraukning árið 2012 og það sem af er árinu 2013. „Frá mínum bæjardyrum séð er afskaplega mik- ilvægt fyrir okkur að komast áfram og upp úr þessu kreppu ástandi.“ Kaupmáttur stendur í stað Í ljósi þessara talna fæst ekki betur séð en Ísland sé langt á eftir Norður- löndunum þegar kemur að kaup- mætti. Stefán segir þó mikilvægt að við berum okkur ennþá saman við þessi nágrannaríki okkar. Séum við ekki samkeppnishæf við Norður- löndin, sé næsta víst að fólk muni einfaldlega flytja frá Íslandi og setjast að í nágranna ríkjunum. „Þá missum við bara fólk í stórum stíl þangað. Við sjáum hvernig það hefur verið að gerast með heilbrigðis starfsfólk og iðnaðarmenn í miklum mæli. Þeir fara til Noregs, til dæmis í hlutastörf, og menn ná inn íslenskum mánað- arlaunum á tíu dögum.“ Hann segir það ekki mega gerast að hér á landi verði viðvarandi lág- launastefna. „Það er ekki bara slæmt fyrir heimilin hefur líka atvinnulífið. Vegna þess að þá verður eftirspurn eftir vöru og þjónustu sem fram- leidd er á Íslandi allt of lítil og það kemur bara niður á hagvextinum.“ Hann segir nauðsynlegt að kaupið hækki og nefnir árið 2011 aftur sem dæmi, en þá var kaupmáttaraukn- ingin fjögur prósent þar sem kaup hækkaði umfram verðlag. Þróunin hafi hins vegar ekki verið nógu góð eftir það, en það sem af er ári hef- ur kaupmáttur svo gott sem staðið í stað. Stytting vinnudagsins „Kauphækkunin gefur örvun í hag- vöxtinn sem kemur heimilunum vel, sem kemur fyrirtækjunum vel.“ Stef- án segir að fara þurfi í mjög harka- lega baráttu gegn verðhækkun- um samhliða þessu. „Ef við ætlum að hækka kaupmáttinn er alltaf sú hætta að atvinnurekendur fleyti kauphækkunum beint út í verð- lagið og verðbólgan éti þetta upp.“ Þess vegna þurfi hagsmunasamtök, stjórnvöld og atvinnurekendur að beita miklu aðhaldi úr öllum áttum eins og gert var í kjölfar þjóðarsátt- arinnar 1990. Þá segir Stefán að fara þurfi í átak til þess að auka framleiðni í landinu. „Við þurfum að reyna að stytta vinnutímann, setja yfirvinnukaup- ið inn í grunnlaunin og ná sömu af- köstum á 40 tímum og við erum í dag að ná á 45 tímum. Það nýtist öll- um betur, léttir álagi af heimilunum og gerir atvinnureksturinn líka hag- kvæmari.“ Menn geti vel náð meiri afköstum á styttri tíma, en það spari bæði tíma og kostnað. Hann segir þetta vera vítahring sem tími sé kominn til að brjótast út úr. „Þegar kemur að kjarasamningum í haust verðum við búin að sitja í gegnum tvö ár þar sem er eiginlega engin kaupmáttaraukning og það er ekki bjóðandi fólki.“ n n Kaupmáttur miðað við tímakaup á Íslandi svipaður og í Slóveníu og á Möltu Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Ný þjóðarsátt Stefán Ólafsson segir að hagsmunasamtök, stjórnvöld og atvinnu- rekendur þurfi nú að beita miklu aðhaldi úr öllum áttum eins og gert var í kjölfar þjóðar- sáttarinnar 1990. Írl an d D an m ör k Sv is s N or eg ur Lú xe m bo rg Br et la nd Be lg ía Þý sk al an d H ol la nd Fi nn la nd Sv íþ jó ð M .ta l e vr ul an da Fr ak kl an d Ít al ía M .ta l E SB Ký pu r Au st ur rík i Sp án n M al ta Ís la nd Sl óv en ía Kr óa tía Po rt úg al Pó lla nd Té kk la nd M ak ed ón ía U ng ve rja la nd Ei st la nd Ty rk la nd Sl óv ak ía Le tt la nd Li th áe n Rú m en ía Bú lg ar ía Tímakaup í Evrópu árið 2010 Frávik frá meðaltali ESB ríkja (100), í evrum á jafnvirðisgildi (PPP) 144 142 139 138 132 124 122 116 114 110 104 104 104 100 100 98 96 89 83 82 79 67 67 62 54 53 53 51 51 51 43 42 37 33 „Við þurfum að reyna að stytta vinnutím- ann …

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.