Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2013, Blaðsíða 12
12 Fréttir 11. september 2013 Miðvikudagur Loksins laus úr haldi n Var dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að senda tölvupóst með viðkvæmum upplýsingum K ínversku ljóðskáldi og blaða- manni, Shi Tao að nafni, hefur verið sleppt úr fangelsi eftir að hafa afplánað rúm átta ár af tíu ára dómi sem hann fékk árið 2005. Tao var dæmdur fyrir að senda leynilegar pólitískar upplýs- ingar í tölvupósti til erlendra aðila. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma enda sendi Tao upplýsingar í gegnum netfang sem hann hafði hjá netrisanum Yahoo. Yahoo veitti kínverskum yfirvöldum aðgang að pósthólfi Tao og var hann hand- tekinn í kjölfarið. Shi Tao var með- al annars sakaður um að hafa dreift upplýsingum frá kínverskum yfir- völdum þar sem blaðamenn voru hvattir til að fjalla ekki um að fimmt- án ár væru liðin frá mótmælun- um á Tiananmen-torgi, Torgi hins himneska friðar, árið 1989 þar sem hundruð létu lífið. Breska blaðið The Guardian hefur eftir mannréttindasamtökum í Kína að honum hafi verið sleppt þann 23. ágúst síðastliðinn, eða 15 mánuð- um áður en hann átti að ljúka afplán- un. Ekki liggur fyrir hvers vegna hon- um var sleppt úr haldi fyrr en áætlað var. Shi, sem er 45 ára, afplánaði dóm sinn í borginni Yinchuan og eftir að honum var sleppt flutti hann heim til móður sinnar. Málið átti eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Yahoo og bað forstjóri fyrir- tækisins, Jerry Yang, fjölskyldu Shi afsökunar árið 2007. Þá höfðu mann- réttindasamtök gagnrýnt fyrirtækið harðlega fyrir að veita kínverskum yfir völdum aðgang að pósthólfi Shi. n einar@dv.is Baðar líkið í vodka Georgísk móðir, Tsiuri Kvaratskhelia, missti 22 ára son sinn fyrir 18 árum, að því er Huffington Post greinir frá á vef- síðu sinni. Harmur hennar var slíkur að hún gat ekki hugsað sér að láta grafa hann í jörðu, eins og tíðkast. Hún greip til sinna ráða. Hún keypti kistu undir líkið og kom látnum syni sínum þar fyrir. Kistan er með glugga. Dag og nótt bleytir konan klúta og leggur yfir líkið, til að tefja rotnun. Til verks- ins notar hún vodka. „Ég geri þetta til að sonur hans sjái hvernig pabbi hans leit út,“ segir Kvaratskhelia sem býr væntanlega ekki svo vel að eiga myndavél. Fyrst um sinn notaði hún hefðbundin smyrsl til verksins, eða þar til hana fór að dreyma. „Mér var sagt í draumi að byrja að nota áfengi til að bera á hann,“ er haft eftir konunni. Hún segir þó að skipta verði ört um klúta, að öðrum kosti verði líkið svart. Ekki fylgir sögunni hvort hún bruggi sjálf. Svíndrukkinn göltur Ástralskt villisvín komst heldur betur í hann krappan á dögunum, þegar það komst yfir 18 bjórdósir af ungu fólki í útilegu. The Mirror greinir frá því að það hafi hagað sér heldur svínslega umrætt kvöld. Það hafi, eftir að hafa drukkið stærstan hluta bjórsins, ráð- ist á kú sem hafði ekkert til saka unnið. ABC hefur eftir sjónarvott- um að svínið hafi, nokkru eftir að hafa dregið bjórinn í burtu, sést á harðahlaupum undan kúnni – sem kunni ekki að meta áreitið. Svínið hafi síðan, í örvæntingu sinni og eftir nokkurn eltingaleik, stungið sér til sunds til að komast undan. Þegar yfir ána var komið drapst svínið áfengisdauða. Þrátt fyrir nokkra eftirgrennslan hef- ur ekki tekist að finna göltinn - sem hefur væntanlega glímt við þynnku næsta dag. Kærður fyrir nauðgun Einn af varaforsetum neðri deild- ar breska þingsins, Nigel Evans, hefur verið handtekinn í þriðja sinn á þessu ári. Hann var hand- tekinn og færður til yfirheyrslu á þriðjudag en honum er gefið að sök að hafa nauðgað og beitt ung- lingspilta kynferðislegu ofbeldi. Elstu brotin eru frá árinu 2002. Evans hefur hafnað ásökununum, eins og títt er. Sjö hafa lagt fram kæru á hendur honum. Heimsathygli Mál Shi vakti heimsathygli á sínum tíma og var meðferð Yahoo á honum mótmælt víða. Þessi mynd sýnir meðlimi Amnesty International í Þýskalandi. Brenna kirkjur og Banna kristni Í slamistar sem sagðir eru hafa tengsl við al-Kaída náðu völd- um í kristna þorpinu Maaloula í úthjaðri Damaskus, höfuð- borgar Sýrlands, á laugardag. Samkvæmt fréttum Mail Online