Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2013, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 16. september 2013 Sálfræðistofa Kolbrúnar Baldursdóttur er flutt í Ármúla 5 n Einstaklingsráðgjöf, para- og hjónaráðgjöf, uppeldisráðgjöf n Ráðgjöf í forsjár- og umgengnismálum n Handleiðsla og samskiptaþjálfun n Tímapantanir í síma 899 6783 eða í tölvupósti kolbrunbald@simnet.is Fræðsluerindin í aðgerðum gegn einelti eru byggð á hugmyndafræði bókarinnar EKKI MEIR. Útgefandi er Skólavefurinn ehf. Nánari upplýs- ingar um bókina og innihald fræðslunnar má sjá á www.kolbrunbaldurs.is Erindi byggð á hugmyndafræði EKKI MEIR n EKKI MEIR fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla, leiðbeinendur og þjálfara íþrótta- og æskulýðsfélaga n EKKI MEIR fyrir kennara og starfsfólk framhaldsskóla n EKKI MEIR fræðsluerindi um eineltismál sér- sniðið að foreldrum n EKKI MEIR, fræðsluerindi fyrir vinnustaði Einnig er boðið upp á eftirfarandi fræðsluerindi n Hvernig eflum við innra varnarkerfi barna gegn kynferðisofbeldi? n Fræðsla í samskiptum sérsniðin að þjálfurum, leiðbeinendum og sjálfboðaliðum n Grunnskólabarnið: samskipti foreldra og barna, þjálfun í foreldrafærni n Unglingastigið: Samskipti á heimilinu, tölvu- notkun og netið Fjarfundarkennsla er í boði eigi sveitarfélög og stofnanir á landsbyggðinni þess kost að fá fræðsluerindi á netfundi kolbrunbald@simnet.is Sími 899-6783 Höldum saman gegn einelti Kolbrún Baldursdóttur, sálfræðingur Segir leigufélög halda verði uppi n Hagsmunasamtök leigjenda stofnuð V ið höfum verið að eltast við fimmtu grein húsnæðis­ laga. Þar kemur fram að sveitarfélög eigi að veita húsnæði þegar þörf krefur og fylgjast með húsnæðismarkaðn­ um,“ segir Jóhann Már Sigurbjörns­ son, einn forsvarsmanna nýrra hagsmunasamtaka leigjenda sem formlega verða stofnuð þann 21. september næstkomandi. Jóhann segir að sveitarfélögin eigi að sýna frumkvæði þegar kemur að því að leysa þessi vandamál. Þessi fimmta grein er mjög skýr,“ bætir hann við. Að samtökunum standa fjöl­ margir einstaklingar sem flestir eiga það sameiginlegt að hafa mikla reynslu af leigumarkaðnum. Að þeirra mati eru slík samtök löngu tímabær. Helstu baráttumál hagsmunasamtaka leigjenda er að tryggja rétt Íslendinga til öruggrar búsetu með leiguíbúðum á viðráð­ anlegu verði. En hópurinn telur að þar verði sveitarfélögin að grípa inn í og leysa vandann. Þá munu samtökin einnig beita sér fyrir því að tryggja rétt leigutaka þegar kemur að ástandi, réttindum og fleira. Tvenns konar vandi Í DV á föstudag var fjallað um þann mikla vanda sem ríkir á leigumark­ aðnum á höfuðborgarsvæðinu; mikill skortur er á leiguhúsnæði og leiguverð fer síhækkandi. Fram kom að ástandið á leigumarkaðn­ um geti haft áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu fólks. „Við erum með tvenns konar vanda. Við erum með bráðavanda og svo langtímavanda, því það er alveg vitað mál að það koma fleiri inn á leigumarkaðinn. Bæði eru námsmenn að klára nám og svo er fólk að missa húsnæðið sitt, um það bil þrjár fjölskyldur á dag. Það þarf því bæði að leysa bráðavand­ ann og vandann til lengri tíma.“ Leigufélög halda verðinu uppi Jóhann segir ýmsa samverkandi þætti hafa verið að valda hækkun á leiguverði. Breytingar á eðli leigu­ markaðarins hafi þar sitt að segja. „Það sem hefur verið að gerast á síðastliðnum fjórum mánuðum er að fólk sem hefur til dæmis verið að leigja á 115 þúsund á mánuði, það er að fá uppsögn og leigusalinn seg­ ist ætla að hækka verðið upp í 145 þúsund.“ Jóhann segir þetta vera að gerast með fjölgun leigufélaga. Þau þurfi að greiða af lánum og hagn­ ast á fjárfestingunni á sama tíma. „Ég veit um dæmi þar sem leigu­ félög hafa keypt heilu blokkirnar og samdægurs var leigan hækkuð.“ Jóhann segir leigufélögin því stýra verðinu á markaðnum að miklu leyti. Og það búi til mikinn samfé­ lagsvanda að fjárfestingafélög fari þessa leið til að ávaxta fé sitt. Enginn tekur ábyrgð á vandanum Jóhann segir stóran hluta vand­ ans á leigumarkaðnum liggja í því að enginn tekur ábyrgð á honum. Hann bendir á að Eygló Harðar­ dóttir, félags­ og húsnæðismála­ ráðherra, hafi talað um að málið eigi heima inni á borði hjá stéttar­ félögunum. Sé hins vegar leitað til stéttarfélaganna og ASÍ þá séu skiptar skoðanir á því hver eigi að leysa vandann. Þar sé ýmist talið að það sé rétt, að stéttarfélögin eigi taka á vandanum, eða að málið eigi heima inni á borði lífeyrissjóðanna. Svo vísi sveitarfélögin á stjórnvöld og Íbúðalánasjóð. Jóhann bendir á að það sé í raun ekki í verkahring hagsmunasam­ takanna að útfæra lausnir á vanda­ málinu en hópurinn hefur engu að síður reynt að gera það. „Eina leiðin sem við sjáum er að sveitarfélögin fái fjármagn frá Íbúðalánasjóði eða lífeyrissjóðum á mjög lágum vöxtum. Þá væri hægt að byggja á lóðum í eigu sveitarfé­ laganna. Þá eykst framboðið af húsnæði og leiguverðið lækkar. Þá verða leigufélögin að lækka líka. Eins og staðan er akkúrat núna þá er þetta leiðin sem við sjáum færa,“ segir Jóhann. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Mikill vandi Jóhann segir leigu- félög halda verði á leigumarkaði uppi að miklu leyti.„Eina leiðin sem við sjáum er að sveitarfélögin fái fjármagn frá Íbúðalánasjóði eða lífeyrissjóð- um á mjög lágum vöxtum 5. grein húsnæðislaga „Sveitarstjórn ber ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðis- þörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Í því skyni skal sveitarstjórn fylgjast með þörf á húsnæði í sveitarfélaginu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.