Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2008, Blaðsíða 8
FIMMTUdagUr 11. dESEMBEr 20088 Fréttir MótMæli sliga lögreglu Undirmönnuð lögreglusveit höfuðborgarsvæðisins hefur verið undir miklu álagi undanfarið vegna tíðra mót- mæla. Menn láta ekki hugfallast og vinna margir hverjir tvöfalt starf. Á sama tíma hrannast upp launakostn- aður vegna útkalla hjá embættinu sem eins og svo mörg önnur á Íslandi líður fjársvelti. Ljóst er að lýðræðisleg- ur réttur manna til mótmæla er lögreglunni dýru verði keyptur. Lýðræðið kostar segir Hörður Torfason. Tíð mótmæli á höfuðborgarsvæð- inu eru lögregluembættinu dýr. Í fyrra var launakostnaður 81 prósent af rekstrarkostnaði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og erfitt hef- ur reynst að láta enda ná saman. Víða um land hafa lögregluembætti kvartað yfir fjársvelti og mikill nið- urskurður átt sér stað. Þegar fjöldamótmæli eiga sér stað þarf lögreglan að kalla út fjöl- marga lögreglumenn á yfirvinnu- launum til að mæta ástandinu. Mikið álag er á lögreglusveit höf- uðborgarsvæðsins en þar veigra menn sér ekki við að vinna tvöfalda vinnu. Nú er svo búið að upp hafa komið fjölmörg tilvik í kringum mótmælin sem ekki hafði verið gert ráð fyrir og kostnaðurinn sem af því hlýst er talsverður. Gríðarlegur kostnaður Lögreglumaður í útkalli er með þrjú þúsund krónur á klukkutím- ann í yfirvinnu. Ákveðinn fjöldi manna þarf að vera til staðar þeg- ar tilefni er til eins og við mótmæl- in undanfarið. Heimildarmaður sem DV ræddi við og þekkir vel til innan lögreglunnar sagði óhætt að áætla að kostnaðurinn geti numið á bilinu hálfri milljón og allt að einni milljón á dag. Hann segir fjárþurfa lögregluembætti muna um slíkan aukakostnað. Reksturinn kostar „Allt sem lögreglan gerir kostar eins og gefur að skilja,“ segir Stefán Ei- ríksson, lögreglustjóri höfuðborg- arsvæðisins, spurður um ástand- ið. „Við erum bara að reka þetta embætti. Viðbúnaður okkar er í samræmi við tilefnið hverju sinni. Stundum þarf hann að vera meiri, stundum minni, eins og gengur og gerist. Ég get því miður ekki gefið skýrari svör,“ segir Stefán. Spurð- ur um kostnað embættisins vegna mótmælanna segist Stefán ekki vera með neinar tölur tilbúnar í þeim efnum. Þreyttir en reiðubúnir „Auðvitað er mannskapurinn þreyttur. Við höfum líka verið sér- lega fámenn núna þetta haustið, það hafa verið mörg verkefni, og mikið að gera.“ segir Geir Jón Þóris- son yfirlögregluþjónn lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir mannskapinn hafa verið ein- staklega jákvæðan á þessum erfiðu tímum og hvergi kvartað. „Mann- skapurinn kvartar ekki og það er ég þakklátur fyrir. Menn eru alltaf tilbúnir að koma á hvaða tíma sem er og reiðubúnir að leggja á sig tvöfalda vinnu. Það hefur bjargað okkur algjörlega.“ segir Geir Jón. Mótmæli eiga rétt á sér Eins og gefur að skilja þarf lög- reglan að kalla marga lögreglu- menn út til að sinna löggæslu við mótmæli og þegar gamanið kárnar og hiti hleypur í mótmælin þarf lögreglan að geta mætt því. Geir Jón segir vel hafa geng- ið að ræsa út mannskap en reynt hafi verið að halda honum í eins miklu lágmarki og mögulegt er. „Almennt hafa mótmælin farið vel fram en það koma upp eitt og eitt tilvik þar sem stefnir kannski í óefni þar sem þarf að grípa inn í,“ segir Geir Jón. Hann bætir við að honum sýnist lögreglan mæta skilningi á sínum störfum, bæði hjá flestum mót- mælendum, sem og almenningi. „Mótmæli eiga fullan rétt á sér upp að vissu marki.“ Lýðræðið kostar sitt „Þetta fylgir lýðræðinu. Svona er að vera til í því. Hvað heldur þú að bankaútrásin hafi kostað okkur og mistökin í pólitíkinni?“ spyr Hörður Torfason, sem farið hefur fyrir mörgum mótmælum að undanförnu. Hann segir lýðræðið kosta sitt. „ Lögreglan hefur sinni skyldu að gegna og það kostar sitt. Þetta er réttur okkar til að mótmæla í lýðræðisríki og ég held að þetta sé lítill peningur fyrir þá framtíð sem við erum að horfa fram á.“ Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, svaraði ekki ítrekuðum fyrirspurnum DV um stöðu mála og hvort ríkisvaldið hygðist á einhvern hátt aðstoða lög- regluembættið í ljósi þeirrar stöðu sem upp er kom- in. SiGuRðuR MikaeL jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Svara kallinu Lögreglumenn eru undir miklu álagi þessa dagana. Fjölmörg útköll vegna tíðra mótmæla taka á en menn leggja á sig að vinna á við tvo. Á sama tíma hrannast upp himinhár launakostnaður vegna útkalla. Mynd RóbeRT ReyniSSon NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Álag Þeir tugir lögreglumanna sem annast löggæslu í kringum mótmælin hafa lent í ýmsu undanfarna daga. Eggjum hefur verið grýtt í þá og fúkyrðum hreytt í þá. Mynd kRiSTinn MaGnúSSon Stoltur af sínum mönnum geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir mótmæli eiga rétt á sér og er þakklátur fyrir ósérhlífni sinna manna. Lýðræðið kostar Hörður Torfason tónlistarmaður hefur farið fyrir mörgum mótmælum að undan- förnu. Hann segir lögregluna hafa skyldu að gegna en lýðræðislegur réttur manna sé að mótmæla. „Allt sem lögreglan gerir kostar eins og gefur að skilja.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.