og Huffington Post höfðu íslamistarn- ir betur í átökum við sýrlenska her- inn. Þá kemur fram í fréttum þessara miðla að íslamistarnir hafi brennt kirkjur og hótað kristnum íbúum þorpsins að ef þeir snerust ekki til ís- lamstrúar yrðu þeir hálshöggnir. Ríkisreknir fjölmiðlar í Sýrlandi halda því fram að sýrlenski her- inn hafi ennþá stjórnina í þorpinu. Maaloula er fornt fjallaþorp með ríka sögu en þar tala íbúarnir ennþá hið sögulega tungumál – aramísku – Jesús og lærisveinar hans töluðu það tungumál. Málið hefur vakið upp spurningar um það hversu stór hluti uppreisnarmanna í Sýrlandi sé heit- trúaður og hafi allt aðra framtíðar- sýn en það frelsi sem margir íbúar Sýrlands þrá. CIA þjálfar uppreisnarmenn „Hvar er Obama forseti, ætlar hann ekki að verða vitni að því sem við erum að verða fyrir?“ sagði einn kristinn íbúi Maaloula í samtali við Mail Online. Hann lýsti því hvernig íslömsku uppreisnarmennirnir réð- ust inn á kristin heimili og tóku yfir kirkjur í kjölfar þess að þeir tóku yfir þorpið. „Þeir skutu og drápu fólk. Ég heyrði byssuhljóð og síðan sá ég þrjú lík liggja á miðri götunni í gamla bænum í þorpinu.“ Málið vekur athygli, sérstaklega í ljósi þess að leyniþjónusta Banda- ríkjanna (CIA) hefur síðustu ár stutt við uppreisnarmenn með þjálfun og vopnum. Íbúar þorpsins segjast hafa heyrt í mönnum á meðal uppreisn- armanna sem voru af erlendu bergi brotnir, en talið er að þeir tengist al- þjóðlegum hryðjuverkasamtökum. Í nýlegri frétt Telegraph kemur fram að CIA hafi þegar þjálfað fjölda upp- reisnarmanna og veitt þeim vopna- búnað. Ótti við að sagan endurtaki sig Æ fleiri vestræn ríki eru hikandi við að styðja uppreisnarmenn með vopnum vegna tengsla sumra þeirra við al-Kaída og önnur sam- tök. Þá minnast margir þess með óhug þegar CIA þjálfaði og vopn- væddi Mujahideen-skæruliða á tí- unda áratugnum til þess að berjast gegn Sovét mönnum. Sumir skæru- liðanna, Osama Bin Laden þar á meðal, notuðu þekkingu sína og færni síðar meir til þess að kúga þjóð sína þegar ógnarstjórn talíbana tók við þar í landi. Margir hafa áhyggjur af því að sagan gæti endurtekið sig, og að í kjölfar falls Sýrlandsstjórnar gæti tekið við ógnarstjórn íslamista sem engu myndi þyrma. Obama hefur síðustu vikur reynt að fá stuðning alþjóðasamfélagins til þess að gera loftárásir á Sýrland. Hann segir bandarísk stjórnvöld búa yfir gögnum sem sanni að efna- vopnaárás sem gerð vera í landinu í síðasta mánuði hafi verið á ábyrgð sýrlenskra stjórnvalda. Slík gögn hafa þó ekki komið fram í dagsljósið en margir minnast þess þegar ráðist var á Írak á forsendum byggðum á gögn- um CIA, sem síðar reyndust fölsk. Kveiktu í kirkjum Rami Abdul-Rahman, yfirmaður mannréttindasamtaka í Sýrlandi, sagði í samtali við Huffington Post að árásin hefði verið leidd af Jabhat al-Nusra, samtökum sem sögð eru tengjast al-Kaída. Þá sagði hann að um 1.500 uppreisnarmenn væru í Maaloula en að sýrlenski her- inn hefði umkringt þorpið. Kristn- ir íbúar Maaloula eru sagðir dauð- hræddir í frétt Mail Online. Sögðu margir þeirra að uppreisnarmenn hefðu skipað þeim að snúast til ís- lamstrúar eða hafa verra af þegar þeir „frelsuðu“ hið forna þorp. „Ég sá uppreisnarmennina grípa fimm þorpsbúa og hóta þeim og segja: „Annaðhvort snýst þú til íslams- trúar eða við hálshöggvum þig“.“ Þá sagði einn viðmælenda blaðsins frá því að kveikt hefði verði í sögufræg- um kirkjum og þær tæmdar af verð- mætum. Í myndbandi sem birt hefur ver- ið á veraldarvefnum sést yfirmað- ur uppreisnarmanna hrópa í átt að myndavélinni: „Við hreinsuðum Maaloula undan hundum Assads og öllum hans óþokkum.“ Sýrlands- stjórn segist hins vegar vera búin að ná stjórn í þorpinu í kjölfar harðra bardaga við uppreisnarmenn. n Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Íslamistar taka völdin Heittrúaðir íslamistar úr röð­ um uppreisnar­ manna tóku yfir þorpið Maaloula í úthjaðri Damaskus. Styður við uppreisnarmenn Leyni­ þjónusta Bandaríkjanna hefur síðustu ár stutt við uppreisnarmenn í Sýrlandi með vopnabúnaði og þjálfun. Mynd: ReuteRS n Sýrlenskir uppreisnarmenn þvinguðu kristna íbúa til íslamstrúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.