Són - 01.01.2009, Síða 67

Són - 01.01.2009, Síða 67
ÁSTIR HJÁLMARS HUGUMSTÓRA OG INGIBJARGAR 67 gangur þeirra Örvar-Odds og Hjálmars með komunni til Sámseyjar að afla viðar til að gera við eitt skipa sinna eins og raunin er einnig í Örvar-Odds sögu.6 Yfirlit yfir rímur um Hjálmar hugumstóra og Ingibjörgu Ástarsögur eru fáar í fornaldarsögum, aðeins saga Hjálmars og Ingibjargar og Friðþjófs saga frækna geta talist hreinar ástarsögur. Á fyrstu áratugum 19. aldar verður sögnin um Hjálmar hugum- stóra og Ingibjörgu rímnaskáldum hugstætt yrkisefni. Það má efunar- laust í fyrstu rekja til útgáfu á Rímum af Hervöru Angantýrsdóttur eftir Ásmund Sæmundsson í Hrappsey árið 1777 en áreiðanlega einnig til útgáfu C.C. Rafns á fornaldarsögum á árunum 1829–1830. Þá urðu þessar sögur aðgengilegri en áður hafði verið þótt vissulega lifðu þær í huga fólks og sæg handrita meðal alþýðu.7 Þótt margir alþýðumenn hafi ekki haft ráð á að kaupa útgáfu Rafns þýddi það ekki að þeir hefðu ekki aðgang að sögunum. Þess eru jafnvel dæmi að sögur úr útgáfu Rafns væru skrifaðar upp til að eiga þær ávallt tiltækar til heimabrúks. Þannig lokaðist hringurinn: saga í handriti prentuð bók aftur handrit. Alþýðuútgáfa Valdimars Ásmundssonar 1885– 1889 var hins vegar á viðráðanlegu verði fyrir mun fleiri og varð svo feikilega vinsæl að hún var endurprentuð 1891. Vitað er um fjölmörg skáld sem spreyta sig á hetju- og ástarsögn- inni um Hjálmar og Ingibjörgu og eru að allt fram til ársins 1960. Flestar rímurnar af þeim eru þó ortar á seinni hluta 19. aldar og víða má þá sjá gæta áhrifa frá rómantísku stefnunni. Sumar voru rímurnar prentaðar þegar um og eftir 1860 en þær voru þó ekki margar. Skáldin, sem yrkja inn í þessa hefð, eru sum hver þjóðkunn og fróðlegt að velta fyrir sér hvernig þau dreifðust um landið. Rímur og annar kveðskapur um efnið, eftir því sem næst verður komist, er eftir- farandi. Þó getur verið að fleira leynist í handritasöfnum. 1) Rímur af Hervöru Angantýrsdóttur eftir Ásmund Sæmundsson (á lífi 1649, látinn fyrir 1656), ortar um 1640, prentaðar í Hrappsey 1777. 20 rímur. Ásmundur var Eyfirðingur. 6 Sbr. Stephen A. Mitchell. „The fornaldarsÄgur and Nordic Balladry: The Sámsey Episode across Genres.“ Fornaldarsagornas struktur och ideologi, bls. 250. 7 Sjá nánar Matthew James Driscoll. „Fornaldarsögur Norðurlanda: The stories that wouldn’t die.“ Fornaldarsagornars struktur och ideologi, bls. 257–267.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.