Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Side 3
H ann fór í smá aðgerð, það var hreinsuð smá stífla hjá honum, og svo voru honum gefin röng lyf,“ segir mað- ur sem fylgdi föður sínum á Landspítalann í síðustu viku þar sem hann fór í einfalda aðgerð. Fað- ir hans þurfti að dvelja eina nótt á spítalanum eftir aðgerðina á deild 12G, sem er skurðlækningadeild sem sinnir meðferð sjúklinga sem fara í aðgerð á neðri hluta meltingarfæra eða á hálsi. „Það er skelfilegt ástandið þarna“ „Hann fékk lyf sem voru ætluð ein- hverjum parkisons-sjúklingi og hann varð ruglaður og vitlaus kallinn og leið hálf illa allan daginn eftir þetta. Það er skelfilegt ástandið þarna. Þau hefðu náttúrulega getað gefið hon- um eitthvað sem hefði getað drepið hann,“ segir maðurinn sem telur að það ófremdarástand sem nú ríkir á Landspítalanum vegna niðurskurðar og manneklu skýri mistökin. Hann segir starfsfólk spítalans þó hafa átt- að sig strax á mistökunum og að all- ir hafi verið miður sín vegna þeirra. DV hafði samband við Elínu Maríu Sigurðardóttur, hjúkrunar- deildarstjóra á deild 12G, sem stað- festi að umrædd mistök hefðu átt sér stað. „Þetta mál er komið í þann fer- il sem svona mál fara í og sem betur fer urðu ekki afleiðingar fyrir sjúk- linginn í þetta sinn.“ 446 lyfjaatvik árið 2011 Mistökin sem urðu við lyfjagjöf mannsins í síðustu viku eru langt frá því að vera einsdæmi á Landspítal- anum, en samkvæmt Ólafi Baldurs- syni, framkvæmdastjóra lækninga, eru skráð lyfjaatvik um 400 á ári. Sem dæmi má taka að árið 2011 voru 446 skráð lyfjaatvik á spítalanum, en það er fjöldi þeirra atburða þegar eitt- hvað fer úrskeiðis við lyfjagjöf. Þó er vert að taka fram að sama ár voru yfir 1,6 milljónir lyfjagjafa á spítalanum. „Þetta er vel þekkt vandamál á spítölum af okkar stærð í heimin- um. Við fylgjum alþjóðlegu verklagi í sambandi við að skrá öll lyfjaatvik, tala um þau strax og fara strax í um- bætur,“ segir Ólafur. Um er að ræða sérstakt verkefni sem snýst um að fækka lyfjaatvikum sem allra mest og útrýma þeim með tímanum. Hann tekur þó fram að of mikið álag og fjárskortur séu vissulega alvarlegar hindranir á þessari leið. Meiri álag, meiri hætta „Þegar það er mikið álag þá er alltaf meiri áhætta á svona atvikum,“ seg- ir Ólafur og vísar til þess ófremdar- ástands sem ríkt hefur á lyflækninga- sviði spítalans síðustu mánuði. „Við höfum sett sérstaka vakt á atvika- skráningar á lyflækningasviðinu út af þessu. Og svo munum við fara yfir það hvort þetta hefur aukist.“ Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra og Björn Zoega, forstjóri Landspítalans, hafa þó sett fram öfl- uga áætlun til að bæta ástandið á lyf- lækningasviðinu og kemur hún til framkvæmda á næstu mánuðum. Getur valdið dauðsföllum Mistök við lyfjagjöf geta eðlilega haft mis alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir sjúklinga. Faðir mannsins sem DV ræddi við var heppinn að af- leiðingarnar voru ekki alvarlegri en raun bar vitni. En í einstaka tilfell- um geta mistök við lyfjagjöf leitt til dauða. „Það er vel þekkt á öllum spítöl- um að lyfjaatvik geta valdið dauðs- föllum og þess vegna tökum við þau mjög alvarlega. Það hefur einhvern tíma gerst hérna á spítalanum, en ekki nýlega,“ segir Ólafur. Hann telur að um eitt tilfelli hafi verið að ræða á síðustu tíu árum. Í vor kom þó upp alvarlegt lyfja- atvik á spítalanum og átti Ólafur ný- lega viðtal við sjúklinginn sem varð fyrir mistökunum. Þar var farið yfir mistökin með sjúklingnum og fjöl- skyldu hans og þeim gerð grein fyr- ir umbótum sem farið var í í kjöl- far atviksins. „Það kemur í ljós að langflestir eru virkilega áhugasam- ir að hjálpa okkur við að bæta spít- alann og við verðum að sameinast í því verkefni. Við eigum þessa stofn- un saman og við þurfum að sam- einast í að bæta hana. Það eru engin leyndarmál hér, nema persónu- vernd sjúklinga.“ Mismunandi mistök Að sögn Ólafs geta mistök við lyfja- gjöf átt sér stað á nokkrum stöðum í lyfjagjafaferlinu. „Það getur verið allt frá því að röngu lyfi er ávísað af lækni. Það gerist einstöku sinnum. Hjúkrunarfræðingurinn getur óvart tekið til rangt lyf og svo kemur það fyrir að hjúkrunarfræðingur gefur rangt lyf. Það er búið að brjóta nið- ur alla þessa ferla, þar sem mistök geta orðið og það er verið að vinna í hverjum og einum fyrir sig.