Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 13

Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 13
lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 13 lAGADAGUr 2013 til setu í dómum, til dæmi með því að halda námskeið eins og gert hefur verið hjá sálfræðingafélaginu og mögulega ætti dómarafélagið eða dómstólaráð að eiga aðkomu að slíku. Hlutverk Hæstaréttar Að lokum var rætt um hlutverk hæstaréttar, hvenær og hvernig hæstiréttur gæti endurskoðað dóma sem byggja á sérfræðilegu mati. Þeirri spurningu var varpað fram hvort hæstiréttur hefði burði til að fara ofan í mat sérfróðra matsmanna og/ eða meðdómenda og ef svarið við því væri nei þá væri raunverulega við lýði eitt dómsstig, sem væri ótækt. einnig var þeirri spurningu varpað fram hvort hæstiréttur ætti fremur að heimvísa málum þar sem hann er ósammála niðurstöðum sérfróðra aðila en að endurskoða málið og dæma. Þá var því jafnframt velt upp hvernig hæstiréttur gæti lagt mat á ný sérfræðileg gögn sem lögð væru fram fyrir réttinn, sem ekki hefðu verið lögð fram í héraði. fundarmenn voru sammála um að millidómstig væri í raun nauðsynlegt til að taka á þessu máli, þ.e. millidómstig þar sem hægt væri að kveða til sérfróða meðdómsmenn. fyrirmyndin að slíku ætti að vera Landsréttur í danmörku. Áskorun um endurskoðun reglna í lokin benti sigurður tómas á að öll gögn sem lögð væru fram í dómsmálum þyrfti að meta að verðleikum, slíkt mat væri ekki endilega alltaf sérfræðilegt en hægt væri að treysta á að það yrði ávallt lögfræðilegt. skúli skoraði á réttarfarsnefnd og dómstólaráð að taka málefnið um sérþekkingu í dómskerfinu til sín og endurskoða núgildandi reglur. Vel er hægt að taka undir þá áskorun. Þyrí Steingrímsdóttir hrl. Á MÁLstOfuNNi var fjallað um hvort þörf væri á bættum réttarfarsreglum vegna kynferðisbrota gegn börnum. framsögumenn voru svala ólafsdóttir, sérfræðingur við lagadeild háskólans í reykjavík og stefán eiríksson lögreglustjóri. í pallborði voru helgi Gunnlaugsson prófessor við félags­ og mannvísindadeild háskóla íslands, hulda elsa Björgvinsdóttir saksóknari, ragnheiður harðardóttir héraðsdómari og hrefna friðriksdóttir dósent við lagadeild háskóla íslands og stjórnarformaður rannsóknastofnunar Ármanns snævarr um fjölskyldumálefni. stjórnandi var róbert spanó prófessor og settur umboðsmaður Alþingis. F.v. svala ólafsdóttir, róbert spanó, stefán Eiríksson, ragnheiður Harðardóttir, Helgi gunnlaugsson og Hulda Elsa Björgvins- dóttir. Á myndina vantar Hrefnu Friðriks- dóttur. KynFErÐisBrOt gEgn BÖrnum Á MÁLstOfu um kvótakerfi og atvinnuréttindi var veitt fræðileg yfirsýn yfir kvótakerfi og varpað ljósi á stjórnskipuleg álitaefni sem upp koma við rekstur þeirra, m.a. með hliðsjón af mögulegum lagabreytingum. framsögumenn voru þau Aðalheiður jóhannsdóttir prófessor við lagadeild háskóla íslands, Ásgerður ragnarsdóttir hdl., LL.M. hjá Lex, kristín haraldsdóttir sérfræðingur við lagadeild og forstöðumaður auðlindaréttarstofnunar háskólans í reykjavík og daði Már kristófersson dósent í náttúruauðlindahagfræði við hagfræðideild háskóla íslands. í pallborði sátu Valgerður sólnes aðstoðarmaður hæstaréttardómara og helgi Áss Grétarsson lektor við lagadeild háskóla íslands en stjórnandi var hulda Árnadóttir hdl., LL.M. hjá Lex. Ásgerður ragnarsdóttir var einn fram- sögumanna. KVótaKErFi Og atVinnuréttindi Stórt verk lítið mál Litlaprent ehf. | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | Fax 540 1801 | litla@prent.is prent.is lj ós m yn d: Þ or ke ll Þo rk el ss on . lj ós m yn d: Þ or ke ll Þo rk el ss on .

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.