“ Hann segir Landspítalann vera á svipuðum stað í þessum efnum og spítalar í ná- grannalöndunum. n Öldruðum manni gefin röng lyf Fréttir 3Mánudagur 16. september 2013 900 þúsund fyrir umdeilt lyf n Sóttvarnalæknir segir Landspítalann hafa keypt lyfið vegna álags Í helgarblaði DV var fjallað um lyf- ið Tamiflu sem notað er gegn in- flúensuveiru. Lyfið á sér þó bæði meðmælendur og andmælendur innan læknastéttarinnar og segja þeir sem gagnrýnastir eru að lyfið sé harla gagnslaust. DV óskaði eftir upplýsing- um frá Landspítalanum um hve miklu fé spítalinn hefði eytt í lyfið á þessu ári og því síðasta. Samkvæmt þeim gögn- um, sem bárust eftir útgáfu helgar- blaðsins, hafa innkaup á lyfinu rokið upp á þessu ári. Í fyrra var kostnaður við innkaup á lyfinu tæp hundrað og þrjátíu þúsund krónur; en á þessu ári hefur hér um bil níu hundruð þúsund- um verið varið í kaup á lyfinu. Haraldur Briem sóttvarnarlækn- ir telur að ástæðan fyrir auknum inn- kaupum vera vegna slæmrar stöðu Landspítalans. „Inflúensufaraldur- inn sem kom um áramótin var í sjálfu sér ekkert meira en venjuleg árstíða- bundin inflúensa. Hins vegar lenti Landspítalinn illa í því, það var gríðar- legt álag á spítalanum. Það var marg- þætt mál, þeir sátu upp með mikið af sjúklingum sem þurftu að komast í hjúkrunarrými og komust ekki að annars staðar, svo voru sjúklingar með noro-veiruna og svo komu in- flúensuveikir ofan á það. Þeir voru mjög stressaðir upp á Landspít- ala í inflúensufaraldrinum svo mér finnst mjög líklegt að þeir hafi verið að nota lyfið meira en gengur og gerist þá. Að öðru leyti var inflúensan úti í samfé- laginu með svipuðu sniði og vanalega,“ sagði Haraldur í samtali við DV. Því má segja að niðurskurður geti oft valdið auknum kostnaði, í þessu tilviki tæpri milljón króna. n Lyfið Tamiflu Er ekki hægt að kalla ódýrt, því hver skammtur kostaði Landspítalann fimm þúsund krónur. Margir vilja frekar leigu- húsnæði Rúmlega 26 prósent félagsmanna BSRB telja það líklegt að þeir myndu velja að leigja húsnæði til frambúðar frekar en að kaupa ef búseta þeirra væri tryggð í leigu- húsnæðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum kjarakönnunar BSRB. Þetta er dágóður fjöldi sé litið til þess að tæplega 85 prósent félags- manna búa í eigin húsnæði í dag. „Nú þegar er framboð á leigu- húsnæði ekki nærri nógu mikið til að anna eftirspurn, leiguverð er gríðarlega hátt og mjög margir eru í vandræðum með að finna sér húsnæði. Þessar niðurstöð- ur könnunar BSRB sýna okkur svo að eftirspurnin getur náð langt út fyrir þann hóp sem þegar er á leigumarkaði eða er að flytjast úr foreldrahúsum,“ segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB, í til- kynningu frá bandalaginu. 72 krónur urðu að 3 milljónum Hann var á skotskónum tipparinn sem fékk 13 rétta í Enska boltan- um á laugardag. Í tilkynningu frá Getspá kemur fram að maðurinn hafi keypt seðil með fjórum röð- um á heimasíðu Getrauna, 1x2. is, fyrir 72 krónur. Hann tvítryggði leik 1 og 2 og setti eitt tákn á hina 11 leikina. Niðurstaðan varð 13 réttir og um það bil 3,3 milljón- ir króna í vinning. „Íslenskar get- raunir óska vinningshafanum til hamingju með vinninginn,“ segir í tilkynningu. n „Hann varð ruglaður og vitlaus“ n Um 400 lyfjaatvik á ári Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Fékk röng lyf Maðurinn var heppinn því mistökin höfðu ekki alvarlegar afleiðingar í för með sér. Engin leyndarmál Ólafur segir engin leyndarmál á Landspítalanum, fyrir utan persónu- vernd sjúklinga, og að flestir séu áhugasamir um úrbætur. 60 útskrifaðir frá Bifröst Tæplega sextíu nemendur voru útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst á laugardag. Útskrif- að var frá frumgreinadeild, grunnnámi og meistaranámi úr öllum deildum skólans. Þetta var fyrsta brautskráning Vilhjálms Egilssonar rektors. Í ræðu sinni talaði hann um að útskriftarnemendur myndu auka hróður Háskólans á Bif- röst með verkum sínum og að þær ólíku leiðir sem þeir færu myndu liggja til meiri þroska og spennandi viðfangsefna. Hann talaði um að Há- skólinn á Bifröst stæði á göml- um og traustum grunni sem hefði alltaf átt erindi í íslensku samfélagi. Hlutverk þeirra sem nú starfa í skólanum sem og nemenda væri að skrifa söguna áfram, sögu sem byggð væri á því sem þau hefðu fengið í arf og metnaður væri fyrir því að þeirra sögukafli segði frá nýj- um framförum og aukinni vel- gengni skólans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.